Beint í efni

2. (785). fundur

21.01.2016
Bæjarstjórn Garðabæjar

2. (785). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

21.01.2016

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 7. janúar 2016 er lögð fram[line][line]Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs varðandi fyrirspurn um skipun starfshóps varðandi byggingu minjaskála.[line][line]Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sama mál og lagði til að tillögu um skipun starfshóps yrði vísað til afmælisnefndar.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál.[line][line]Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.[line][line]Jóna Sæmundsdóttir, ræddi sama mál.[line]

Dagskrá

Málsnúmer 1601014F

01

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 12/1 ´16.

María Grétarsdóttir, ræddi 28. tl., erindi húsfélagsins Smiðsbúð 12 varðandi álagningu fasteignagjalda og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Fólkið í bænum tekur undir sjónarmið hagsmunaðila að reglugerðin um fasteignaskatt nr. 116/2005 sé ekki nægjanlega skýr varðandi húsnæði sem flokkast hvorki sem atvinnuhúsnæði eða íbúðarhúsnæði. Nokkuð skýrt er þó að við setningu reglugerðarinnar hafi verið haft í huga að álagi væri bætt á húsnæði sem beri tekjur. Garðabær virðist taka tillit til framangreindra annmarka reglugerðarinnar hvað varðar hesthús þar sem álagning er 0,5% en ekki 1, 65% eða 0,24% Fólkið í bænum óskar eftir að skoðað verði hjá Garðabæ hvort álagning á húsnæði sem geymir aðra fáka en þá sem eru lifandi geti fallið í sama gjaldflokk og hesthús eða 0,5%. það er ósanngjarnt að húsnæði sem eingöngu er notað sem geymslur eða bílskúrar beri sömu fasteignagjöld og húsnæði sem notað er í atvinnurekstri og aflar tekna.“

Fundargerðin sem er 28 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1601025F

02

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 19/1 ´16.

Steinþór Einarsson, bréf, ræddi 11. tl., bréf velferðarráðuneytisins varðandi samning um yfirtöku ríkisins á rekstri Ísafoldar.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sama mál.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5,. tl., bréf SSH um tillögu stjórnar vegna samkomulags um sameiginlega ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulags Kauptúns og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Bjartri framtíð líst illa á tillögur að breytingum á bæði deili- og aðalskipulagi Kauptúns. Byggingarmagn svæðisins hefur nú tvöfaldast frá upphaflegum áætlunum og allar áherslur um náttúruvænt og látlaust skipulag virðast fyrir löngu horfnar. Í næsta nágrenni Kauptúns rís Urriðaholtið sem fylgir ýtrustu kröfum um umhverfisvernd og svæðið allt er skipulagt þannig að það hafi sem minnst neikvæð áhrif á umhverfið. Urriðaholtið er fyrsta hverfið á Íslandi til að fá sérstaka vistvottun skipulags. Er það virkilega vilji Garðbæinga að þarna í næsta nágrenni rísi bensínstöð og dekkjaverkstæði? Fyrstu áætlanir um Kauptúnið fylgdu mun strangari reglum um umhverfisvernd. Áður var það t.d. illa séð að rekstraraðili setti upp áfyllingarstöð, þótt það hafi á endanum verið leyft að uppfylltum ströngum kröfum. Nú á ein stærsta bensínstöð landsins að rísa þarna án nokkurra sýnilegra krafna annarra en þeirra að menn vandi sig. Er Kauptúnið ekki að verða frekar mikil tímaskekkja þegar helstu áherslur ríkja og sveitarfélaga heimsins í dag snúast um vistvænni lífstíl og umhverfisvernd? Þurfum við fleiri bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu? Væri ekki nær að auka framboðið á vistvænum orkugjöfum? Allt eru þetta spurningar sem við vildum sjá svarað í samtali við íbúa áður en farið verður í frekari framkvæmdir á svæðinu. Björt framtíð hvetur bæjarstjórn til að vanda hér til verka og samþykkja ekki þessar breytingartillögur fyrr en þær hafa fengið ítarlegri málsmeðferð.“

Sigurður Guðmundsson, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulags Kauptúns og framkomna bókun.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls að nýju.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls að nýju.

María Grétarsdóttir, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulags Kauptúns og boðaði hjásetu við afgreiðslu málsins.

Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1601003F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 7/1 ´16

Gunnar Valur Gíslason, vakti athygli á að UMF Álftaness er 70 ára um þessar mundir.

Bæjaarstjórn samþykkir að senda félaginu hamingjuóskir af þessu tilefni.

Halldór Jörgensson, ræddi 1.tl., kjör íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar 2015. Halldór sendi þeim Andreu Sif Pétursdóttur, og Dagfinni Ara Normann hamingjuóskir bæjarstjórnar og óskaði öðrum verðlaunaþegum til hamingju með þeirra viðurkenningar.

Gunnar Einarsson, tók til máls.

Halldór Jörgensson, tók til máls.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1511022F

04

Fundargerð leikskólanefndar Garðabæjar frá 11/1 ´16.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi fjárhæð leikskólagjalda.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.

Halldór Jörgensson, ræddi sama mál.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601006F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 7/1 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601021F

06

Fundargerð skipulagsnefndar frá 14/1 ´16.

Fundargerðin lögð fram.



Málsnúmer 1601267

07

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 8/1 ´16.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., akstursútboð.

Fundargerðin lögð fram

Málsnúmer 1601353

08

Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 15/1 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601366

09

Fundargerð stjórnar SSH frá 11/1 ´16.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., tekjustofna sveitarfélaga.

Steinþór Einarsson, ræddi sama mál.

Fundargerðin lögð fram.