16. (1733). fundur
16. (1733). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
03.05.2016
Kl. 08:00 - 09:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1512145
01
Umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog - kynningar umsóknaraðila
Á fund bæjarráðs mættu eftirfarandi fulltrúar umsækjenda um lóð fyrir veitingahús við Arnarnesvog og kynntu umsóknir sínar og gerðu grein fyrir væntanlegum hugmyndum varðandi fjármögnun og rekstur.
Fyrir Ingvar og Kristján ehf., mættu Ingvar Geirsson, Kristján Sverrisson og Guðmundur Gunnlaugson.
Fyrir Klettás-fasteignir ehf., mættu Pétur Bjarnason, Auðunn Svafar Guðmundsson og Baldur Ó. Svavarsson.
Fulltrúar óstofnaðs hlutafélags boðuðu forföll og verða boðaðir á næsta fund bæjarráðs.
Fund bæjarráð undir þessum dagskrárlið sátu fundinn bæjarfulltrúarnir, Jóna Sæmundsdóttir, Sigríður Hulda Jónsdóttir og Súsanna Vilhjálmsdóttir, varabæjarfulltrúi
Málsnúmer 1603348
02
Stórakur 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna breytinga á einbýlishúsinu við Stórakur 8.
Málsnúmer 1602213
03
Tillaga leikskólanefndar vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði leikskóla vorið 2016.
Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla.
Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 5.422.800 úr sjóðnum til 8 verkefna.
Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um Þróunarsjóð leikskóla.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1604259
04
Bréf Sorpu um uppgjör vegna endurvinnslustöðva 2015, dags. 14.04.16.
Lagt fram og vísað til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1602016
05
Lýðheilsa ungs fólks í Garðabæ - niðurstöður Rannsóknar og greiningar 2016.
Lögð fram skýrsla Rannsóknar og greiningar um líðan ungs fólks í Garðabæ. Skýrslan byggir á könnun sem lögð var fyrir alla nemendur í 8. til 10. bekk á Íslandi í febrúarmánuði árið 2016.
Bæjarráð vísar skýrslunni til kynningar í fastanefndum bæjarins sem fjalla um málefni barna og ungmenna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1604302
06
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Blakdeildar Stjörnunnar um tímabundið tækifæris- og áfengisleyfi vegna lokahófs í Mýrinni.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1604303
07
Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis fyrir gististað
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt en mælir með að það verði aðeins veitt til reynslu til eins árs.
Málsnúmer 1604304
08
Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga varðandi starfsemi heilbrigðiseftirlits, dags. 31.03.16.
Lagt fram og jafnframt gerð grein fyrir bókun heilbrigðisnefndar um málið frá fundi sem haldinn var 25. apríl 2016. Bæjarráð tekur undir sjónarmið heilbrigðisnefndar um mikilvægi matvælaeftirlits sem nærþjónustu og að ástæða sé að kanna möguleika á fækkun eftirlitsvæða.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1604317
09
Áætlun og upplýsingar um viðhald og framkvæmdir við götur og göngustíga
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar sem haldinn var 7. apríl sl. voru samþykktar tvær tillögur þar sem lagt er til að upplýsingar og áætlun um viðhald gatna og göngustíga verði aðgengilegar á vef bæjarins.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir minnisblaði sem er í vinnslu um ástand gatna og áætlun um viðhald gatna á árinu 2016 og árunum 2017 - 2018.
Minnisblaðið ásamt kortum mun verða gert aðgengilegt að vefsíðu Garðabæjar til að tryggja upplýsingar til bæjarbúa um áætlun um viðhald gatna.
Málsnúmer 1601419
10
Sumarstörf 2016
Lögð fram áætlun mannauðsdeildar um kostnað við sumarátak 2016 en alls hafa 256 ungmenni verið skráð til starfa og er áætlaður kostnaður vegna þess 135,0 mkr. Verið er að vinna við úrvinnslu umsókna og liggur ekki fyrir á þessari stundu hversu margir munu staðfesta ráðningu.
Á biðlista eru skráð 78 ungmenni og er viðbótarkostnaður við ráðningu þeirra um 65,0 mkr. Bæjarráð samþykkir að gefa öllum umsækjendum á biðlista kost á sumarvinnu.
Málsnúmer 1604003
11
Laun í vinnuskóla 2016
Bæjarráð samþykkir tillögu um eftirfarandi laun í Vinnuskóla Garðabæjar sumarið 2016.
Unglingar fæddir 2002( 8. bekkingar) kr. 476/klst.
Unglingar fæddir 2001 (9. bekkingar) kr. 536/klst.
Unglingar fæddir 2000 (10. bekkingar) kr. 710/klst.
Orlof er innifalið í ofangreindum launafjárhæðum.