Beint í efni

AÐALSKIPULAG GBR 2004-2016 BREYTING HEIÐMÖRK

Málsnúmer 1204363

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (811). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Heiðmerkur. Í athugasemdafresti auglýsingar bárust athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til samkvæmt 1. mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt tillaga ásamt athugasemdum og umsögn skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. mgr. 32. gr. sömu laga.

Bæjarráð Garðabæjar

02

18. (1784). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Heiðmerkur. Í athugasemdafresti auglýsingar bárust athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til samkvæmt 1. mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt tillaga ásamt athugasemdum og umsögn skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. mgr. 32. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 gerir ráð fyrir því að land sem tilheyrir Heiðmörk innan Garðabæjar og svæði Skógræktarfélags Garðabæjar í Sandahlíð verði skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota. Gert er ráð fyrir breytingum á legu útivistarstíga og reiðstíga. Breytingartillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð.
Tillagan var í auglýsingu frá 10.mars til 21.apríl.

Athugasemdir hafa borist frá eftirfarandi aðilum:
Hestannafélagið Sprettur dags.18.apríl 2017
Jón Lárusson og Björn Erlendsson f.h.eigenda Selskarðs dags.21.apríl 2017

Umsagnir liggja fyrir frá eftirfarandi aðilum:
Landsnet dags 25.apríl 2017
Heilbrigðiseftirlit dags. 25.apríl 2017
Vegagerðin dags 2.maí 2017

Skipulagsnefnd samþykkir auglýsta tillögu óbreytta sem breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016 í samræmi við 1.mgr. 32.gr.Skipulagslaga og felur skipulasstjóra að ganga frá tillögunni í samræmi við 2.mgr. sömu greinar sömu laga.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

7. (790). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna Heiðmerkur og Sandahlíðar. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu á deiliskipulagi.

Bæjarráð Garðabæjar

05

12. (1729). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna Heiðmerkur og Sandahlíðar. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu á deiliskipulagi.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 sem nær til Heiðmerkur og Sandahliðar.
Tillagan gerir ráð fyrir að svæði það sem deiliskipulagstillagan nær til breytist úr óbyggðu svæði í opið svæði til sérstakra nota.
Tillagan hefur nú verið forkynnt samhliða tillögu að deiliskipulagi. Forkynning stóð frá 26.nóvember 2015 til 15.janúar 2016. Kynningarfundur var haldinn 1.desember. Ábendingar kalla ekki á breytingar á tillögunni.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.31.gr. Skipulagslaga og skal senda hana Skipulagsstofnun til athugunar í samræmi við 3.mgr. 30.gr.sömu laga. Auglýsa skal tillöguna samhliða tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur í Garðabæ og Sandahlíðar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

15. (779). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að vísa til forkynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur. Jafnframt skal tillagan send til umsagnar umhverfisnefndar. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

08

38. (1706). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að vísa til forkynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur. Jafnframt skal tillagan send til umsagnar umhverfisnefndar Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

12. fundur

Þráinn Hauksson og Halldóra Narfadóttir hjá Landslagi ehf gerðu grein fyrir tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar í tengslum við tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2.mgr.30 gr.Skipulagslaga.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni ennfremur til umsagnar umhverfisnefndar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

19. fundur

Lögð fram tillaga að lýsingu á breytingu aðalskipulags Garðabæjar vegna gerðar deiliskipulags Heiðmerkur. Tillagan hlýtur ferli samhliða deiliskipulagi Heiðmerkur í Garðab.

Bæjarráð Garðabæjar

11

9. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar er varðar svæði Heiðmerkur og Sandahlíðar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

3. fundur

Lögð fram lýsing að tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Heiðmerkur skv. 30.grein Skipulagslaga og Sandahlíðar og matslýsing aðaskipulagsbreytingarinnar skv. 2.mgr.6.gr.laga um umhverfismat áætlana nr.105/2006.

Lýsing er lögð fram öðru sinni þar sem að frá því að lýsing var samþykkt á síðasta ári hefur tekið gildi ný skipulagsreglugerð. Skal breytingin unnin samkvæmt þeirri reglugerð og svæði það sem breytingartillagan nær til verða skilgreint sem ”opið svæði OP“.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða lýsingu skv. 30.gr.Skipulagslaga og matslýsinguna skv. lögum um umhverfismat áætlana nr.105/2006.