Lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
43. (1760). fundur
Lögð fram drög að samningi um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog, sbr. samþykkt bæjarstjórnar frá 16. júní sl.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
10. (793). fundur
Súsanna Vilhjálmsdóttir, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Björt framtíð lýsir yfir undrun sinni á afgreiðslu á umsóknum um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog. Umsóknarferlið og sér í lagi ákvörðunarferlið um val á aðila er vægast sagt ógagnsætt. Þrír aðilar sóttu um lóðina og sá aðili varð fyrir valinu sem sýndi af sér hvað slælegustu frammistöðu við kynningu á sinni umsókn.
Umsækjandinn var með óstofnað félag og þar með ekki í stakk búinn til að uppfylla umsóknarskilyrði, auk þess að mæta ekki á boðuðum tíma til að kynna hugmyndir sínar. Í öllu ferlinu hefur þessum umsækjanda verið gefin aukin tækifæri umfram aðra umsækjendur til að kynna sín mál sem varla getur talist sanngjarnt gagnvart þeim tveim aðilum sem stóðu við sitt í ferlinu.“
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun.
Steinþór Einarsson, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun.
María Grétarsdóttir, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun.
Súsanna Vilhjálmsdóttir, tók til máls að nýju.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 24. tl., umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog og framkomna bókun. Gunnar Valur kom á framfæri þakklæti til umsækjenda fyrir góðar og vandaðar umsóknir.
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að gengið verði til samninga við óstofnað hlutafélag „Arnarvog ehf.“ um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog. Fyrirvari er um að við undirskrift samnings hafi félagið formlega verið stofnað og stofnefnahagsreikningur lagður fram staðfestur af löggiltum endurskoðanda.
Hlíf Böðvarsdóttir og Súsanna Vilhjálmsdóttir greiða atkvæði gegn tillögunni.
Steinþór Einarsson og María Grétarsdóttir sitja hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
04
21. (1738). fundur
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (ÁHJ,SHJ,JS,GGJ) að leggja til við bæjarstjórn að gengið verði til samninga við óstofnað hlutafélag „Arnarvog ehf.“ um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog. Fyrirvari er um að við undirskrift samnings hafi félagið formlega verið stofnað og stofnefnahagsreikningur lagður fram staðfestur af löggiltum endurskoðanda.
Halldór Jörgensson, greiðir atkvæði gegn tillögunni og lagði fram eftirfarandi bókun.
“Björt framtíð lýsir undrun sinni á afgreiðslu lóðar vegna veitingastaðar við Arnarnesvog. Umsóknarferlið og sér í lagi ákvarðanaferlið um val á aðila er vægast sagt ógagnsætt. Þrír aðilar sóttu um lóðina og sá aðili varð fyrir valinu sem sýndi af sér hvað slælegustu frammistöðu við kynningu á sinni umsókn. Umsækjandi var með óstofnað félag og þar með ekki í stakk búinn að uppfylla umsóknarskilyrði, auk þess að mæta ekki á boðuðum tíma til að kynna hugmyndir sínar. Í öllu ferlinu hefur þessum umsækjanda verið gefin aukin tækifæri umfram aðra umsækjendur til að kynna sín mál sem varla getur talist sanngjarnt gagnvart þeim tveim aðilum sem stóðu við sitt í ferlinu.?
Bæjarráð Garðabæjar
05
17. (1734). fundur
Á fund bæjarráðs mættu Sigurbjörn Ingimundarson og Orri Árnason og gerðu grein fyrir umsókn óstofnaðs hlutafélags um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog.
Fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið sátu bæjarfulltrúarnir, Sigríður Hulda Jónsdóttir, Jóna Sæmundsdóttir.
Bæjarráð Garðabæjar
06
16. (1733). fundur
Á fund bæjarráðs mættu eftirfarandi fulltrúar umsækjenda um lóð fyrir veitingahús við Arnarnesvog og kynntu umsóknir sínar og gerðu grein fyrir væntanlegum hugmyndum varðandi fjármögnun og rekstur.
Fyrir Ingvar og Kristján ehf., mættu Ingvar Geirsson, Kristján Sverrisson og Guðmundur Gunnlaugson.
Fyrir Klettás-fasteignir ehf., mættu Pétur Bjarnason, Auðunn Svafar Guðmundsson og Baldur Ó. Svavarsson.
Fulltrúar óstofnaðs hlutafélags boðuðu forföll og verða boðaðir á næsta fund bæjarráðs.
Fund bæjarráð undir þessum dagskrárlið sátu fundinn bæjarfulltrúarnir, Jóna Sæmundsdóttir, Sigríður Hulda Jónsdóttir og Súsanna Vilhjálmsdóttir, varabæjarfulltrúi
Bæjarráð Garðabæjar
07
14. (1731). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Þorbergur Karlsson, verkfræðingur hjá VSÓ og lagði fram og gerði grein fyrir samantekt um viðræður við umsækjendur.
Bæjarráð samþykkir að boða umsækjendur á fund bæjarráðs þriðjudaginn 3. maí nk. til að gera nánari grein fyrir umsóknum sínum.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
08
9. (1726). fundur
Lagðar fram umsóknir frá eftirfarandi aðilum um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog.
Ingvar og Kristján ehf.
Klettás fasteignir ehf.
Óstofnað einkahlutafélag (Arnarvogur ehf.)
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við umsækjendur.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
09
4. (1721). fundur
Bæjarráð samþykkir skilmálana og felur bæjarstjóra að auglýsa úthlutun lóðarinnar.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
10
48. (1716). fundur
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að byggja og starfrækja veitingahús á lóð við Arnarnesvog.
Í auglýsingunni skal koma fram að lóðarverð vegna byggingarréttar- og gatnagerðargjalds skuli nema tvöföldu gatnagerðargjaldi sem er kr. 19.222.000 fyrir 500 m2 hús.