12. (1729). fundur
12. (1729). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
05.04.2016
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1602462
01
Kynning á hönnun yfirborðsfrágangs á Garðatorgi og svæði við Vífilsstaðaveg og Bæjarbraut.
Á fund bæjarráðs mætti Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt hjá Landslagi. Þráinn gerði grein fyrir hönnun á yfirborðsfrágangi á Garðatorgi ásamt frágangi við Vífilsstaðaveg og Bæjarbraut. Þá sýndi Þráinn einnig uppdrátt með hugmyndum að nýju skipulagi bæjargarðs þar sem gert er ráð fyrir boltavöllum með gervigrasi og strandblakvelli.
Undir þessum dagskrárlið sátu fund bæjarráðs, Baldur Ó Svavarsson, Gísli Geir Jónsson, varabæjarfulltrúar og Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingastjóri.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1601430
02
Sundlaug Garðabæjar - Tillögur að hönnun endurbóta og nýrra framkvæmda.
Bæjarstjóri gerið grein fyrir tillögum um endurnýjun á yfirborði og endurbætur á gervigrasvöllum á Ásgarðsvæðinu. Bæjarstjóri sagði frá tillögu að deiliskipulagi fyrir svæðið sem kynnt hefur verið í skipulagsnefnd en þar er m.a. gert ráð fyrir stækkun á gervigrasvöllum auk þess sem sýndur er byggingarreitur fyrir íþróttamannvikri austan við gamla íþróttahúsið. Bæjarstjóri sagði frá því að í samráði við Stjörnuna verður fundinn nýr staður fyrir byggingu fjölnota íþróttahús.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir drögum að hönnun endurbóta á sundlaug Garðabæjar. Fram kom hjá bæjarverkfræðingi að við hönnun hefur verið haft samráð við notendahóp sundlaugar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1601531
03
Krókamýri 62 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna viðbyggingar við parhúsið við Krókamýri 62.
Málsnúmer 1601571
04
Krókamýri 64 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna viðbyggingar við parhúsið við Krókamýri 64.
Málsnúmer 1506139
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016 vegna Kauptúns 1, 2 og 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna verslunar- og þjónustusvæðis við Kauptún. Við afgreiðslu málsins hefur verið tekin afstaða til athugasemda sbr. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Málsnúmer 1511026
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna Kauptún 1, 2, 3 og lóðar fyrir dælustöð.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna nr. 1, 2, 3 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð. Við afgreiðslu liggur fyrir greinargerð um afstöðu til athugasemda sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, situr hjá.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1511300
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu deiliskipulags 1. áfanga Viðskiptastrætis vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 6-8 og 12.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðanna nr. 6-8 og 12 við Urriðaholtsstræti sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1601290
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Viðskiptastrætis vegna lóðarinnar við Kauptún 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kauptún 1 sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1601109
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Blikanes 14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. sömu greinar vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu á ofangreindri lóð.
Málsnúmer 1507053
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Heiðmörk og Sandahlíð.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1204363
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis í Heiðmörk og Sandahlíð.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna Heiðmerkur og Sandahlíðar. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603406
12
Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum í Garðabæ árið 2016.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarverkfræðings um að segja upp samningi við GT-hreinsun, ehf. um snjómokstur og hálkuvörn í Garðabæ, dags. 13. desember 2011. Heimild til uppsagnar byggir á gr. 1.4 í útboðsskilmálum og skal uppsögnin taka gildi 1. október 2016 enda hafi uppsögn borist samningsaðila fyrir 1. maí sama ár.
Bæjarráð felur bæjarverkfræðingi að undirbúa gerð nýrra útboðsgagna vegna nýs útboðs á snjómokstur og hálkuvörn í Garðabæ.
Málsnúmer 1603275
13
Ársreikningur Strætó bs. 2015.
Málsnúmer 1505187
14
Hofsstaðir - kauptilboð.
Bæjarstjóri kynnti tillögu að kauptilboði í fasteignina Hofsstaði.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri leiti tilboða í eignina og skal tilboð gert með fyrirvara um ástandskoðun og samþykki bæjarráðs.
Málsnúmer 1603345
16
Bréf Styrktarfélags klúbbsins Geysis varðandi styrk árið 2016, dags. 22.03.16.
Bæjarráð samþykkir að veita Styrktarfélagi klúbbsins Geysis styrk að fjárhæð kr. 100.000.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512038
17
Ársreikningur 2015 - minnisblað KPMG vegna viðauka 18 og 19.
Lagt fram minnisblað KPMG um breytingar á ársreikningi Garðabæjar frá fyrri umræðu.
Breytingarnar hafa engin áhrif á rauntölur ársreiknings og engin áhrif á rekstrarreikning fjárhagsáætlunar 2015. Breytingarnar hafa hinsvegar áhrif á áætlunartölur í skýringum og sjóðstreymi.
Bæjarráð vísar breytingunum til afgreiðslu við síðari umræðu um ársreikning sem fyrirhuguð er 7. apríl nk.
Lagðar eru fram skýrsla endurskoðenda til bæjarstjóra og skýrsla um stjórnsýsluendurskoðun. Þá er lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Maríu Grétarsdóttur um ársreikning.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1603415
18
Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis fyrir heimagistingu að Blikastíg 19.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt en mælir með að það verði einungis veitt til eins árs til reynslu.
Málsnúmer 1603276
19
Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis fyrir heimagistingu að Ljósakri 12.
Bæjarráð telur rétt að að leita eftir afstöðu annarra eigenda íbúða í viðkomandi raðhúsalengju áður en að umsögn er veitt í málinu.
Málsnúmer 1603374
20
Bréf DPA varðandi breytingu á deiliskipulagi Akra vegna lóðarinnar við Akrabraut 1, dags. 21.03.16.
Málsnúmer 1503196
21
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2016.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku.
Alls bárust tilboð upp á 1.820 milljónir að nafnvirði á kröfubilinu 3,04 - 3,53%.
Fjármálastjóri lagði fram drög að útgáfulýsingu fyrir nýjan skuldabréfaflokk Gard 16 01.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að semja um lántöku í samræmi við framlagða útgáfulýsingu allt að fjárhæð kr. 720.000.000 verðtryggt með 3,15 % vöxtum.
Málsnúmer 1604036
22
Bréf Fólksins í bænum varðandi beiðni um upplýsingar um niðurstöður samræmdra prófa, dags. 02.04.2016
Samkvæmt upplýsingum Menntamálastofnunar er unnið að skýrslu um niðurstöður og samanburð samræmdra prófa og mun skýrslan birtast á vef stofnunarinnar þegar hún er fullgerð.
Stofnunin hefur sent til skólastjórnenda bráðbirgðaupplýsingar um niðurstöður hvers skóla fyrir sig og munu þær verða sendar bæjarfulltrúum.
Bæjarráð óskar eftir skýringum Menntamálastofnunar á þeim drætti sem orðið er á birtingu skýrslunnar.