Beint í efni

38. (1706). fundur

06.10.2015
Bæjarráð Garðabæjar

38. (1706). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

06.10.2015

Kl. 08:00 - 08:35

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1409324

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 - Viðaukar 6-17.

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir tillögu að viðaukum nr. 5-17 við fjárhagsáætlun 2015.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2015 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 6 Akstur fatlaðra 25.000.000

Viðauki 7 Niðurgreiðsla á skólamat 15.000.000

Viðauki 8 Félagsmiðstöðin Klakinn 3.200.000

Viðauki 9 Sumarstörf 51.000.000

Viðauki 10 Fjárhagsaðstoð 10.000.000

Viðauki 11 Frekari liðveisla 30.000.000

Viðauki 12 Félagsstarf aldraðra 4.000.000

Viðauki 13 Sambýlið Sigurhæð 3.000.000

Viðauki 14 Félagsleg heimaþjónusta 15.000.000

Viðauki 15 Laun kennara 82.000.000

Viðauki 15 Varasjóður -100.000.000

Viðauki 16 Fasteignaskattur, lækkun v/lagabreyt. 38.000.000

Viðauki 16 Hækkun útsvars -150.000.000

Viðauki 17 Sjálandsskóla ? húsaleiga (nettó) 0

Ofangreindum viðaukum nr. 6 ? 17 skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 26.000.000.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1509316

02

Umsókn um byggingarleyfi - Breiðumýri

Bæjarráð samþykkir afreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna breytinga á húsnæði kaffi- og veitingahúss við Breiðumýri.

Málsnúmer 1509143

03

Umsókn um byggingarleyfi - Sjávargata 32.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita að nýju byggingarleyfi vegna færslu og stækkunar bílskúrs við Sjávargötu 32.

Málsnúmer 1509113

04

Umsókn um byggingarleyfi - Byggakur 21.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna framkvæmda við nýbyggingu parhúss á lóðinni við Byggakur 21.

Málsnúmer 1509115

05

Umsókn um byggingarleyfi - Byggakur 23.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna framkvæmda við nýbyggingu parhúss á lóðinni við Byggakur 23.

Málsnúmer 1508397

06

Umsókn um byggingarleyfi - Byggakur 22.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna framkvæmda við nýbyggingu parhúss á lóðinni við Byggakur 22.

Málsnúmer 1508396

07

Umsókn um byggingarleyfi - Byggakur 24.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna framkvæmda við nýbyggingu parhúss á lóðinni við Byggakur 24.

Málsnúmer 1510006

08

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi athugasemd við starfsleyfi Barnaskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ, dags. 30.09.15.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að svara bréfinu og gera nánari grein forsendum og skilyrðum þjónustusamnings Garðabæjar og Hjallastefnunnar vegna starfsemi grunnskóla.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1509343

09

Bréf Heimilis og skóla varðandi ályktun um endurnýjun gervigrasvalla vegna eiturefna í dekkjakurli, dags. 25.09.15.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir aðstæðum á gervigrasvöllum í eigu bæjarfélagsins og hvernig staðið er að endurnýjun og þróun á uppbyggingu vallanna.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka saman minnisblað um ástand vallanna ásamt drögum að áætlun um endurnýjun þeirra. Jafnframt er bæjarstjóra falið að taka saman gögn og bregðast við fullyrðingum í bréfi bréfritara um skaðsemi efna í gervigrasvöllum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1502265

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Unnargrund 2-10.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda, sem gerir ráð fyrir sameiningu lóðanna nr. 2 ? 10 við Unnargrund í eina lóð nr. 2 við sömu götu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504313

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 13

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 13, sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 6 í 8, verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 701.249 á íbúð m.v. BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504287

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á skipulagi Ása og Grunda vegna raðhúsalóða við Unnargrund.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga um breytingu á skipulagi Ása og Grunda, sem gerir ráð fyrir auknu byggingarmagn sjö raðhúsa af 25 hækki úr 130 m2 í 150 m2 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1505291

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á skipulagi miðbæjar vegna lóðarinnar við Garðatorg 6.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar vegna lóðarinnar við Garðatorg 6, sem gerir ráð fyrir að heimilt verði að hafa íbúðir á 2. og 3. hæð, verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504114

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á skipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsvegur 51.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 51, sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 16 í 17, verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 701.249 á íbúð m.v. BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2008030200

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að vísa til forkynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur. Jafnframt skal tillagan send til umsagnar umhverfisnefndar Garðabæjar og Umhverfisstofnunar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1204363

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Heiðmerkur.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að vísa til forkynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur. Jafnframt skal tillagan send til umsagnar umhverfisnefndar Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1505149

17

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Sunnuflöt 25.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Sunnuflöt 25. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send send skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1509394

18

Bréf heilbrigðiseftirlits varðandi fjárhagsáætlun 2016, dags. 30.09.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510007

19

Bréf Sorpu bs. varðandi rekstraráætlun Sorpu bs. 2016-2020, dags. 30.09.15.

Málsnúmer 1501346

20

Bréf samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins varðandi drög að fjárhagsáætlun 2016, dags. 01.09.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.

Fylgiskjöl