Beint í efni

Vöktun á efnabúskap Vífilsstaðavatns og Urriðavatns í Garðabæjar 2016

Málsnúmer 1606183

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

30. fundur

Skýrsla frá Heilbrigðiseftirliti um Vöktun á efnabúskap Vífilsstaðavatns og Urriðavatns í Garðabæ 2016.
Verkefnið var unnið að ósk umhverfisnefndar í vöktunaráætlun vatnanna.
Vegna byggingaframkvæmda og annarrar uppbyggingar á vatnasviði Urriðavatns og vegna álags af völdum innstreymis næringarefna til Vífilsstaðavatns og fyrirvara við flokkun þess er lagt til að mælingar verði endurteknar árin 2017 og 2018.
Vötnin bæði geta talist ósnortin (A)

Nefndin samþykkir áframhaldandi vöktun.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

29. fundur

Frá Heilbrigðiseftirliti hafa borist drög að skýrslu, "Vöktun á efnabúskap Vífilsstaðavatns og Urriðavatns í Garðabæ" yfir rannsóknir á styrk efna á ársgrundvelli. Rannsóknin byggir á niðurstöðum rannsóknar Tryggva Þórðarsonar 2006 og 2009.
Skýrsluhöfundar eru Páll Stefánsson og Tore Skjenstad. Að greiningu sýna komu m.a. Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Verkefnið er liður í vöktunaráætlun vatna í Garðabæ.

Lokaskýrsla væntanleg í janúar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

28. fundur

Niðurstöður efnagreininga frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands dags. 27.10.16. er hluti rannsóknar um efnamengun í Vífilsstaðavatni og Urriðavatni sem unnin er á árinu í umsjón Heilbrigðiseftirlitsins.

Lokaskýrsla er væntanleg.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

26. fundur

Lagðar fram niðurstöður gerlamælinga í yfirborðsvatni og strandsjó, sýni tekin í ágúst og september.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

23. fundur

Bréf Heilbrigðiseftirlitsins með niðurstöðum gerlamælinga í yfirborðsvatni og sjó, sýnataka fór fram í maí 2016.
Á fundi heilbrigðisnefndar 30. maí s.l. var fjallað um niðurstöður síðustu mælinga. Var það mat nefndarinnar að niðurstöður örverumælinga í fjörum í Garðabæ uppfylli almennar kröfur sem hægt er að gera til útivistar í þéttbýli. Það mat byggir á niðurstöðum mælinga en einnig á að áfram verði unnið að því að finna rangtengingar og gera við bilanir þegar þær finnast.