Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 12/1 ´16.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
2. (785). fundur
María Grétarsdóttir, ræddi 28. tl., erindi húsfélagsins Smiðsbúð 12 varðandi álagningu fasteignagjalda og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Fólkið í bænum tekur undir sjónarmið hagsmunaðila að reglugerðin um fasteignaskatt nr. 116/2005 sé ekki nægjanlega skýr varðandi húsnæði sem flokkast hvorki sem atvinnuhúsnæði eða íbúðarhúsnæði. Nokkuð skýrt er þó að við setningu reglugerðarinnar hafi verið haft í huga að álagi væri bætt á húsnæði sem beri tekjur. Garðabær virðist taka tillit til framangreindra annmarka reglugerðarinnar hvað varðar hesthús þar sem álagning er 0,5% en ekki 1, 65% eða 0,24% Fólkið í bænum óskar eftir að skoðað verði hjá Garðabæ hvort álagning á húsnæði sem geymir aðra fáka en þá sem eru lifandi geti fallið í sama gjaldflokk og hesthús eða 0,5%. það er ósanngjarnt að húsnæði sem eingöngu er notað sem geymslur eða bílskúrar beri sömu fasteignagjöld og húsnæði sem notað er í atvinnurekstri og aflar tekna.“
Fundargerðin sem er 28 tl., er samþykkt samhljóða.