Umhverfismál - tillögur til fjárhagsáætlunnar 2017
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
27. fundur
Tillögur umhverfisnefndar til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir 2017.
Tillögur umhverfisnefndar til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.
Grenndargámar og gerði, fjölga gámasvæðum og reisa fleiri gerði.
Göngu- og hjólastígur að Vífilsstaðavatni, ljúka með malbiki.
Göngu- og hjólastígur við Urriðavatn er uppbyggður, ljúka með láglýsingu og malbika.
Göngubrú yfir votlendi vestan Urriðavatns, göngubrúin opnar hringleið umhverfis Urriðavatn.
Útivistarkort yfir allan Garðabæ, útgáfa í kjölfar endurskoðunar aðalskipulags.
Strandstígur Álftanesi, byggja upp göngu- og hjólastíg innan við grjótvarnargarð meðfram ströndinni með láglýsingu og malbiki.
Rafhleðslustöðvar fyrir rafbíla á Garðatorg.
Fræðsluskilti um náttúru- og menningarminjar.
Skýrsla um fornleifarannsókn á Hofsstöðum 1994 - 2002, ljúka með útgáfu í bókarformi.
Endurheimt votlendis, ný svæði og eftirfylgni þeirra sem hafin er endurheimt á.