7. fundur
7. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
18.02.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1401752
01
Aðgerðaráætlun vegna hávaða samkvæmt rgg. 1000/2005
Bæjarverkfræðingur upplýsti að á kynningartíma aðgerðaráætlunarinnar kom fram athugasemd frá íbúum við Laufás 4 en vegna mistaka hafi ekki verið gerð grein fyrir henni við fyrirtekt málsins á fundi bæjarráðs 29. janúar sl.$line$$line$Í tilefni af athugasemdinni samþykkir bæjarráð tillögu bæjarverkfræðings um að á bls. 11 í kafla um verkefni í undirbúningi komi nýr liður er hljóði svo:$line$$line$?f. Veggur /varnir við Hafnarfjarðarveg á Hraunsholti.?$line$$line$Bæjarráð felur bæjarverfræðingi að gera íbúum grein fyrir afgreiðslu málsins og að senda áætlunina með samþykktri breytingu til Umhverfisstofnunar.
Málsnúmer 1401647
02
Svar við fyrirspurn varðandi deiliskipulag Ása og Grund - Arnarnesvogur, dags. 13. febrúar 2014.
Lagt fram.
Málsnúmer 1402324
03
Bréf Golfklúbbs Álftaness varðandi golfvöll klúbbsins, dags. 12.02.2014.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við forsvarsmenn bréfritara.$line$$line$Bæjarráð samþykir að vísa málinu til bæjarstjóra í tengslum við viðræður við landeigendur. Þá vísar bæjarráð málinu til kynningar ÍTG og til skipulagsnefndar vegna vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
Málsnúmer 1401425
04
Samþykkt bæjarstjórnar um skipun starfshóps til að undirbúa byggingu knatthúss, dags. 17.01.2014.
Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi fulltrúa í starfshóp til að undirbúa byggingu knatthúss.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóra, Stefán Snær Konráðsson, bæjarfulltrúa, Sigurður Guðmundsson, formann ÍTG og Maríu Grétarsdóttur, bæjarfulltrúa.$line$$line$Lagt fram bréf UMF Stjörnunnar, dags. 14. febrúar sl. þar sem tilkynnt er að Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður hafi verið tilnefndur sem fulltrúi félagsins til setu í starfshópnum$line$$line$Með hópnum starfar Kári Jónsson, íþróttafulltrúi og þá hefur Baldur Ó Svavarsson, arkitekt verið ráðinn til að starfa með starfshópnum.
Málsnúmer 1402312
05
Bréf Kauphallarinnar varðandi birtingu ársreikninga, ódags.
Lagt fram.
Málsnúmer 1305491
06
Undirbúningur að hönnun og framkvæmdum við nýjan skóla í Urriðaholti
Bæjarstjóri sagði frá undirritun ráðgjafasamnings um hönnun Urriðaholtsskóla en samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir að fullnaðarhönnun verði lokið 1. desember 2014 og í framhaldinu fari fram útboð vegna framkvæmda.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að verkefnastjórn sem vann að gerð útboðslýsingar starfi áfram og stýri verkefninu en hana skipa Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, Eysteinn Haraldsson, bæjarverkfræðingur, Margrét Björk Svavarsdóttir, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs og Jón Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Urriðaholts.$line$$line$Bæjarráð fer með hlutverk byggingarnefndar skólans.
Málsnúmer 1310283
07
Afgreiðsla skipulagnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Sjálands - Strikið 1-3, dags. 13.02.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að að auglýst verði kynning á tillögu um breytingu á skipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1 samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1401171
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Kjóavelli, Kópavogi, tillaga að deiliskipulagsbreytingu vegna áhaldahúss, dags. 13.02.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að ekki sé tímabært að ráðstafa svo stórum hluta miðsvæðis á Kjóavöllum undir starfsemi áhaldahúss sem tengist ekki meginstarfsemi svæðisins sem er hestamennska.
Málsnúmer 1401051
09
Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 07.02.-14.02.2014.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 07.02. ? 14.02.2014 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Dalakur 10 og Nýhöfn 2 - 6.
Málsnúmer 1401773
10
Tilboð í íbúðir við Lækjarfit 7
Lögð fram gagntilboð um sölu tveggja íbúða við Lækjarfit 7.$line$$line$Bæjarráð hafnar tilboðunum og felur bæjarstjóra að halda áfram viðræðum við eigendur um kaup á viðkomandi eignunum.