26. fundur
26. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
21.09.2016
Kl. 16:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Halldór Halldórsson - varamaður
- Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Kynning á tillögu aðalskipulags Garðabæjar 2016 - 2030.
Nauðsynlegt að minjaskráning yfir Álftanesið verði í gögnum skipulagstillögunar fyrir fyrirhugaðan íbúafund.
Á fundinn mættu undir þessum dagskrárlið, Árni Ólafsson og Yngvi Loftsson ráðgjafar við gerð aðalskipulags og Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.
02
Umsóknir um styrki úr húsfriðunarsjóði
Úthlutun styrks úr húsfriðunarsjóði 2016. Verndarsvæði í byggð - Garðahverfi, Álftanesi.
Umhverfisnefnd fagnar styrk að upphæð kr. 5.175.000.- til verkefnisins.
03
Hjólum til framtíðar - ráðstefna 2016
Formaður kynnti það helsta af ráðstefnunni "Hjólum til framtíðar 2016" sem haldin var þann 16. september á vegum Hjólafærni í samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.
04
Samgöngustígur vestan Hafnarfjarðarvegar yfir Arnarnes
Þann 20. september var samgöngustígur vestan Hafnarfjarðarvegar yfir Arnarnesið vígður formlega að viðstöddum nemendum Sjálandsskóla, fulltrúum Garðabæjar, fulltrúum Vegagerðarinnar og Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Jafnframt var kynnt rauð hjólalykilleið sem er samstarfsverkefni yfir höfuðborgarsvæðið.
05
Útikennsla við Vífilsstaðavatn 2016
Skipulögð hefur verið í boði umhverfisnefndar árleg útikennsla um lífríki Vífilsstaðavatns dagana 26.- 28. september.
06
Gerlamælingar í yfirborðsvatni og sjó á svæði Garðabæjar 2016
Lagðar fram niðurstöður gerlamælinga í yfirborðsvatni og strandsjó, sýni tekin í ágúst og september.
07
Umhverfismál - tillögur til fjárhagsáætlunnar 2017
Verkefni rædd og frestað til næsta fundar.