Beint í efni

39. (1707). fundur

13.10.2015
Bæjarráð Garðabæjar

39. (1707). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

13.10.2015

Kl. 08:00 - 09:40

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1507130

01

Holtsvegur 37 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir hækkun fjölbýlishússins við Holtsveg 37 um eina hæð og fjölgun íbúða um þrjár eða úr 18 í 21.

Málsnúmer 1507158

02

Holtsvegur 1 (3-5) - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 21 íbúð við Holtsveg 1-3.

Málsnúmer 1507129

03

Holtsvegur 39 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir hækkun fjölbýlishússins við Holtsveg 39 um eina hæð og fjölgun íbúða um tvær eða úr 9 í 11.

Málsnúmer 1509062

04

Lambhagi 6 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna umsóknar um byggingarleyfi í hverfi sem ekki liggur fyrir deiliskipulag sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1510037

05

Bréf Hjálparsveitar skáta um styrk, dags. 25.09.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510029

06

Bréf KFUM og KFUK um styrk til nýbyggingar í Vatnaskógi, dags 30.09.15.

Málsnúmer 1510077

07

Bréf samskiptamiðstöðvar um túlkaþjónustu vegna tómstunda- og menningarviðburða, dags. 01.10.15.

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til fjölskyldusviðs og fræðslu- og menningarsviðs og felur sviðsstjórum afgreiðslu þess með hliðsjón af atburðum eða tilvikum hverju sinni.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504231

08

Samstarfsamningur sveitarfélaga og menntavísindasviðs Háskóla Íslands um rannsóknir í leikskólum

Málsnúmer 1510048

09

Fundargerð aðalfundar fulltrúaráðs EBÍ,dags. 23.09.15.

Málsnúmer 1510090

10

Bréf EBI um ágóðahlutagreiðslu 2015, dags. 06.10.15.

Lagt fram bréf EBÍ þar sem fram kemur að greiðsla á ágóðahlut Garðabæjar árið 2015 nemur kr. 1.810.000.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510110

11

Bréf Ólafs Grétars Gunnarssonar varðandi námskeið fyrir foreldra og börn, dags. 09.10.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 og til kynningar í fjölskylduráði og mannréttinda- og forvarnarnefnd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1305618

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu um forkynningu deiliskipulags Vífilsstaðavegar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá gerð skipulagslýsingar vegna tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar samkvæmt heimild í 2. ml. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir bæjarráð að leggja til við bæjarstjórn að tillagan verði kynnt íbúum og öðrum hagsmunaðilum samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.

Málsnúmer 1310283

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan geri ráð fyrir breytingu á lögun byggingarreits, fækkun íbúða en óbreyttu byggingarmagni. Á kynningartíma bárust athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til með afgreiðslu skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1507027

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis vegna lóðarinnar við Klettás 2.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis vegna lóðarinnar við Klettás 2. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1506140

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi byggingu reiðgerðis á hesthúsasvæði Sóta.

Málsnúmer 1509207

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar um að breyta númeri lóðarinnar við Nýhöfn 13 í Nýhöfn 7.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að breyta númeri lóðarinnar við Nýhöfn 13 í Nýhöfn 7.

Málsnúmer 1308037

17

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Hlið á Álftanesi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að að deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1506139

18

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytinga á deiliskipulagi Kauptúns.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2, 3 og lóðar fyrir dælustöð. Lýsingin skal send til umsagnar hjá Skipulagsstofnun, svæðisskipulagsnefnd og öðrum hagsmunaðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1507124

19

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skipulagslýsingu vegna breytingar á deilisikipulagi Kauptúns.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2, 3 og lóðar fyrir dælustöð. Lýsingin skal send til umsagnar hjá Skipulagsstofnun, svæðisskipulagsnefnd og öðrum hagsmunaðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510113

20

Bréf Samgöngustofu varðandi ástand gróðurs og umferðaröryggi, dags. 28.09.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfissviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510103

21

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi móttöku á flóttamönnum, dags. 06.10.15.

Málsnúmer 1507031

22

Bréf velferðarráðuneytis varðandi afgreiðslu umsóknar um styrk til úttekta í aðgengismálum, dags. 25.09.15.

Málsnúmer 1509239

23

Minnisblað starfshóps um ljósleiðaravæðingu.

Á fund bæjarráðs mætti Guðfinna B. Kristjánsdóttir, upplýsingastjóri og gerði grein fyrir minnisblaði starfshóps um ljósleiðarvæðingu þar sem gerð er grein fyrir viðræðum við GR og Mílu um stöðu mála varðandi framkvæmdir við lagningu ljósleiðar til heimila, fyrirtækja og stofnana í bænum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510115

24

Bréf Félags eldri borgara á Álftanesi um bættar samgöngur á Álftanesi, dags. 07.10.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503011

25

Afgreiðsla skólanefndar varðandi úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ.

Lögð fram afgreiðsla skólanefndar um úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla.

Skólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 5.040.000 úr sjóðnum til 10 verkefna.

Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um Þróunarsjóð grunnskóla.

Fylgiskjöl