Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 19/1 ´16.

Málsnúmer 1601025F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. (785). fundur

Steinþór Einarsson, bréf, ræddi 11. tl., bréf velferðarráðuneytisins varðandi samning um yfirtöku ríkisins á rekstri Ísafoldar.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sama mál.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5,. tl., bréf SSH um tillögu stjórnar vegna samkomulags um sameiginlega ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulags Kauptúns og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Bjartri framtíð líst illa á tillögur að breytingum á bæði deili- og aðalskipulagi Kauptúns. Byggingarmagn svæðisins hefur nú tvöfaldast frá upphaflegum áætlunum og allar áherslur um náttúruvænt og látlaust skipulag virðast fyrir löngu horfnar. Í næsta nágrenni Kauptúns rís Urriðaholtið sem fylgir ýtrustu kröfum um umhverfisvernd og svæðið allt er skipulagt þannig að það hafi sem minnst neikvæð áhrif á umhverfið. Urriðaholtið er fyrsta hverfið á Íslandi til að fá sérstaka vistvottun skipulags. Er það virkilega vilji Garðbæinga að þarna í næsta nágrenni rísi bensínstöð og dekkjaverkstæði? Fyrstu áætlanir um Kauptúnið fylgdu mun strangari reglum um umhverfisvernd. Áður var það t.d. illa séð að rekstraraðili setti upp áfyllingarstöð, þótt það hafi á endanum verið leyft að uppfylltum ströngum kröfum. Nú á ein stærsta bensínstöð landsins að rísa þarna án nokkurra sýnilegra krafna annarra en þeirra að menn vandi sig. Er Kauptúnið ekki að verða frekar mikil tímaskekkja þegar helstu áherslur ríkja og sveitarfélaga heimsins í dag snúast um vistvænni lífstíl og umhverfisvernd? Þurfum við fleiri bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu? Væri ekki nær að auka framboðið á vistvænum orkugjöfum? Allt eru þetta spurningar sem við vildum sjá svarað í samtali við íbúa áður en farið verður í frekari framkvæmdir á svæðinu. Björt framtíð hvetur bæjarstjórn til að vanda hér til verka og samþykkja ekki þessar breytingartillögur fyrr en þær hafa fengið ítarlegri málsmeðferð.“

Sigurður Guðmundsson, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulags Kauptúns og framkomna bókun.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls að nýju.

Sigurður Guðmundsson, tók til máls að nýju.

María Grétarsdóttir, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulags Kauptúns og boðaði hjásetu við afgreiðslu málsins.

Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.