Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 27, dags. 13.08.15.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
31. (1699). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna Holtsvegar 27 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 9 í 10 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 701.249 á íbúð m.v. BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Holtsvegur 27 að lokinni kynningu sem stóð frá 15.maí til 26.júní. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 9 í 10. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sbr. 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
7. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 27 sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 9 í 10.$line$Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 701.249 á íbúð m.v. BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Bæjarráð Garðabæjar
04
16 (1684). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 27 sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 9 í 10.$line$Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samingi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 701.249 á íbúð m.v. BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriaðholts sem nær til lóðarinnar Holtsvegur 27. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámrksfjöldi íbúða hækki úr 9 í 10. Umsögn deiliskipulagshöfundar liggur fyrir.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga. Þar sem að tillagan er í samræmi við meginforsendur aðalskipulags er fallið frá forkynningu.$line$Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála. $line$Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það. Gjaldið nemur kr. 701.249 á íbúð miðað við BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
1. fundur
Lögð fram tillaga að um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir því að ákvæði um fjölda íbúða verði 10 í stað 9. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf sem tekur jákvætt í tillöguna.$line$Skipulagsnefnd tekur undir framlagða umsögn og beinir því til umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu deiliskipulags.$line$Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála. $line$Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það. Gjaldið nemur kr. 701.249 á íbúð miðað við BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Bæjarráð Garðabæjar
07
45. fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá grenndarkynningu samkvæmt ákvæði 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga við afgreiðslu á byggingarleyfi hússins við Holtsveg 27 þar sem um óveruleg frávik er að ræða frá deiliskipulagsskilmálum, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. sömu laga.$line$$line$Í afgreiðslu skipulagsnefndar kemur fram að jafnframt hafi verið lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar þar sem farið fram á fjölgun íbúða úr 9 í 10 og var umsókninni vísað til umsagnar höfundar deiliskipulagsins.$line$$line$Baldur Ó. Svavarsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
18. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur bílageymslu færist til um 2 m til norðurs og að hámarksfjölda íbúða á lóðinni verði 10 í stað 9. Heildarfjöldi bílastæði uppfyllir kröfu deiliskipulags samkvæmt tillögunni.$line$Skipulagsnefnd leggur til að útfærsla bílageymslu sem nemur 2 m tilfærslu frá byggingarreits til norðurs falli undir ákvæði 3.mgr.43.gr. Skipulagslaga sem óverulegt frávik enda skerðast hagsmunir nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.$line$Tillögu um fjölgun íbúða og útfærslu tillögunnar er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.