Beint í efni

Kauptún 1 - breyting á dsk Kauptúns

Málsnúmer 1507124

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns. Kynning tillögunnar fór fram frá 1.febrúar til 14.mars. Tvö athugasemdabréf hafa borist og þau lögð fram. Lögð fram greinargerð unnin á vegum skipulagsstjóra þar sem lagðar eru fram tillögur að viðbrögðum við athugasemdum og svör við þeim.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með þeim lagfæringum sem lagðar eru til í greinargerð í samræmi við 2.mgr. 41.gr. Skipulagslaga.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns að lokinni kynningu sem stóð frá 1.febrúar til 14.mars. Tvö athugasemdabréf hafa borist og þau lögð fram. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Skipulagsnefnd heimilar auglýsingu tillögunnar með þeim breytingum sem fram koma undir fundarlið nr. 1 í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga. Auglýsa skal breytingartillöguna samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 1. Forkynning tillögunnar var auglýst með áberandi hætti þann 11.desember og stóð hún til 6.janúar. Tillaga að aðalskipulagsbreytingu var forkynnt samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Kauptúns. Haldinn var sérstakur kynningarfundur fyrir rekstaraðila í Kauptúni. Lagðar fram ábendingar sem borist hafa á forkynningartíma. Tillögunni ásamt ábendingum vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissvið ásamt öðrum öðrum tillögum að breytingu deiliskipulags.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

18. (782). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

18. (782). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um almenna kynningu samkvæmt 3. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 1. Í tillögunni er lögð til stækkun á lóð og byggingarreit. Í skilmálum verða sett skilyrði um útlit, ákvæði um fjölda bílastæða o.fl. Í tillögunni er ekki fallist á erindi lóðarhafa um stækkun lóðar samsíða Urriðaholtsbraut og erindi um skiltaturn.
Tillagan verður kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 2 og 3 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð.

Bæjarráð Garðabæjar

07

46. (1714). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um almenna kynningu samkvæmt 3. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 1. Í tillögunni er lögð til stækkun á lóð og byggingarreit. Í skilmálum verða sett skilyrði um útlit, ákvæði um fjölda bílastæða o.fl. Í tillögunni er ekki fallist á erindi lóðarhafa um stækkun lóðar samsíða Urriðaholtsbraut og erindi um skiltaturn.
Tillagan verður kynnt samhliða tillögum að breytingum á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 2 og 3 og nýrrar lóðar fyrir dælustöð.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

17. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 1. Skipulagsnefnd leggur til að gerðar verði eftirtaldar breytingar á tillögunni:
-Að stækkun byggingarreits fari ekki nær lóðarmörkun að Urriðaholtsstræti en 10 m og að ákvæði verði um stóran glugga hliðinni sem snýr að Urriðaholtsstræti. (áður en tillagan verður kynnt þarf umsækjandi að láta gera þrívíddarmyndir af hugsanlegri stækkun og hvernig landslag verður mótað að Urriðaholtsstræti og byggingu við Jónasartorg.)
-Að heildar gólfflötur í kafla 4.1. , 4..2 og 6.3. í deilskipulagsskilmálum verði breytt til samræmis við minnkun byggingareits sem sótt var um.
-Að stærð lóðar breytist miðað við minni byggingarreit og heildarfjölda fermetra og kröfur um fjölda bílastæða.
-Að ákvæði um skiltaturn verð fellt út.
Skipulagsnefnd heimilar forkynningu tillögu fyrir Kauptún 1. í samræmi við 3.mgr. 40.gr. Skipulagslaga með ofangreindum breytingum. Tillagan skal vera hluti af heildarbreytingartillögu deiliskipulags Kauptúns ásamt með breytingum á lóð nr. 2, nr. 3 og og nr. 4 sem og lóð fyrir OR.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

15. fundur

Fulltrúar RIF 1 gera grein fyrir hugmyndum fyrirtækisins um uppbyggingu á lóðinni Kauptún 1 sem kallar á aðalskipulags og deiliskpulagsbreytingu.
Fulltrúar RIF 1 sem mættu til fundarins voru: John Jacobsen,
Björn Björnsson og Egill Guðmundsson Arkís
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

10

15. (779). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

15. (779). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2, 3 og lóðar fyrir dælustöð. Lýsingin skal send til umsagnar hjá Skipulagsstofnun, svæðisskipulagsnefnd og öðrum hagsmunaðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

15. (779). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

13

39. (1707). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2, 3 og lóðar fyrir dælustöð. Lýsingin skal send til umsagnar hjá Skipulagsstofnun, svæðisskipulagsnefnd og öðrum hagsmunaðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

14

28. (1696). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl