Beint í efni

Strikið 1-3, breyting á dsk Sjálands

Málsnúmer 1310283

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (779). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

15. (779). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan geri ráð fyrir breytingu á lögun byggingarreits, fækkun íbúða en óbreyttu byggingarmagni. Á kynningartíma bárust athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til með afgreiðslu skipulagsnefndar. María Grétarsdóttir situr hjá

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

15. (779). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

04

39. (1707). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan geri ráð fyrir breytingu á lögun byggingarreits, fækkun íbúða en óbreyttu byggingarmagni. Á kynningartíma bárust athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til með afgreiðslu skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

9. fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1 verði auglýst að nýju samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.

Bæjarráð Garðabæjar

06

20. (1688). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1 verði auglýst að nýju samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. laganna.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Sjálands sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 7.maí sl. Skipulagsstofnun hefur gert athugasemdir við þau gögn sem lögð voru til grundvallar við samþykkt málsins þar sem að sú bygging sem sýnd er fyrir breytingu er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag og getur því talist villandi.$line$Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til kynningar að nýju í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga ásamt réttum og skilmerkilegum skýringarmyndum um áhrif breytingarinnar á skuggavarp, hljóðvist og vindafar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

7. fundur

Fyrir er tekin tillaga skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1. Í tillögunni er gert ráð fyrir breytingu á lögun byggingarreits lóðarinnar við Strikið 1 og fækkun íbúða úr 56 í 42 en óbreytta stærð á heildaríbúðarými vegna stækkunar íbúða.$line$$line$Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1 samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

09

39 (1659). fundur

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Sjálands sem næst til lóðarinnar Strikið 1-3 að lokinni kynningu skv. 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga. Innsendar athugasemdir lagðar fram og minnisblað Arcus sem sýnir áhrif breytingarinnar á skuggavarp, minnisblað Verkís sem sýnir áhrif breytingarinnar á hljóðvist og minnisblað Krabbenhöft+Ingólfsson sem sýnir áhrif breytingarinnar á vindafar.$line$Með vísan í framlögð minnisblöð er það mat nefndarinnar að breytingin hafi ekki neikvæð áhrif á aðliggjandi lóðir.$line$Skipulagsnefnd samþykktir tillöguna óbreytta í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

13. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir breytingu á lóðinni Strikið 1-3. Tillagan var í kynningu frá 14.apríl til 26.maí sl. Athugasemdir bárust frá stjórn Húsfélagsins að Löngulínu 2 sem beindust að áhrifum breytingarinnar á skuggavarp, vindafar, hjóðvist og útsýni. Lögð fram minnisblöð þar sem sýnt er fram á áhrif breytingarinnar á skuggvarp og vindafar. Skipulagsnefnd óskar eftir sambærilegu minnisblaði um áhrif breytingarinnar á hljóðvist eins og bent er á í athugasemdum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Sjálands sem nær til loðarinnar Strikið 1-3 að lokinni kynningu skv 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga. Kynning fór fram 14.apríl til 26.maí. Athugasemdir bárust frá stjórn Húsfélagsins að Löngulínu 2. Í erindi húsfélagsins eru gerðar athugasemdir við áhrif breytingarinnar á skuggavarp, vindafar,hljóðvist og útsýni.$line$Lagðar fram teikningar sem umsækjandi hefur látið útbúa sem sýna áhrif á skuggavarp.$line$Skipulagsnefnd beinir því til umsækjanda að lögð verði fram skoðun á áhrif breytingar á hljóðvist og vindafar. Aðrar ábendingar sem koma fram í erindi varða ekki breytinguna.

Bæjarráð Garðabæjar

13

7. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að að auglýst verði kynning á tillögu um breytingu á skipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1 samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

14

3. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Sjálands sem nær til lóðarinnar Strikið 1-3. Gert er ráð fyrir því að byggingarreitur fjölbýlishúss breytist og aðkoma og fyrirkomulag bílastæðakjallara. Byggingarmagn er óbreytt.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að heimila kynningu á tillögunni í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

16. fundur

Lagðar fram hugmyndir Guðumundar Gunnlaugssonar arkitekts að breytingu á deiliskipulagi Sjálands sem nær til lóðarinnar Strikið 1-3. Lögð fram umsögn Bjarnar Ólafs deiliskipulagshöfundar um tillöguna. Skipulagsnefnd telur að skoða þurfi vel áhrif aukins byggingarmagns samkæmt hugmyndunum. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.