Kauptún 2 og 3, breyting á dsk Kauptúns.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (790). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna nr. 1, 2, 3 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð. Við afgreiðslu málsins liggur fyrir greinargerð um afstöðu til athugasemda, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Guðrún Elín Herbertsdóttir, Halldór Jörgensson og María Grétarsdóttir sitja hjá.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs í tilefni af afgreiðslu málsins. Bæjarstjóri lýsti ánægju með breytingar á skipulagi Kauptúns og komu Costco á svæðið. Bæjarstjóri lagði áherslu á að við útgáfu á byggingarleyfi vegna framkvæmda við bensínstöð á lóðinni við Kauptún 2 verði lögð áhersla á að vanda til hönnunar og frágangs mannvirkja þannig að ásýnd þeirra og umfang falli vel að umhverfinu. Sérstaklega skal í því sambandi huga að fjölda eldsneytisdæla.
Bæjarráð Garðabæjar
02
12. (1729). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna nr. 1, 2, 3 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð. Við afgreiðslu liggur fyrir greinargerð um afstöðu til athugasemda sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, situr hjá.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns. Kynning tillögunnar fór fram frá 1.febrúar til 14.mars. Tvö athugasemdabréf hafa borist og þau lögð fram. Lögð fram greinargerð unnin á vegum skipulagsstjóra þar sem lagðar eru fram tillögur að viðbrögðum við athugasemdum og svör við þeim.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með þeim lagfæringum sem lagðar eru til í greinargerð í samræmi við 2.mgr. 41.gr. Skipulagslaga.
Baldur Ó. Svavarsson sat hjá við afgreiðslu tillögunnar og lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd Bjartrar Framtíðar: „Björt framtíð vill ítreka fyrri athugasemdir sínar við framlagðar tillögur að breytingum deili- og aðalskipulags Kauptúns. Athugasemdirnar snúa að þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru á útliti og yfirbragði hverfisins sem versnar til muna auk þess afsláttar sem gefinn er á fyrri áherslum um vistvæna hugsun og umhverfisleg gæði.„
Fylgiskjöl
- Kauptún allar athugasemdir mars 2016.pdf
- A1116-002-U03-Tillaga að breytingu á deiliskipulagi - til auglýsingar 21.01.2016.pdf
- A1116-012-D03 3161261-000-CRP-001 - Umferdargreining.pdf
- 2 KAUPTÚN DSK BR UPPDR.pdf
- 4 KAUPTÚN DSK BR GRG fyrir breytingu.pdf
- 5 KAUPTÚN DSK BR GRG eftir breytingu.pdf
- 3 KAUPTÚN DSK BR UPPDR eftir breytingu.pdf
- 6 KAUPTÚN DSK BR fylgiskj 1 bensínst áhættumat.pdf
- 7 KAUPTÚN DSK BRE fylgiskj 2 umfgreingin bensínst.pdf
- 1 KAUPTÚN DSK BR GREINARGERÐ.pdf
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns að lokinni kynningu sem stóð frá 1.febrúar til 14.mars. Tvö athugasemdabréf hafa borist og þau lögð fram. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
2. (785). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (SHJ,ÁHJ,SÞ,SG,GVG,JS,GE,SE) tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna nr. 1, 2 og 3 við Kauptún og nýrrar lóðar fyrir dælustöð. Þrír sitja hjá. (GEH,HJ,MG)
Bæjarráð Garðabæjar
06
2. (1719). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna nr. 1, 2 og 3 við Kauptún og nýrri lóð fyrir dælustöð.
María Grétarsdóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns að lokinni forkynningu sem stóð frá 11.desember til 6.janúar. Lagðar fram ábendingar sem borist hafa. Einnig lagt fram minnisblað Mannvits um umferðargreiningu þar sem tekið er tillit til aukins byggingarmagns samkvæmt tillögu að breytingu á aðalskipulagi. Þá liggur fyrir tillaga Landslags ehf. að útfærslu lóðar númer 1. Þorsteinn Hermannsson verkfræðingur hjá Manniviti gerði grein fyrir umferðargreiningunni. Þráinn Hauksson gerði grein fyrir breytingartillögum á útfærslu lóðar að Kauptúni 1.
Eftirfarandi breytingar eru lagðar til á tillögunni:
Byggingarreitur fyrir skilti komi inn á lóð 3 á móts við skilti S4.
Bætt verði við akrein við fremra hringtorgið fyrir hægri beygu frá Kauptúni 1-3
Bætt verði við akrein til suðvestur milli hringtorgs og ljósastýrðra gatnamóta við Urriðaholtsbraut.
Tekin verði út setningin „Liðka þarf kröfur um fjölda bílastæða“
Að fjöldi bílastæða á lóð númer 1 verði 270 stæði og hámarksbyggingarmagn 8.100 sbr. Framlögð tillaga Landslags nr 3.
Ákvæði um þakefni og útfærslu langhliðar á lóð nr. 1 lagfærð.
Kæliraftar verði staðsettir á útvegg aftan á viðbyggingu á nr. 3 en ekki á þaki.
Skipulagsnefnd heimilar auglýsingu tillögunnar með ofangreindum breytingum í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga. Auglýsa skal breytingartillöguna í samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags.
Fulltrúi Bjartar framtíðar Baldur Ó. Svavarsson sat hjá við afgreiðslu málsins og lagði fram eftirfarandi bókun: "Björt framtíð gerir alvarlegar athugasemdir við framlagðar tillögur að breytingum á deili- og aðalskipulagi Kauptúns. Athugasemdirnar lúta að undirbúningi, formi og fyrikomulagi tillagna. Áherslum umhverfis og vistvæni sem einkenni skipulags á svæðinu er varpað fyrir róða m.a. með áætlun um eina stærstu bensínstöð landsins á svæðinu. Umhverfis og útlitslegar áherslur og kröfur til nýbygginga eru veikar og lítið tillit tekið til þeirra sem fyrir eru á svæðinu sérílagi í Kauptúni 3.
Umferðagreinigar benda til stóraukinnar umferðar sem kalla á breytingar á umferðarmannvirkjum, en engin kostnargreinig eða áætlun liggur fyrir um hvenær þær gerði gerðar né hver greiði fyrir þær greytingar."
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
1. (784). fundur
Á fundi skipulagsnefndar var málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfisviði og liggur því ekki fyrir fundinum tillaga til afgreiðslu.
Afgreiðslu frestað.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðanna Kauptún 2 og 3 og einnig til allra lóða í Kauptúni sem lýtur að ákvæðum um byggða fermetra á bílastæði. Forkynning tillögunnar var auglýst með áberandi hætti þann 11.desember og stóð hún til 6.janúar. Tillaga að aðalskipulagsbreytingu var forkynnt samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Kauptúns. Haldinn var sérstakur kynningarfundur fyrir rekstaraðila í Kauptúni. Lagðar fram ábendingar sem borist hafa á forkynningartíma. Tillögunni ásamt ábendingum vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissvið ásamt öðrum öðrum tillögum að breytingu deiliskipulags.
Bæjarstjórn Garðabæjar
11
18. (782). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um almenna kynningu samkvæmt 3. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 2 og 3.
Í tillögu varðandi Kauptún 2 er gert ráð fyrir byggingu bensínstöðvar í stað veitingastaðar og stækkun lóðar úr 4.200 m2 í 6.116 m2. Í skilmálum verða sett skilyrði um útlit á skyggni o.fl.
Í tillögu varðandi Kauptún 3 er gert ráð fyrir stækkun byggingarreits og breytingu á ákvæðum um fjölda bílastæða. Í skilmálum verða sett skilyrði um útlit o.fl.
Tillagan verður kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð.
Bæjarráð Garðabæjar
12
46. (1714). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um almenna kynningu samkvæmt 3. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 2 og 3.
Í tillögu varðandi Kauptún 2 er gert ráð fyrir byggingu bensínstöðvar í stað veitingastaðar og stækkun lóðar úr 4.200 m2 í 6.116 m2. Í skilmálum verða sett skilyrði um útlit á skyggni o.fl.
Í tillögu varðandi Kauptún 3 er gert ráð fyrir stækkun byggingarreits og breytingu á ákvæðum um fjölda bílastæða. Í skilmálum verða sett skilyrði um útlit o.fl.
Tillagan verður kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
17. fundur
Kauptún 2
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 2. Gert er ráð fyrir því að í stað 4.200 m2 lóðar með hámaksbyggingarmagni 1.000 komi 6.116 m2 lóð fyrir bensínstöð. Tillögu fylgir áhættumat vegna bensínstöðvar sem verkfræðistofan Mannvit hefur unnið. Niðurstaða matsins er sú að áhætturnar sem bensínstöð getur skapað séu viðundandi ef tekið er tillit til niðurstöðu matsins við hönnun.
Skipulagsnefnd leggur til að gerðar verði eftirtaldar breytingar á tillögunni:
-Að bætt verði við ákvæði þar sem lögð verður áhersla á vandaða hönnun á skyggni bensínstöðvarinnar. Lega bensínstöðvarinnar er áberandi við aðkomu í Kauptún og mikilvægt að útlit bensínstöðvarinnar sé í takt við þær metnaðarfullu kröfur sem deiliskipulagið gerir til hönnunar og yfirbragðs bygginga.
Kauptún 3
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 3. Skipulagsnefnd leggur til að gerðar verði eftirtaldar breytingar á tillögunni:
-Að ákvæði í kafla 6.6.1. og 6.6.5. um náttúrleg byggingarefni á 5 % framhliðar verði óbreytt. (leiðrétta þarf ósamræmi milli greinanna, þ.e. 5 % og 7 %)
-Að ákvæði í 1.mgr. 6.6.4. um skyggni yfir gangstétt sé óbreytt.
-Að ákvæði í 6.6.5 um gluggalausa og samfellda hluta sé óbreytt. Skipulagsnefnd mælir með að einhver sjónræn tengsl séu á langhlið á milli innra og ytra rýmis auk svæðis í kringum inngang.
-Líta skal á bygginguna Kauptún 3 sem tvo húshluta þannig að kröfur um hlutfall þátta eins og byggingarefna eða byggingarhluta eigi við hvora eign fyrir sig.
Skipulagsnefnd heimilar forkynningu tillagnanna fyrir Kauptún 2 og Kauptún 3 með ofangreindum breytingum í samræmi við 3.mgr. 40.gr. Skipulagslaga.
Tillagan skal vera hluti af heildarbreytingartillögu deiliskipulags Kauptúns ásamt með breytingum á lóð nr. 1 og 4 ásamt sem og lóð OR.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
15. fundur
Fulltrúar Costco gera grein fyrir hugmyndum fyrirtækisins um uppbyggingu verslunar á lóð nr 3 og eldsneytisstöðvar á lóð nr 2.
Fulltrúar Costco sem mættu til fundarins voru: Craig Huether ráðgjafi Costco, James Cheesemore hjá Costco í Bretlandi,Nick Deeks
Halldór Guðmundsson hjá THG og Kristján Örn Kjartansson hjá Krads
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.