1 (1669). fundur
1 (1669). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
06.01.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1410266
01
Staða hönnunarvinnu Urriðaholtsskóla.
Á fund bæjarráðs mættu Baldur Ó. Svavarsson, arkitekt og Jón Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Urriðaholts.$line$$line$Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir undirbúningi málsins og hugmyndafræði á bak við hönnun og starfsemi skólans. $line$$line$Jón Pálmi Guðmundsson, gerði grein fyrir uppbyggingu byggðar í Urriðaholti en nú þegar eru í byggingu 317 íbúðir. Þá er verið að deiliskipuleggja ný svæði þar sem gert er ráð fyrir um 300 íbúðum sem koma til uppbyggingar 2015 og 2016. Máli sínu til frekari skýringar vísaði Jóna Pálmi á heimasíðu Urriðaholts.$line$$line$Baldur Ó Svavarsson, kynnti tillögu í vinnslu að hönnun nýs skóla í Urriðaholti en um er að ræða grunnskóla fyrir 640 nemendur og leikskóla fyrir 120 nemendur þegar skólinn verður fullbyggður. Baldur gerði grein fyrir möguleikum á áfangaskiptingu framkvæmda en gert er ráð fyrir að 1. afangi verði 5.400 m2 en skólinn fullbyggður með íþróttamannvirkjum verður um 10.400 m2.
Málsnúmer 1412218
02
Bréf Urriðaholts um vistvottun skipulags í 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts (Breeam vottun), dags. 15.12.14.
Jón Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Urriðaholts gerði grein fyrir hugmynd að vistvottun deiliskipulags 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt staðli sem nefnist ?Breeam Communities? Í því sambandi er farið fram á staðfestingu Garðabæjar á tilteknum atriðum er varðar tilteknar samfélagslegar forsendur við samþykkt deiliskipulagsins.$line$$line$Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til frekari umræðu við gerð skipulags svæðisins og afgreiðslu fjárhagsáætlana á næstu árum samhliða uppbyggingu svæðisins.
Málsnúmer 1412296
03
Tilkynning frá innanríkisráðuneytinu um drög að reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga til umsagnar, dags. 23.12.14.
Lögð fram.
Málsnúmer 1409324
04
Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli og örorkulífeyrisþega
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um viðmiðunarfjárhæðir um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts og holræsagjalds elli- og örorkulífeyrisþega.$line$$line$Einstaklingar:$line$Einstaklingar með tekjur árið 2013 allt að kr. 4.500.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. $line$Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 3.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.800.000.$line$$line$Hjón:$line$Hjón með tekjur árið 2013 allt að kr. 5.750.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 12.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.950.000.
Málsnúmer 1412177
05
Bréf Vinafélags Pólska Skólans varðandi nýtingu hvatapeninga til greiðslu námskostnaðarvið skólann, dags. 10.12.2014.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar fræðslu- og menningarsviðs.
Málsnúmer 1412217
06
Svar við fyrirspurn um þróun leikskólagjalda og kostnaðar við rekstur leikskóla s.l. 10 ár
Lagt fram yfirlit yfir þróun leikskólagjalda og kostnaðar við rekstur leikskóla árin 2004 - 2013.
Málsnúmer 1412194
07
Bréf Ungmennafélags Íslands varðandi ályktun um gistingu iðkenda ungmenna- og íþróttafélaga hjá sveitarfélögum, dags. 12.12.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1412286
08
Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi samþykkt nýrrar gjaldskrár, dags. 19.12.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um nýja gjaldskrá fyrir slökkviliðið.
Málsnúmer 1408569
09
Drög að samkomulagi Garðabæjar og eigenda Selskarðs um að fram fari mat á markaðsverðmæti jarðarinnar Selaskarðs.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að samkomulagi.
Málsnúmer 1402138
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg, dags. 18.12.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykki bæjarstjórn tillöguna skal hún send til meðferðar Skipulagsstofnunar og umsögn send þeim sem gerðu athugasemdir við hana.
Málsnúmer 1412285
11
Bréf Stígamóta um styrk vegna ársins 2015, dags. 10.12.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu styrkja árinu 2015.
Málsnúmer 1411096
12
Umsagnir leikskólanefndar og mannréttinda- og forvarnanefndar um tillögu um greiðslur til foreldra sem eru heima með börnum þar til leikskóladvöl býðst.
Lagðar fram umsagnir leikskólanefndar og mannréttinda- og forvarnanefndar þar sem fram kemur að ekki er mælt með samþykkt tillögunnar.
Málsnúmer 1411107
13
Umsögn umhverfisnefndar um erindi Sorpu varðandi útboð á þjónustu við grenndargáma fyrir pappír, plast og gler.
Lögð fram.
Málsnúmer 1401641
14
Bréf Skipulagsstofnunar varðandi tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026, dags. 19.12.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1412209
15
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi gerð fjögurra ára þróunaráætlun í tengslum við endurskoðun svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, dags. 12.12.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að umbeðnar upplýsingar verði sendar til SSH.
Málsnúmer 1412313
16
Beiðni um aðgerðaráætlun varðandi fjölgun félagslegs húsnæðis.
Félagsmálastjóri gerði grein fyrir drögum að aðgerðaráætlun um búsetuúrræði fatlaðs fólks sem nú er í vinnslu á fjölskyldusviði og hjá fjölskylduráði.
Málsnúmer 1409324
17
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 - fjárveiting til bifreiða-, tækja- og tölvukaupa.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu varðandi búnaðarkaup samkvæmt fjárhagsáætlun 2015.$line$$line$Bifreiðar og tæki$line$ Gámabifreið 12,0 mkr.$line$ Endurnýjun á bifreið bæjarstjóra 11,0 mkr.$line$ Bifreið fyrir vatnsveitu 6,0 mkr.$line$ Bifreið fyrir þjónustumiðstöð 6,0 mkr$line$ Sláttuvagn og snjótönn 7,5 mkr.$line$$line$Tölvubúnaður$line$ Endurnýjun í skólum 20,0 mkr.$line$ Þróun upplýsingatækni í skólum 5,0 mkr.$line$ Aðrar stofnanir 5,0 mkr.$line$ Ýmislegt 2,5 mkr.$line$$line$Annar búnaður$line$ Búnaður í stofnunum 25,0 mkr.$line$$line$Samtals: 100,0 mkr.