18. fundur
18. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
20.11.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Auður Hallgrímsdóttir
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1302243
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Lögð fram tillaga að lýsingu aðalskipulagsgerðar. Nefndin kom á framfæri nokkrum atriðum sem hún óskar eftir að verði lagfærð. Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 30.gr. Skipulagslaga. Boða skal til almenns kynningarfundar fljótlega eftir áramót þar sem lýsingin verður kynnt þ.e. hvaða áherslur bæjarstjórn hefur við aðalskipulagsgerðina, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli.
Málsnúmer 1411198
02
Hagaflöt 22, fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort til álita komi að breyta deiliskipulagi Flata með þeim hætti að byggingarreitur yrði stækkaður að götu fyrir framan bílageymslu og að vikið yrði frá ákvæði deiliskipulags um lengd bílageymslu að lóðarmörkum úr 7,5 m í 10, 4 m.$line$Skipulagsnefnd er ekki reiðubúin til þess að stækka byggingarreiti í nýsamþykktu deiliskipulagi í átt að götu og er ekki reiðubúin til þess að breyta ákvæðum um lengd bílageymslu. Svarið er því neikvætt.
Málsnúmer 1411197
03
Tjarnarflöt 11, fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort heimilt verði að reisa hæð ofan á bílageymslu sem stendur um 1 metra lægra en einbýlishúsið. Það myndi þýða deiliskipulagsbreytingu þar sem á lóðinni væri heimilt að reisa 11/2 í stað 1 hæðar.$line$Skipulagsnefnd telur að sú breyting myndi vera í ósamræmi við önnur hús við Tjarnarflöt sem eru einnar hæðar með bílageymslum sem standa í mörgum tilfellum lægra en íbúðarhúsin. Svarið er því neikvætt.
Málsnúmer 1411163
04
Iðnbúð 1, dsk br Iðnb/Smiðsb, fjölgun íbúða.
Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar sem gerir ráð fyrir því að ákvæði um að íbúðir á neðri hæð húsa séu ekki leyfðar verði breytt þannig að unnt verði að leyfa íbúð á neðri hæð.$line$Árið 2006 var samþykkt breyting á deiliskipulagi þannig að hámarksstærð íbúða 180 m2 var felld út en heimilt var hafa íbúðir á efri hæð en ekki á jarðhæð.$line$Með vísan í breytingu deiliskipulagsins frá 2006 hafnar skipulagsnefnd tillögunni.
Málsnúmer 1410479
05
Strandblakvöllur
Lagt fram erindi frá Ungmennafélaginu Stjörnunni þar sem fram kemur beiðni um aðkomu ungmennafélagsins að útfærslu og uppbyggingu strandblakvalla í Garðabæ.$line$Skipulagsnefn er fyrir sitt leyti jákvæð gagnvart aðkomu Stjörnunnar að útfærslu strandblakvalla en mælir með því að þeim sé fundinn staður með deiliskipulagsferli. Skipulagsnefnd býður fulltrúum Stjörnunnar á fund nefndarinnar að kynna hugmyndir sínar og áherslur um strandblakvöll.
Málsnúmer 1411157
06
Holtsvegur 27, dsk br Urr.Vesturhl, viðbótaríbúð.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur bílageymslu færist til um 2 m til norðurs og að hámarksfjölda íbúða á lóðinni verði 10 í stað 9. Heildarfjöldi bílastæði uppfyllir kröfu deiliskipulags samkvæmt tillögunni.$line$Skipulagsnefnd leggur til að útfærsla bílageymslu sem nemur 2 m tilfærslu frá byggingarreits til norðurs falli undir ákvæði 3.mgr.43.gr. Skipulagslaga sem óverulegt frávik enda skerðast hagsmunir nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.$line$Tillögu um fjölgun íbúða og útfærslu tillögunnar er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Málsnúmer 1411153
07
Holtsvegur 41, dsk br Vesturhl Urriðaholts, viðbótaríbúð.
Lögð fram tillag að breyting deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að heildarfjöldi íbúða verði 10 í stað 9 þar sem að hönnun hússins hefur leitt í ljós að aðstæður eru með þeim hætti á lóðinni að með viðbótaríbúð fáist betri heildarlausn.$line$Tillögu um fjölgun íbúða og útfærslu tillögunnar er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.$line$Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 1411094
08
Kinnargata 27, dsk br Vesturhluti Urriðaholts
Lögð fram tillaga um fjölgun íbúða á lóðinni úr 6 í 9 og um aukningu viðmiðunarbyggingarmagns úr 1236 m2 í 1522.$line$Tillögunni hafnað.