Umsögn umhverfisnefndar um erindi Sorpu varðandi útboð á þjónustu við grenndargáma fyrir pappír, plast og gler.
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
7. fundur
Erindi Sorpu dags. 05.11.14 vísað frá bæjarráði til umfjöllunar umhverfisnefndar. $line$$line$Umhverfisnefnd leggur til að áfram verði boðið uppá grenndargáma á tveimur stöðum á Álftanesi við Norðurnesveg og Suðurnesveg, auk tveggja grenndargámasvæða í bænum. Að fundin verði lausn á staðsetningu grenndargáma á Garðatorgi eða nágrenni.$line$Góð þátttaka íbúa Garðabæjar við flokkun pappírsúrgangs heima við gerir pappírsgrenndargáma óþarfa, en plastið og glerið þarf að hvetja íbúa til að flokka frá almennu sorpi. Því eru grenndargámar nauðsynlegir.$line$Nefndin hefur áhuga á að auka rými pappírsúrgangs hjá íbúum og gera tilraun með að bæta inn ílátum fyrir plastflokkun í fjölbýlum.
Bæjarráð Garðabæjar
03
45. fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar umhverfisnefndar.