Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Sjálandi, dags. 14.06.17.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
24. (1790). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fræðslu- og menningarsviðs.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
37. (1754). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
03
21. (1738). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
04
1. (1718). fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
05
12. fundur
Skýrsla Námsmatsstofnunar um ytra mat á leikskólanum Sjálandi.
Leikskólanefnd fagnar niðurstöðu mats á starfsemi Sjálands. Farið var yfir helstu styrkleika leikskólans sem fram komu í skýrslunni og tækifæri til umbóta að mati matsmanna Námsmatsstofnunnar. Einnig var farið yfir drög að tímasettri umbótaáætlun um hvernig brugðist verður við þeim ábendingum sem fram komu í skýrslunni. Umbótaáætluninni vísað til bæjarstjóra sem hefur það hlutverk að koma henni á framfæri við mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Bæjarráð Garðabæjar
06
26. (1694). fundur
Lagt fram bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi skýrslu um úttekt á starfsemi leikskólans Sjálands en úttektin fór fram í október 2014 á grundvelli 17. gr. laga um leikskóla og 4. og 5. gr. reglugerðar nr. 893/2009 um mat og eftirlit í leikskólum o.fl.
Í niðurstöðum skýrslunnar eru ábendingar og tillögur til umbóta og er óskað eftir að Garðabær leggi fram fyrir 11. sept. n.k. áætlun um hvernig brugðist verði við þeim.
Bæjarráð samþykkir að vísa skýrslunni til umfjöllunar leikskólanefndar.
Fylgiskjöl
Leikskólanefnd Garðabæjar
07
7. fundur
Ytra mat á starfsemi leikskólans Sjálands 2015
Námsmatsstofnun hefur samþykkt beiðni skóladeildar og leikskólastjóra Sjálands um ytra mat á starfsemi leikskólans. Matið fer fram á tímabilinu febrúar til maí og er umbótamiðað. Leikskólanefnd fagnar að leikskóli í Garðabæ hafi verið valin sem einn leikskóli af sex úr hópi 30 umsókna um ytra mat. Markmið úttektarinnar er að leggja mat á starfsemi skólans með hliðsjón af gildandi lögum um leikskóla, reglugerðum og aðalnámskrá.
Bæjarráð Garðabæjar
08
5 (1673). fundur
Lagt fram bréf Námsmatsstofnunar þar sem fram kemur að fram fari ytra mat á starfsemi Leikskólans Sjálands vorið 2015.