Beint í efni

29. fundur

14.12.2016
Umhverfisnefnd Garðabæjar

29. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

14.12.2016

Kl. 16:30 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - varamaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1504032

01

Söguskilti um Skansinn - fræðsluganga

Söguskilti um Bessastaðaskans var afhjúpað þann 12. nóvember af Guðna Th. Jóhannessyni forseta og Gunnari Einarssyni bæjarstjóra.

Boðið var upp á sögugöngu í leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Gunnar Valur Gíslason forseti bæjarstjórnar flutti ávarp með fróðleik um Bessastaði sem fór fram innan virkisveggja Skansins. Göngufólki var veitt heitt kakó í kalsa veðri.

Ánægjulegt að söguskiltið skuli vera komið upp við Skansinn.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610140

02

Fundargerð ársfundar náttúruverndarnefnda 2016

Ársfundur náttúruverndarnefnda með Umhverfisstofnun 2016 var haldinn af Hvalfjarðarsveit þann 10.11.16. formaður umhverfisnefndar og umhverfisstjóri sóttu fundinn.

Erindi ársfundarins eru birt á vef Umhverfisstofnunnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610242

03

Fundargerð umsjónaraðila friðlýstra svæða 2016

Ársfundur umsjónaraðila friðlýstra svæða 2016 var haldinn í Reykjavík 11.11.16 að viðstöddum umsjónaraðilum frá Umhverfisstofnun, Þjóðgörðum og sveitarfélögum.

Umhverfisstjóri sótti fundinn, áður hafði verið send ástandskýrsla friðlýstra svæða í Garðabæ fyrir árið 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1606183

04

Vöktun á efnabúskap Vífilsstaðavatns og Urriðavatns 2016

Frá Heilbrigðiseftirliti hafa borist drög að skýrslu, "Vöktun á efnabúskap Vífilsstaðavatns og Urriðavatns í Garðabæ" yfir rannsóknir á styrk efna á ársgrundvelli. Rannsóknin byggir á niðurstöðum rannsóknar Tryggva Þórðarsonar 2006 og 2009.

Skýrsluhöfundar eru Páll Stefánsson og Tore Skjenstad. Að greiningu sýna komu m.a. Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Verkefnið er liður í vöktunaráætlun vatna í Garðabæ.

Lokaskýrsla væntanleg í janúar.

Málsnúmer 1311624

05

Skýrsla fornleifarannsókna á Hofsstöðum

Lögð fram verkefnaáætlun Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings vegna fornleifarannsókna á Hofsstöðum árin 1994 - 2000. Búist er við að vinnsla fornleifaskýrslunnar ljúki árið 2017 og verði grunnur að útgáfu bókar um fornleifarannsóknir á Hofsstöðum.

Gert er ráð fyrir að verk- og kostnaðaráætlun verði lögð fyrir janúarfund nefndarinnar.

Málsnúmer 1612133

06

Fornleifar

Verkefnafundur 12.12.16 vegna verkefna sem Ragnheiður Traustadóttir er með í vinnslu fyrir Garðabæ. Auk Ragnheiðar sátu fundinn formaður umhverfisnefndar og umhverfisstjóri.

Lagt fram.

Málsnúmer 1611136

07

Vötn og votlendi - fuglatalningar 2017

Lagt fram tilboð í verk- og kostnaðaráætlun á fuglatalningum 2017 frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni.

Verkefnið er liður í vöktunaráætlun vatna í Garðabæ.

Verk- og kostnaðaráætlun dags. 10.11.2016 vegna fuglatalninga í Garðabæ við vötn og votlendi árið 2017 frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni.

Frestað til næsta fundar nefndarinnar.

Málsnúmer 1611066

08

Umhverfisstefna - endurskoðun

Lögð fram drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu.

Lögð fram drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu.

Málsnúmer 1612021

09

Hleðslustöð fyrir rafbíla

Borist hefur frá Orkusölunni ein hraðhleðslustöð að gjöf. Verkefnið er liður í að fjölga rafhleðslustöðum um landið.

Umhverfisnefnd fagnar gjöfinni.

Málsnúmer 1606484

10

Verndarsvæði í byggð - Garðahverfi

Garðabær hefur fengið styrk úr Húsafriðunarsjóði til að undirbúa tillögu að verndarsvæði í byggð fyrir Garðahverfi. Það er forsætisráðherra sem tekur ákvörðun um verndun byggðar á grundvelli laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016, að fenginni tillögu sveitarstjórnar og Minjastofnunnar.

Bæjarráð hefur samþykkt að undirrita samstarfssamning við Minjastofnun.

Alta ráðgjöf hefur verið fengin í ráðgjöf við verkefnið sem gert er ráð fyrir að verði í vinnslu í lok þessa árs og því næsta.

Nefndinni kynnt staða verkefnisins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1406302

11

Hænsnahald í Garðabæ

Samþykkt um hænsnahald í Garðabæ var samþykkt frá Umhverfis- og auðlindarráðuneytinu 17. nóvember 2016.

Umsóknareyðublað verður útbúið og sett upp á vef bæjarins.

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611269

12

Beiðni um styrk til Yrkjusjóðs 2017

Bæjarráð vísar erindi Skógræktarfélags Íslands vegna Yrkjusjóðs til umfjöllunar í umhverfisnefnd. Yrkjusjóður hefur veitt nemendum grunnskóla birkiplöntur til gróðursetninga. Grunnskólar í Garðabæ hafa verið virkir þátttakendur í yrkjugróðursetningum frá upphafi þess í umsjón Skógræktarfélagsins.

Styrkbeiðnin samþykkt.

Fylgiskjöl