Skýrsla fornleifarannsókna á Hofsstöðum
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
30. fundur
Verk- og kostnaðaráætlun frá Ragnheiði Traustadóttur hjá Antikva ehf. um fornleifarannsókn á Hofsstöðum 1994-2000. Verkefnið sem snýst um vinnslu gagna hefur verið í vinnslu frá árinu 2013 og er samstarfsverkefni umhverfisnefndar og menningar- og safnanefndar.
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að þessu verkefni ljúki sem fyrst.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
29. fundur
Lögð fram verkefnaáætlun Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings vegna fornleifarannsókna á Hofsstöðum árin 1994 - 2000. Búist er við að vinnsla fornleifaskýrslunnar ljúki árið 2017 og verði grunnur að útgáfu bókar um fornleifarannsóknir á Hofsstöðum.
Gert er ráð fyrir að verk- og kostnaðaráætlun verði lögð fyrir janúarfund nefndarinnar.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
36. fundur
Skýrsla um fornleifarannsóknir á Hofsstöðum frá 1994 sem Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur hefur umsjón með, lögð fram.
Þetta er samstarfsverkefni milli menningar- og safnanefndar og umhverfisnefndar sem áætlað er að vinnist 2013-2015.