45. fundur
45. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
25.11.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1411192
01
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútsvars), 29. mál, dags. 17.11.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1411191
02
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll, dags. 18.11.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1411181
03
Bréf Bandalags háskólamanna varðandi fyrirhugaðan flutning Fiskistofu, dags. 13.11.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1411178
04
Bréf Árna Sigurbjarnarsonar, skólastjóra Tónlistarskóla Húsavíkur varðandi kjaramál tónlistarkennara, dags. 17.11.14.
Lagt fram.$line$$line$Bæjarráð lýsir mikilli ánægju með að skrifað var undir samninga við við tónlistarkennara í gærkvöldi og verkfalli aflýst.
Málsnúmer 1401509
05
Bréf íbúa Lundahverfis og efri hluta Holtsbúðar varðandi fyrirhugaðar breytingar á leikskólanum Lundabóli.
Bæjarráð samþykir að vísa málinu til skipulagsnefndar og felur nefndinni að boða að nýju til kynningarfundar með íbúum um málið.
Málsnúmer 1408494
06
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar, dags. 13.11.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1410262
07
Svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Steinþórs Einarssonar um uppgjör þjónustu við fatlað fólk, dags. 19.11.14.
Lagt fram og rætt.
Málsnúmer 1411232
08
Tillaga Bjartrar framtíðar um fjárveitingu til framkvæmda við Bragalund á árinu 2015.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
Málsnúmer 1411107
09
Bréf Sorpu bs. varðandi útboð á þjónustu við grenndargáma fyrir pappír, plast og gler, dags. 05.11.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar umhverfisnefndar.
Málsnúmer 1411163
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulagsbreytingu vegna Iðnbúðar 1, fjölgun íbúða, dags. 20.11.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar vegna lóðarinnar við Iðnbúð 1. Í umsókninni er farið fram á breytingu á því ákvæði skilmálanna sem mælir fyrir um að ekki megi vera með íbúðir á jarðhæð.
Málsnúmer 1411157
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulagsbreytingu vesturhluta Urriðaholts vegna Holtsvegar 27, viðbótaríbúð, dags. 20.11.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá grenndarkynningu samkvæmt ákvæði 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga við afgreiðslu á byggingarleyfi hússins við Holtsveg 27 þar sem um óveruleg frávik er að ræða frá deiliskipulagsskilmálum, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. sömu laga.$line$$line$Í afgreiðslu skipulagsnefndar kemur fram að jafnframt hafi verið lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar þar sem farið fram á fjölgun íbúða úr 9 í 10 og var umsókninni vísað til umsagnar höfundar deiliskipulagsins.$line$$line$Baldur Ó. Svavarsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1411094
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulagsbreytingu vesturhluta Urriðaholts vegna Kinnargötu 27, dags. 20.11.14.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar við Kinnargötu 27 þar sem gert er ráð fyrir fjölgun íbúða úr 6 í 9 og auknu byggingarmagni úr 1.236 m2 í 1.522 m2.
Málsnúmer 1302243
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar, dags. 20.11.14.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu á aðalskipulagsverkefninu þar sem fram koma helstu áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1411092
14
Umsókn um byggingarleyfi - stöðuleyfi, spilda A úr landi Grundar.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á stöðuleyfi fyrir 50 m2 hús tímabundið í eitt ár á landi Grundar. Um er að ræða friðað hús sem flutt verður úr miðbæ Reykjavíkur til að vinna að því að gera það upp áður en það verður flutt á lóð í Hafnarfirði.
Málsnúmer 1409157
15
Umsókn um byggingarleyfi - Víkurgata 2
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar fjölbýlishúss fyrir 10 íbúðir við Víkurgötu 2.
Málsnúmer 1409483
16
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 8-12
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar fjölbýlishúss fyrir 24 íbúðir við Holtsveg 8 -12.
Málsnúmer 1411225
17
Bréf Hjallastefnunnar um endurskoðun á ákvæði samnings um framlag með nemendum í 1.-7. bekkjar, dags. 20.11.2014.
Bæjarráð samþykkir með vísan til ákvæðis í 13. gr. samnings Garðabæjar og Hjallastefnunnar um starfsemi grunnskóla, dags. 13. desember 2013 að fram fari endurskoðun á ákvæðum samningsins og skal henni lokið innan þriggja mánaða eins og mælt er fyrir um í tilvitnuðu ákvæðinu. Bæjarráð samþykkir að þar til niðurstöður aðila um endurskoðun samningsins liggja fyrir skuli ekki koma til lækkunar á framlagi til Barnaskóla Hjallastefnunnar.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja þegar viðræður við bréfritara um endurskoðun samningsins.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1409324
18
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015.
Farið var í heimsóknir í Garðaskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla og íþróttahúsin við Ásgarð og Mýrina.