Sumarstörf 2016
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
27. fundur
Skýrsla um starfsemi umhverfishópa og frístundar fatlaðra sumarið 2016.
Skýrsla um starfsemi umhverfishópa og frístundar fatlaðra sumarið 2016.
Umhverfisnefnd telur störf umhverfishópa nauðsynleg fyrir útivistarsvæðin utan byggðar. Nefndinni finnst athyglisvert hve hátt hlutfall atvinnutengds frístundarúrræðis fyrir fötluð ungmenni er af rekstri verkefnisins.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (1733). fundur
Lögð fram áætlun mannauðsdeildar um kostnað við sumarátak 2016 en alls hafa 256 ungmenni verið skráð til starfa og er áætlaður kostnaður vegna þess 135,0 mkr. Verið er að vinna við úrvinnslu umsókna og liggur ekki fyrir á þessari stundu hversu margir munu staðfesta ráðningu.
Á biðlista eru skráð 78 ungmenni og er viðbótarkostnaður við ráðningu þeirra um 65,0 mkr. Bæjarráð samþykkir að gefa öllum umsækjendum á biðlista kost á sumarvinnu.
Bæjarráð Garðabæjar
03
13. (1730). fundur
Á fund bæjarráð mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir umsóknum um sumarstörf. Alls hafa borist 365 umsóknir um sumarstörf og til samanburðar var fjöldi sumarstarfsmanna 375 árið 2015. Verið er að vinna úr umsóknum og þá hefur verið opnað fyrir að skrá sig á biðlista til og með 24. apríl nk.