7. fundur
7. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Garðabæ
16.02.2015
Kl. 17:00 - 19:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Viktoría Jensdóttir - formaður
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
- Snævar Sigurðsson - aðalmaður
- Eymundur Sveinn Einarsson - aðalmaður
- Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
- Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna
- Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
- Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
- Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
Ritari
- Anna Magnea Hreinsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1410266
01
Framkvæmdir við Urriðaholtsskóla
Kynning á skólabyggingu í Urriðaholti
Baldur Svavarsson arkitekt var gestur fundarins og kynnti teikningar og framkvæmdir við Urriðaholtsskóla.
Málsnúmer 1501315
02
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Umsókn um leyfi til gæslu eins barns í allt að sex mánuði.
Guðrún Hjálmarsdóttir kt. 150149-2669 fær bráðabirgðaleyfi til gæslu eins barns til sex mánaða.
Málsnúmer 1501200
03
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Umsókn um leyfi til gæslu fjögurra barna til eins árs.
Laufey Aðalsteinsdóttir kt. 181177-5359 fær leyfi til gæslu fjögurra barna til eins árs.
Málsnúmer 1502004
04
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Umsókn um leyfi til gæslu eins barns.
Guðríður Jóna Örlygsdóttir kt. 220769-4969 fær bráðabirgðaleyfi til gæslu eins barns til sex mánaða.
Málsnúmer 1501316
05
Úttekt á leikskóla
Ytra mat á starfsemi leikskólans Sjálands 2015
Námsmatsstofnun hefur samþykkt beiðni skóladeildar og leikskólastjóra Sjálands um ytra mat á starfsemi leikskólans. Matið fer fram á tímabilinu febrúar til maí og er umbótamiðað. Leikskólanefnd fagnar að leikskóli í Garðabæ hafi verið valin sem einn leikskóli af sex úr hópi 30 umsókna um ytra mat. Markmið úttektarinnar er að leggja mat á starfsemi skólans með hliðsjón af gildandi lögum um leikskóla, reglugerðum og aðalnámskrá.
Málsnúmer 1501288
06
Íbúakönnun 2014
Farið yfir helstu niðurstöður íbúakönnunar Capacent. Leikskólanefnd þakkar starfsfólki leikskóla fyrir vel unnin störf en niðurstöður könnunarinnar sýna að almenn ánægja ríkir um störf þeirra. Einnig er ánægjulegt að sjá hve mikil ánægja ríkir um þjónustu í Garðabæ við barnafólk.
Málsnúmer 1501052
07
Þróunarsjóður leikskóla
Farið yfir reglur um þróunarsjóð leikskóla og ákveðið að hann verði opinn öllum leikskólum í Garðabæ. Ákveðið að áherslur ársins verði: Hreyfing og velferð, lýðræði og mannréttindi, samskipta og félagsfærni, sjálfbærni. Einnig verði þættirnir málörvun og læsi og samvinna innan og á milli skóla og skólastiga sameiginlegir áhersluþættir leik- og grunnskóla. Farið var yfir umsóknareyðublað og viðmið í mati á umsóknum. Ákveðið að auglýsa eftir umsóknum þegar bæjarráð hefur samþykkt reglurnar.
Málsnúmer 1501092
08
Kynningar og önnur mál 2015
Kynning á leikskólanum Hæðarbóli
1) Rætt um miðlægan biðlista fyrir leikskóla. Kostir þess eru þeir að þá fæst betri yfirsýn yfir stöðu biðlistans. Einnig fá foreldrar þá tilboð um þann skóla sem þeir setja í fyrsta eða annað sæti. Eins og staðan er í dag er hægt að sækja um á allt að fjóra leikskóla þar sem Sjáland og leikskólar Hjallastefnunnar sjá sjálfir um biðlistann. Fá þá sumir foreldrar tilboð um marga leikskóla.$line$2) Ingibjörg Gunnarsdóttir kynnti starfsemi Hæðarbóls. Þar er hátt hlutfall fagmenntaðra leikskólakennara með langan starfsaldur. Unnið er m.a. með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, útikennslu og vísindi svo að eitthvað sé nefnt. Hæðarból er í farsælu samstarfi við Hofsstaðaskóla með tíðum gagnkvæmum heimsóknum elstu barna leikskólans og yngstu barna grunnskólans.