21. (1738). fundur
21. (1738). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
07.06.2016
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Unnargrund 1,3,5,7,9 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar fimm raðhúsa á lóðinni við Unnargrund 1 - 9.
02
Unnargrund 4,6,8 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar þriggja raðhúsa á lóðinni við Unnargrund 4 - 8.
03
Unnargrund 10,12,14 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar þriggja raðhúsa á lóðinni við Unnargrund 10 - 14.
04
Unnargrund 11,13,15,17 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar fjögurra raðhúsa á lóðinni við Unnargrund 11 - 17.
05
Unnargrund 16,18 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar parhúss á lóðinni við Unnargrund 16 - 18.
06
Unnargrund 19,21,23 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar þriggja raðhúsa á lóðinni við Unnargrund 19 - 23.
07
Unnargrund 25,27,29,31,33 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar fimm raðhúsa á lóðinni við Unnargrund 25 - 33.
08
Dýjagata 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar einbýlishúss á lóðinni við Dýjagötu 11.
09
Dyngjugata 8- 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar þriggja raðhúsa á lóðinni við Dyngjugötu 8 - 12.
10
Samkomuhúsið á Garðaholti - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna breytinga á samkomuhúsinu á Garðaholti.
11
Holtsvegur 15-17 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna byggingar fjölbýlishúss með 16 íbúðum við Holtsveg 15 - 17.
12
Opnun tilboða í framkvæmdir við göngu- og hjólreiðastíg sunnan Vífilsstaða.
Eftirfarandi tilboð bárust.
Gleipnir ? verktakar ehf. 31.829.100
Jarðlist ehf. 18.948.400
P.K. - verk ehf. 23.300.000
Bjössi ehf. 18.300.000
Kostnaðaráætlun 22.503.200
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægst bjóðanda með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
13
Opnun tilboða í framkvæmdir við endurnýjun á yfirborði knattspyrnuvalla í Ásgarði.
Tilboð bárust frá danska fyrirtækinu Laiderz sem skilaði einu tilboði og Metratron sem skilaði fjórum tilboðum auk eins frávikstilboðs.
Lagt fram minnisblað VSÓ-ráðgjafar, dags. 02.06.16 varðandi mat á tilboðum.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Metatron merkt 1 ? knattspyrnugras frá Polytan að fjárhæð kr. 31.986.144 með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
14
Bréf Norræna félagsins í Garðabæ um styrk vegna vinabæjarmóts, dags. 31.05.16.
Bæjarráð samþykkir að veita Norræna félaginu í Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 250.000 vegna rekstrar og þátttöku í vinabæjarmóti sem fyrirhugað er í Jakobstad dagana 30. júní - 3. júlí 2016.
Fylgiskjöl
15
Tölvubréf Hannesar Kristins Árnasonar um styrk vegna þátttöku á Ólympíuleikum í stærðfræði, dags. 01.06.16.
Bæjarráð samþykkir að greiða bréfritara sumarlaun 2016 vegna undirbúnings fyrir þátttöku í Alþjóða olympíuleikjunum í stærðfræði.
16
Umsagnarbeiðni vegna rekstraleyfis fyrir gististað að Litlubæjarvör 2.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
17
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um timbur og timburvöru, 785. mál, dags. 31.05.16.
Lagt fram.
18
Bréf Lex lögmanna varðandi athugasemdir við lagningu útivistarstígs á Álftanesi, dags. 02.06.16.
Bæjarstjóri upplýsti að framkvæmdir í landi Grundar hafi verið stöðvaðar og að í undirbúningi eru viðræður við landeiganda um lausn málsins.
Fylgiskjöl
20
Tilkynning umhverfis- og auðlindaráðuneytis um afturköllun friðlýsingar Búrfells o.fl., dags. 25.04.16.
Lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka upp viðræður við ráðuneytið um málið.
Fylgiskjöl
21
Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi fyrir Domino´s pizza
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
22
Bréf Sorpu bs. varðandi endurskoðun kostnaðaráætlunar fyrir endurvinnslustöðvar, dags. 31.05.16.
23
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Sjáland, dags. 26.05.16.
24
Umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (ÁHJ,SHJ,JS,GGJ) að leggja til við bæjarstjórn að gengið verði til samninga við óstofnað hlutafélag „Arnarvog ehf.“ um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog. Fyrirvari er um að við undirskrift samnings hafi félagið formlega verið stofnað og stofnefnahagsreikningur lagður fram staðfestur af löggiltum endurskoðanda.
Halldór Jörgensson, greiðir atkvæði gegn tillögunni og lagði fram eftirfarandi bókun.
“Björt framtíð lýsir undrun sinni á afgreiðslu lóðar vegna veitingastaðar við Arnarnesvog. Umsóknarferlið og sér í lagi ákvarðanaferlið um val á aðila er vægast sagt ógagnsætt. Þrír aðilar sóttu um lóðina og sá aðili varð fyrir valinu sem sýndi af sér hvað slælegustu frammistöðu við kynningu á sinni umsókn. Umsækjandi var með óstofnað félag og þar með ekki í stakk búinn að uppfylla umsóknarskilyrði, auk þess að mæta ekki á boðuðum tíma til að kynna hugmyndir sínar. Í öllu ferlinu hefur þessum umsækjanda verið gefin aukin tækifæri umfram aðra umsækjendur til að kynna sín mál sem varla getur talist sanngjarnt gagnvart þeim tveim aðilum sem stóðu við sitt í ferlinu.?