Heimsókn í Urriðaholtsskóla.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
32. (1893). fundur
Bæjarráð heimsótti Urriðaholtsskóla en nýlokið er framkvæmdum við innréttingar o.fl. í fyrsta áfanga skólabyggingarinnar. Þorgerður Anna Arnardóttir, skólastjóri og Una Guðrún Einarsdóttir, aðstoðarskólastjórí gerðu grein fyrir áherslu í skólastarfi Urriðaholtsskóli. Skólinn er nú að hefja sitt annað starfsár. Í skólanum eru 169 nemendur eða 115 leikskólabörn og 54 grunnskólabörn.
Bæjarráð Garðabæjar
02
19. (1785). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við fullnaðarfrágang húss að utan og innan að hluta, í 1. áfanga Urriðaholtsskóla.
ÍAV ehf. kr. 693.825.832
Munck á Íslandi ehf. kr. 651.061.831
Spennt ehf. kr. 864.293.460
Eykt ehf. kr. 713.895.827
Kostnaðaráætlun kr. 605.000.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Muncks á Íslandi ehf., með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Gunnar Valur Gíslason vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
03
11. (1777). fundur
Bæjarverkfræðingur upplýsti að lægst bjóðandi uppfyllir ekki skilmála útboðslýsingar um fjárhagslega stöðu.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næstlægst bjóðanda Garðyrkjuþjónustunnar ehf. að fjárhæð kr. 213.892.500 með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Bæjarráð Garðabæjar
04
10. (1776). fundur
Lögð fram eftirfarandi tilboð í framkvæmdir við lóð Urriðaholtsskóla sem yfirfarin hafa verið af hönnuðum.
Gott verk ehf. kr. 193.349.704
Garðyrkjuþjónustan ehf. kr. 213.892.500
Grafa og Grjót ehf. kr. 226.362.450
Sumargarðar og Bjössi ehf. kr. 235.000.000
Háfell ehf. kr. 248.168.286
Prima ehf. kr. 286.647.525
Kostnaðaráætlun kr. 201.817.200
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Góðs verks ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Bæjarráð Garðabæjar
05
3. (1769). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að í undirbúningi er að auglýsa útboð í lok janúar vegna lóðarframkvæmdanna og í byrjun febrúar verður auglýst að nýju útboð vegna fullnaðarfrágangs að utan og framkvæmda innanhúss.
Bæjarstjóri upplýsti að á vef Garðabæjar kemur fram að stefnt er að opnun skólans á þessu ári.
Bæjarráð Garðabæjar
07
45. (1762). fundur
Tilboð í framkvæmdirnar voru lögð fram á fundi bæjarráðs 8. nóvember sl.
Bæjarráð samþykkir að hafna öllum tilboðum sbr. ákvæði 0.2.2. í skilmálum útboðs- og verklýsingar.
Bæjarráð felur bæjarverkfræðingi að bjóða framkvæmdir út að nýju ásamt framkvæmdum við næsta áfanga sem er nr. 04 framkvæmdir innanhúss.
Baldur Ólafur Svavarsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
09
43. (1760). fundur
Eftirfarandi tilboð lögð fram.
Aflþing ehf. kr. 319.934.950
ÍAV ehf. kr. 374.736.411
LNS - Saga ehf. kr. 394.189.684
Kostnaðaráætlun kr. 317.151.750
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir viðræðum við lægstbjóðanda.
Bæjarráð Garðabæjar
10
25. (1693). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í uppsteypu Urriðaholtsskóla.
Spennt ehf. kr. 396.129.575
Þ.G.-verktakar ehf. kr. 418.978.830
Ístak, Ísland hf. kr. 428.667.617
Ris byggingarverktakar kr. 328.627.845
L.N.S. Saga ehf. kr. 414.536.016
Alefli ehf. kr. 419.115.918
Kostnaðaráætlun hönnuða: kr. 417.304.083
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að leita samninga við lægstbjóðanda, Ris byggingarverktaka á grundvelli tilboðsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
11
19. (1687). fundur
Bæjarráð samþykkir að auglýst verði útboð vegna uppsteypu 1. áfanga Urriðaholtsskóla.
Fylgiskjöl
Leikskólanefnd Garðabæjar
12
7. fundur
Kynning á skólabyggingu í Urriðaholti
Baldur Svavarsson arkitekt var gestur fundarins og kynnti teikningar og framkvæmdir við Urriðaholtsskóla.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
13
6. fundur
Baldur Ó Svavarsson arkitekt kynnir tillögu í vinnslu að hönnun nýs skóla í Urriðaholti
Margrét Björk Svavarsdóttir sagði frá tilurð skólans. $line$Baldur kynnti teikningar af skólanum en málið verður áfram á dagskrá nefndarinnar.
Bæjarráð Garðabæjar
14
1 (1669). fundur
Á fund bæjarráðs mættu Baldur Ó. Svavarsson, arkitekt og Jón Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Urriðaholts.$line$$line$Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi málsins og hugmyndafræði á bak við hönnun og starfsemi skólans. $line$$line$Jón Pálmi Guðmundsson, gerði grein fyrir uppbyggingu byggðar í Urriðaholti en nú þegar eru í byggingu 317 íbúðir. Þá er verið að deiliskipuleggja ný svæði þar sem gert er ráð fyrir um 300 íbúðum sem koma til uppbyggingar 2015 og 2016. Máli sínu til frekari skýringar vísaði Jóna Pálmi á heimasíðu Urriðaholts.$line$$line$Baldur Ó Svavarsson, kynnti tillögu í vinnslu að hönnun nýs skóla í Urriðaholti en um er að ræða grunnskóla fyrir 640 nemendur og leikskóla fyrir 120 nemendur þegar skólinn verður fullbyggður. Baldur gerði grein fyrir möguleikum á áfangaskiptingu framkvæmda en gert er ráð fyrir að 1. afangi verði 5.400 m2 en skólinn fullbyggður með íþróttamannvirkjum verður um 10.400 m2.
Bæjarráð Garðabæjar
15
40. fundur
Eftirfarandi tilboð bárust við opnun tilboða í jarðvinnu vegna byggingar Urriðaholtsskóla.$line$$line$Ístak Íslands ehf. kr. 33.240.802$line$$line$Jökulfell ehf. kr. 37.890.000$line$$line$GT hreinsun ehf kr. 39.010.000$line$$line$Hálsafell ehf. kr. 42.900.000$line$$line$Borgarverk ehf. kr. 45.310.000$line$$line$Óskaverk ehf. kr. 46.000.000$line$$line$Íslenskir aðalverktakar hf. kr. 48.084.259$line$$line$Jarðval ehf. kr. 48.761.400$line$$line$Kamina ehf. kr. 51.906.000$line$$line$Loftorka Reykjavík ehf. kr. 54.040.000$line$$line$Dráttarbílar ehf. kr. 67.050.600$line$$line$Bæjarráð samþykkir tilboð lægstbjóðenda Ístaks Íslands ehf. og felur bæjarverkfræðingi að leita samninga við félagið á grundvelli tilboð þess.