27. fundur
27. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
12.10.2016
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
- Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1608527
01
Umhverfismál - tillögur til fjárhagsáætlunnar 2017
Tillögur umhverfisnefndar til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir 2017.
Tillögur umhverfisnefndar til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.
Grenndargámar og gerði, fjölga gámasvæðum og reisa fleiri gerði.
Göngu- og hjólastígur að Vífilsstaðavatni, ljúka með malbiki.
Göngu- og hjólastígur við Urriðavatn er uppbyggður, ljúka með láglýsingu og malbika.
Göngubrú yfir votlendi vestan Urriðavatns, göngubrúin opnar hringleið umhverfis Urriðavatn.
Útivistarkort yfir allan Garðabæ, útgáfa í kjölfar endurskoðunar aðalskipulags.
Strandstígur Álftanesi, byggja upp göngu- og hjólastíg innan við grjótvarnargarð meðfram ströndinni með láglýsingu og malbiki.
Rafhleðslustöðvar fyrir rafbíla á Garðatorg.
Fræðsluskilti um náttúru- og menningarminjar.
Skýrsla um fornleifarannsókn á Hofsstöðum 1994 - 2002, ljúka með útgáfu í bókarformi.
Endurheimt votlendis, ný svæði og eftirfylgni þeirra sem hafin er endurheimt á.
Málsnúmer 1609322
02
Skil á skýrslum vegna refa- og minkaveiða 2015/2016
Bréf frá Umhverfisstofnun 12. september 2016 varðandi skil á uppgjöri vegan refa- og minkaveiða á tímabilinu 1.9.2015 - 31.8.2016 sem skila á fyrir 15. október nk.
Bréf frá Umhverfisstofnun dags, 12.09.16 varðandi skil á uppgjöri vegna refa- og minkaveiða á tímabilinu 1.9.2015 - 31.8.2016 sem skila á fyrir 15. október nk.
Umhverfisstjóri skilar inn skýrslu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1601419
03
Sumarstörf 2016
Skýrsla um starfsemi umhverfishópa og frístundar fatlaðra sumarið 2016.
Skýrsla um starfsemi umhverfishópa og frístundar fatlaðra sumarið 2016.
Umhverfisnefnd telur störf umhverfishópa nauðsynleg fyrir útivistarsvæðin utan byggðar. Nefndinni finnst athyglisvert hve hátt hlutfall atvinnutengds frístundarúrræðis fyrir fötluð ungmenni er af rekstri verkefnisins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1610095
04
Náttúra, menningarminjar og ferðamenn
Landsáætlun um uppbyggingu innviða til varndar náttúru- og menningarsögulegum minjum skv. bráðabirðaákvæði við lög nr. 20/2016
Drög að áætlun vegan verkefna ársins 2017.
Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru- og menningarsögulegum minjum skv. bráðabirðaákvæði við lög nr. 20/2016.
Drög að áætlun vegna verkefna ársins 2017.
Umhverfisnefnd telur að senda eigi athugasemd við að enginn svæði í Garðabær eru tilgreind í skýrslunni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1606408
05
Landsáætlun og Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga 7.10.16, ábending til sveitarfélaga um að nota tækifærið að til umsagnar eru drög að "Landsáætlun um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum" með fresti til 2. nóvember nk.
Einnig er bent á að opnað er fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða með umsóknarfresti til 25. október nk.
Ábending til sveitarfélaga frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 07.10.16 um að til umsagnar eru drög að "Landsáætlun um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum" með fresti til 2. nóvember nk.
Einnig er bent á að opnað er fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða með umsóknarfresti til 25. október nk.
Nefndin leggur til að senda umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir gerð bílaplans við upphaf gönguleiðar á Búrfell og Strandstíginn á Álftanesi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1610116
06
Starfsskýrsla Skógræktarfélagsins 2015-2016
Frá stjórn Skógræktarfélagi Garðabæjar starfskýrsla yfir tímabiðið september 2015 - ágúst 2016 samkvæmt samstarfsamningi milli Garðabæjar og Skógræktarfélagsins.
Starfsskýrsla frá stjórn Skógræktarfélags Garðabæjar yfir tímabilið september 2015 - ágúst 2016 samkvæmt samstarfsamningi milli Garðabæjar og Skógræktarfélagsins. Meðfylgjandi er bréf frá Skógræktarfélagi Íslands dags. 26.11.2015 varðandi afskráningu Skógræktarfélags Álftaness.
Lagt fram.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605436
07
Samstarf Wapp og Garðabæjar - fleiri leiðarlýsingar
Framhald á samstarfi við Einar Skúlason Wapp, þann 8. október var bætt við leiðum á appið það er leiðarlýsing á hringleið "Garðabær Hraunleið" um Garðahraun og Svínahraun um 7.13 km að lengd.
Framhald á samstarfi við Einar Skúlason um Wapp. Þann 8. október var bætt við leiðarlýsingu á appið. Um er að ræða hringleið "Garðabær Hraunleið" um Garðahraun og Svínahraun 7.13 km að lengd.
Í vinnslu eru leiðarlýsingar umhverfis Bessastaðatjörn og hjóla- og hlaupaleiðir á Álftanesi.
Nefndin minnir á að wappið er öllum frítt fyrsta árið. Unnið verður að því að kynna verkefnið nánar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1610124
08
Veiðikortið 2017
Frá Ingimar Bergssyni Veiðikortinu ehf. 11. október sl. barst beiðni varðandi veiðileyfi í Vífilsstaðavatn "er farinn að vinna bæklinginn fyrir 2017 og vildi vera tímanlega að kanna hvort það sé ekki áhugi hjá ykkur að halda áfram samstarfinu á sömu nótum og áður."
Bréf Ingimars Bergssonar hjá Veiðikortinu ehf. dags. 11.10.16. varðandi útgáfu bæklings fyrir næsta ár.
Nefndin samþykkir áframhaldandi samstarf við Veiðikortið um veiðileyfi í Vífilsstaðavatni 2017.
Málsnúmer 1610140
09
Ársfundur náttúruverndarnefnda 2016
Bréf Umhverfisstofnunar um boðun á ársfund náttúruverndarnefnda 10. nóvember nk. í Hvalfjarðarsveit.
Ársfundur umsjónaraðila friðlýstra svæða verður haldinn 11. nóvember nk. á Grand Hótel.