Beint í efni

Tjarnarflöt 11, br á dsk Flata grenndarkynning

Málsnúmer 1411197

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. sömu laga, vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata en um er að ræða umsókn um byggingu ofan á bílskúr hússins allt innan hámarkshæðar samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

Bæjarráð Garðabæjar

02

16 (1684). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. sömu laga, vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata en um er að ræða umsókn um byggingu ofan á bílskúr hússins allt innan hámarkshæðar samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingum á húsinu að Tjarnarflöt 11 sem gerir ráð fyrir því að bílageymsla verði fjarlægð og í stað hennar komi bílageymsla sem er um 60 cm neðar en sú sem nú stendur og ofan á hana komi íbúðarhæð. Hæð hússins er innan hamarkshæðar samkvæmt deiliskipulagi. Samkvæmt deiliskipulagi skal hús vera einnar hæðar en samkvæmt tillögunni yrði húsið að hluta til ein og hálf hæð eins og sum hús á Flötum eru skv. deiliskipulagi. Þar sem að húsið stendur ofan við götu, verður innan hámarkshæðar og halli innkeyrslu að bílageymslu verður hóflegur er tillögunni vísað til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags. Breytingin yrði því sú að í stað þess að húsið verði skilgreint 1 hæð verði það 1,5 hæð.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

18. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort heimilt verði að reisa hæð ofan á bílageymslu sem stendur um 1 metra lægra en einbýlishúsið. Það myndi þýða deiliskipulagsbreytingu þar sem á lóðinni væri heimilt að reisa 11/2 í stað 1 hæðar.$line$Skipulagsnefnd telur að sú breyting myndi vera í ósamræmi við önnur hús við Tjarnarflöt sem eru einnar hæðar með bílageymslum sem standa í mörgum tilfellum lægra en íbúðarhúsin. Svarið er því neikvætt.