Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi vegna losun jarðvegs í Urriðaholti
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
11. fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita Urriðaholt ehf. framkvæmdaleyfi vegna losunar jarðvegs..$line$$line$Fyrir liggur jákvæð umsögn Vegagerðarinnar og umsögn fornleifafræðings.$line$$line$Framkvæmdaleyfisgjald er kr. 68.878
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
3. fundur
Lögð fram umsókn Urriðaholts um framkvæmdaleyfi fyrir losun jarðvegs í Urriðakotsdal sunnan golfvallar og vestan Elliðavatnsvegar í samræmi við framlögð gögn. Skipualagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.grein Skipulagsaga nr. 123/2010 með fyrirvara um umsögn Vegagerðar og Minjastofnunar vegan fornleifa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
2. fundur
Bæjarverkfræðingur kynnti hugmyndir Urriðahholts ehf um losun jarðvegs í landi Urriðakots við golfvöll Odds.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
05
36. fundur
Erindi Jóns Pálma Guðmundssonar fyrir Urriðaholt ehf dags. 16. desember 2013 ásamt meðfylgjandi skýrslu: Sjálfbær nýting jarðvegs í Urriðaholti og nágrenni, des. 2013. Höfundur Edwin Roald golfvallarhönnuður fyrir Urriðaholt ehf.
Umhverfisnefnd sendir umsögn sína til bæjarráðs.$line$$line$Sigríður Erla vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð Garðabæjar
06
1. fundur
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir Urriðaholts um losun jarðvegs frá byggingarsvæði í Urriðaholti á svæði sunnan við golfvöll Odds. Í hugmyndunum er kynnt að akstursleið geti verið um göngustíg sem gert er ráð fyrir í aðalskipulagi í landi Setbergs.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar umhverfisnefndar og til kynningar í skipulagsnefnd. Jafnframt er bæjarverfræðingi falið að ræða við vegagerðina varðandi hugmyndir um hljóðmön við Elliðavatnsveg.