Beint í efni

46. (1714). fundur

01.12.2015
Bæjarráð Garðabæjar

46. (1714). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

01.12.2015

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1507124

01

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um almenna kynningu samkvæmt 3. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 1. Í tillögunni er lögð til stækkun á lóð og byggingarreit. Í skilmálum verða sett skilyrði um útlit, ákvæði um fjölda bílastæða o.fl. Í tillögunni er ekki fallist á erindi lóðarhafa um stækkun lóðar samsíða Urriðaholtsbraut og erindi um skiltaturn.

Tillagan verður kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 2 og 3 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511026

02

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um almenna kynningu samkvæmt 3. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 2 og 3.

Í tillögu varðandi Kauptún 2 er gert ráð fyrir byggingu bensínstöðvar í stað veitingastaðar og stækkun lóðar úr 4.200 m2 í 6.116 m2. Í skilmálum verða sett skilyrði um útlit á skyggni o.fl.

Í tillögu varðandi Kauptún 3 er gert ráð fyrir stækkun byggingarreits og breytingu á ákvæðum um fjölda bílastæða. Í skilmálum verða sett skilyrði um útlit o.fl.

Tillagan verður kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511301

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um almenna kynningu samkvæmt 3. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna nýrrar lóðar fyrir dælustöð.

Tillagan verður kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2 og 3.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1506139

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016 vegna Kauptúns.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um kynningu samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Kauptúns. Auk þess að kynna tillöguna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd.

Tillagan skal kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2,3 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511300

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Viðskiptastrætis Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 6-8 og 10-12. Í tillögunni er gert ráð fyrir að lóðin við U 6-8 stækki en lóðin U 10-12 minnki sem því nemur og byggingarreitur skerðist.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511324

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar um deiliskipulag Bústaðavegar og Reykjanesbrautar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi athugasemdir við tillögu um gatnamót samkvæmt tillögu Reykjavíkur að breytingu á deiliskipulagi Bústaðavegar og Reykjanesbrautar og að jafnframt verði send fyrirspurn um málið til umfjöllunar svæðisskipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510204

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Brekkugata/Mosagata Urriðaholt norður 2.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna tilfærslu á gatnamótum Brekkugötu og Mosagötu og brottfalls einbýlishúsalóðar við Brekkugötu 6.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511337

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga vegna lóðanna við Mosagötu 1-7.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511334

09

Bréf Kvenfélags og Lionsklúbbs Álftaness um þorrablót í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi 2016, dags. 23.11.15.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra afgreiðslu þess.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511360

10

Bréf frá Jakobstad um vinabæjamót í júlí 2016, dags. 18.11.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til umfjöllunar ungmennaráðs vegna þátttöku ungs fólks í dagskrá vinabæjarmótsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511298

11

Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, dags. 20.11.15.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511354

12

Tilkynning innanríkisráðuneytis um breytingar á lögræðislögum, dags. 23.11.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar fjölskyldusviðs og til kynningar í fjölskylduráði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511308

13

Fyrirspurn frá Fólkinu í bænum varðandi gagnsæja stjórnsýslu við kynningu á tillögu um staðsetningu á fjölnota íþróttahúsi, dags. 24.11.15.

Bæjarstjóra falið að svara fyrirspurninni.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503196

14

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 (2017-2019)

Lögð fram drög að tillögu um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun 2016, (2017-2019).

Lögð fram tillaga að álagningu fasteignagjalda árið 2016.

Lögð fram tillaga að framkvæmdayfirliti.

Bæjarráð vísar framkomnum tillögum til afgreiðslu bæjarstjórnar við síðari umræðu um fjárhagsáætlun sem fyrirhuguð er 3. desember 2015.