Beint í efni

13. (1730). fundur

12.04.2016
Bæjarráð Garðabæjar

13. (1730). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

12.04.2016

Kl. 08:00 - 08:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1603106

01

Tjarnarflöt 11 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna niðurrifs og viðbyggingar við einbýlishúsið að Tjarnarflöt 11.

Málsnúmer 1601419

02

Sumarstörf 2016 - yfirlit yfir fjölda umsókna.

Á fund bæjarráð mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir umsóknum um sumarstörf. Alls hafa borist 365 umsóknir um sumarstörf og til samanburðar var fjöldi sumarstarfsmanna 375 árið 2015. Verið er að vinna úr umsóknum og þá hefur verið opnað fyrir að skrá sig á biðlista til og með 24. apríl nk.

Málsnúmer 1604011

03

Bréf Fugla- og náttúruverndarfélags Álftaness og félags um sögu Bessastaðaskóla um styrk vegna vettvangsferðar, ódags.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1604016

04

Bréf Hjálparsveitar skáta og Skátafélagsins Vífils um aðstoð vegna viðhalds húsnæðis, dags. 31.03.16

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1604021

05

Bréf heilbrigðiseftirlitsins um ársreikning og ársskýrslu 2015, dags. 04.04.16.

Bæjarráð óskar eftir að framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits komi á fund bæjarráðs og geri nánari grein fyrir ársreikningi og ársskýrslu heilbrigðiseftirlits.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1505077

06

Tillaga Bjartrar framtíðar um úttekt og úrbætur varðandi slysagildrur í Garðabæ, dags. 07.05.15.

Kynnt var samantekt sem gerð var á árinu 2015 um mögulegar slysagildrur en í öllum þeim tilvikum hefur verið unnið að útbótum. Lagðar fram skýrslur BSI á Íslandi um úttektir á leikskólalóðum sem fram fóru á árinu 2015 og sýnishorn af rekstrarskoðunum sem gerðar eru af starfsmönnum garðyrkjudeildar á ástandi leiktækja ásamt áætlun um lagfæringar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1603390

07

Bréf Löggarðs ehf. varðandi kröfu um skaðabætur vegna vanhalda á lögbundnu eftirliti byggingarfulltrúa, dags. 03.04.16

Bæjarráð vísar bréfinu til Andra Árnasonar, hrl. og felur honum að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1403032

08

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi deiliskipulag Garðahverfis, dags. 07.04.16.

Lagður fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1411241

09

Erindi Skátafélagsins Svana um húsnæðismál, dags. 31.03.15.

Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að gera samning við Skátafélagið Svani um afnot félagsins af Þórukoti fyrir stafsemi sína.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1405319

10

Erindi lóðarhafa við Brekkuás 13 um stækkun lóðar, dags. 16.05.14.

Bæjarráð telur eigi tilefni til að verða við erindi bréfritara um stækkun á lóð til að tryggja aðkomu að neðri hæð hússins. Eigi verður annað sé samkvæmt lóðarblaði en að nægjanlegt rými sé fyrir slíka aðkomuleið innan lóðar og á afstöðumynd hússins er slík leið sýnd með tröppum vegna hæðarlegu lóðar. Bæjarráð telur mjög mikilvægt að skerða ekki land opinna svæða í hverfum bæjarins nema mjög brýnir hagsmunir liggi við.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1604075

11

Reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum bæjarfulltrúa og helstu stjórnenda hjá Garðabæ.

Bæjarstjóri kynnti drög að reglum um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum fulltrúa í bæjarstjórn Garðabæjar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu

Málsnúmer 1505094

12

Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi fyrir veitingastað í golfskála GKG.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.