3. fundur
3. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
13.02.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stefán Snær Konráðsson - formaður
- Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Björn Hilmarsson - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1211355
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016 breyting á opnu svæði á Arnarneshæð
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 sem nær til Arnarness. Tillagan var í kynningu frá 4.júní til 27.ágúst 2013 samhliða kynningu á tillögu að deiliskipulagi Arnarness. Alls bárust 12 athugasemdabréf við tillögurnar sem unnið hefur verið úr. Af þeim erindum varða 4 aðalskipulagstillöguna. Lögð fram tillaga að greinargerð dags. 2014 þar sem athugasemdum sem bárust vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi og vegna tillögu að deiliskipulagi er svarað fyrir hönd bæjarstjórnar.$line$Innsendar athugasemdir kalla ekki á breytingu tillögunnar að mati nefndar. Tillagan er samþykkt einróma í samræmi við 1.mgr.32.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2010120061
02
Arnarnes nýtt dsk
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarness sem var í kynningu frá 4.júní til 27.ágúst samhliða kynningu á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016. Alls bárust 12 athugasemdabréf við tillögurnar undirrituð af 27 einstaklingum. Einnig bárust áskoranir til bæjarstjórnar síðasliðið vor áður en tillagan var kynnt undirritaðar af 41 einstaklingi. Innsendar athugasemdir og áskoranir lagðar fram. Lögð fram tillaga að greinargerð dags. 2014 þar sem athugasemdum sem bárust vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi og vegna tillögu að deiliskipulagi er svarað fyrir hönd bæjarstjórnar. Skipulagsnefnd leggur til að tekið verði tillit til athugasemdar G þar sem það sjónarmið kemur fram að það felist stílbrot í því að skilgreina svæðið undir fjölbýlishús (klasahús) þar sem að Arnarnes hafi einkennst af einbýlishúsabyggð. Gera skal þá breytingu á tillögunni að þar verði gert ráð fyrir 4 einbýlishúsalóðum með sama fyrirkomulegi og er í Hegranesi að austanverðu. Húsakönnun Arnarness liggur fyrir.$line$Skipulagsnefnd samþykkir einróma tillögu að deiliskipulagi Arnarness með þeim breytingum sem komu fram í bókun síðasta fundar og ofangreindri breytingu í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/210.
Málsnúmer 1401505
03
Holtsvegur 37 og 39, dsk br Vesturhluti Urriðaholts
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort nefndin gæti fallist á setja tillögu um viðbótarhæð ofan á fjölbýlishúsin Holtsveg 37 og 39 sem standa beggja vegan Urriðakotsstígs.$line$Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði. Afla skal umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Málsnúmer 1402138
04
Silfurtún, deiliskipulag, breyting vegan hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir því að skipualagssvæðið verði stækkað til norðvesturs að Hafnarfjarðarvegi og þar gert ráð fyrir hljóðvörnum. Tillögu fylgdi tillaga að útfærslu Þráins Haukssonar hjá Landslagi á hljóðvörnum sem samanstanda af hljóðvarnarmön og hljóðvarnarvegg. Skipulagsnefnd mælist til þess að skoðað verði betur hvernig útfæra megi hljóðvarnir og taka meira tillit til útsýnis. Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 1310283
05
Strikið 1-3, breyting á dsk Sjálands
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Sjálands sem nær til lóðarinnar Strikið 1-3. Gert er ráð fyrir því að byggingarreitur fjölbýlishúss breytist og aðkoma og fyrirkomulag bílastæðakjallara. Byggingarmagn er óbreytt.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að heimila kynningu á tillögunni í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1312449
06
Urriðaholt - Losun jarðvegs- framkvæmdaleyfi.
Lögð fram umsókn Urriðaholts um framkvæmdaleyfi fyrir losun jarðvegs í Urriðakotsdal sunnan golfvallar og vestan Elliðavatnsvegar í samræmi við framlögð gögn. Skipualagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.grein Skipulagsaga nr. 123/2010 með fyrirvara um umsögn Vegagerðar og Minjastofnunar vegan fornleifa.
Málsnúmer 1401171
07
Kjóavellir Kópavogi tillaga að dsk br v áhaldahúss
Lögð fram tillaga að breyting á deiliskipulagi Kjóavalla sem gerir ráð fyrir því að áhaldahús Kópavogsbæjar verði staðsett í þjónustukjarna svæðisins sem kallar á breytingu á lóðum og bílastæðum. Lagt fram minnisblað deiliskipulagshöfundar Odds Hermannssonar hjá Landformi ehf. Skipulagsnefnd tekur undir öll þau sjónarmið sem fram koma í framlögðu minnisblaði og gera þau að sínum.
Málsnúmer 1305130
08
Kaplakriki, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga að breyting á deiliskipulagi Kaplakrika í Hafnarfirði við mörk að Garðabæ sem er í kynningu til 23.febrúar. Lagt fram minnisblað verkfræðistofunnar Eflu. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.