Beint í efni

Kjóavellir Kópavogi tillaga að dsk br v áhaldahúss

Málsnúmer 1401171

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að mæla gegn breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla vegna hugmynda bæjaryfirvalda í Kópavogi um byggingu áhaldahúss á miðsvæði hesthúsabyggðarinnar við Kjóavelli.

Bæjarráð Garðabæjar

02

12. (1680). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að mæla gegn breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla vegna hugmynda bæjaryfirvalda í Kópavogi um byggingu áhaldahúss á miðsvæði hesthúsabyggðarinnar við Kjóavelli.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

3. fundur

Lögð fram tillaga Kópavogsbæjar að breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla sem gerir ráð fyrir áhaldshúsi Kópasvogsbæjar á Miðsvæði hesthúsabyggðarinnar. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem fram kemur að ekki er talið tímabært að ráðstafa svo stórum hluta svæðis á miðsvæði Kjáovalla undir starfsemi sem ekki tengist hestamennsku. Skipulagsnefnd telur að tillagan sé í hróplegri andstöðu við megin markmið deiliskipulagsins sem var að stuðla að uppbygginu svæðisns sem væri í fremstu röð hesthúsabyggða á landinu.$line$Auk þess telur skipulagsnefnd að allar breytingartillögur sem gerðar eru á deiliskipulaginu skulu unnar af deiliskipulagsráðgjafa eins og lagt var upp með við gerð deiliskipulagsins.$line$Tillögunni er hafnað.

Bæjarráð Garðabæjar

04

7. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að ekki sé tímabært að ráðstafa svo stórum hluta miðsvæðis á Kjóavöllum undir starfsemi áhaldahúss sem tengist ekki meginstarfsemi svæðisins sem er hestamennska.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

3. fundur

Lögð fram tillaga að breyting á deiliskipulagi Kjóavalla sem gerir ráð fyrir því að áhaldahús Kópavogsbæjar verði staðsett í þjónustukjarna svæðisins sem kallar á breytingu á lóðum og bílastæðum. Lagt fram minnisblað deiliskipulagshöfundar Odds Hermannssonar hjá Landformi ehf. Skipulagsnefnd tekur undir öll þau sjónarmið sem fram koma í framlögðu minnisblaði og gera þau að sínum.