Beint í efni

36. fundur

14.01.2014
Umhverfisnefnd Garðabæjar

36. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

14.01.2014

Kl. 17:00 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
  • Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
  • Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sigurbjörn Ingimundarson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
  • Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1401221

01

Fjárveiting til umhverfismála 2014

Fjárveiting til umhverfismála 2014 lögð fram.

Umræður um málið.

Málsnúmer 1309195

02

Trjágróður í Garðabæ

Drög að texta um trjágróður í Garðabæ sem garðyrkjustjóri, umhverfisstjóri og EFLA ráðgjöf hafa unnið saman.

Nefndin vinnur að stefnu um trjágróður í Garðabæ.$line$Til skoðunar milli funda nefndarinnar.

Málsnúmer 1401188

03

Fundargerð Reykjanesfólksvangs - Skýrsla landvarðar 2013

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólksvangs 16. des. 2013 og skýrsla Reykjanesfólksvangs 2013 eftir Óskar Sævarsson landvörð.

Rætt var um hugmyndir sem fram komu í fundargerð stjórnar Fólkvangsins að breyta fyrirkomulagi á stjórnun og aðild að Fólkvangnum.

Málsnúmer 1311624

04

Skýrsla fornleifarannsókna á Hofsstöðum

Skýrsla um fornleifarannsóknir á Hofsstöðum frá 1994 sem Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur hefur umsjón með, lögð fram.

Þetta er samstarfsverkefni milli menningar- og safnanefndar og umhverfisnefndar sem áætlað er að vinnist 2013-2015.

Málsnúmer 1401222

05

Samráðshópur um Staðardagskrá 21

Fundargerð samráðshóps Staðardagskrár 21 er haldinn var í Garðabæ þann 13. janúar 2014.

Umhverfisstjóri kynnti málefni er fjallað var um á fundinum.

Málsnúmer 1312449

06

Nýting jarðvegs í Urriðaholt og nágrenni

Erindi Jóns Pálma Guðmundssonar fyrir Urriðaholt ehf dags. 16. desember 2013 ásamt meðfylgjandi skýrslu: Sjálfbær nýting jarðvegs í Urriðaholti og nágrenni, des. 2013. Höfundur Edwin Roald golfvallarhönnuður fyrir Urriðaholt ehf.

Umhverfisnefnd sendir umsögn sína til bæjarráðs.$line$$line$Sigríður Erla vék af fundi undir þessum lið.