Beint í efni

16 (1684). fundur

28.04.2015
Bæjarráð Garðabæjar

16 (1684). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

28.04.2015

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1504202

01

Bréf þjónustustjóra varðandi breytingar á erindisbréfi fyrir ungmennaráð, dags. 21.04.15.

Bæjarráð tekur jákvætt í tillögur ungmennaráðs um breytingar á erindisbréfi og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504203

02

Bréf þjónustustjóra varðandi strætósamgöngur og fleiri mál frá ungmennaráði, dags. 21.04.15.

Í bréfinu er bent á þörf á fjölgun strætóferða út á Álftanes og betri samræmingu á tímasetningu þeirra leiða sem fara um Ásgarð.$line$$line$Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarverkfræðings og fulltrúa bæjarins í stjórn Strætó bs.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, fulltrúi bæjarins í stjórn Strætó bs. gerði grein fyrir samþykktum stjórnar Strætó bs. um breytingar á fargjöldum fyrir ungmenni.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1412209

03

Tillaga svæðisskipulagsnefndar að þróunaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðisins 2015-2018, fyrri hluti.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1501092

04

Tillaga leikskólanefndar um breytingu á gjaldskrá leikskóla

Bæjarráð samþykkir tillögur leikskólanefndar um breytingar á gjaldskrá leikskóla og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1410146

05

Tillaga skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar um skólagjöld skólaárið 2015-2016.

Bæjarráð vísar tillögu að gjaldskrá fyrir skólaárið 2014 - 2015 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504212

06

Bréf ADHD samtakanna varðandi notkun hvatapeninga á námskeið samtakanna, dags. 20.04.15.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504223

07

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2016, dags. 22.04.15.

Málsnúmer 1503022

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagsbreytingu vegna Breiðakurs 1-15 og 2-16, dags. 22.04.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðareiganda um breytingu á deiliskipulagi lóðanna við Breiðakur 1-15 um að þar verði fjölbýlishús með 16 íbúðum í stað raðhúsa með 8 íbúðum.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skiplagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðanna við Breiðakur 2-16 um að þar verði reist fjölbýlishús með 16 íbúðum í stað raðhúsa með 8 íbúðum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504025

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi bílastæði við Brekkuskóga 1, safnaðarheimili, dags. 22.04.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að grenndarkynna umsókn um framkvæmdaleyfi vegna 20 bílastæða við lóðina að Brekkuskógum 1 sem nýtt verða fyrir starfsemi safnaðarheimilis, sbr, 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503338

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi vegna Búðarflatar 2-4, dags. 22.04.15.

Lagt fram svar skipulagsnefndar þar sem nefndin leggst gegn því að byggð verði tvö parhús á óbyggðu svæði við Búðarflöt, þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag og þá þykir tillaga um byggingu parhúsa ekki í samræmi við byggðamynstur Vestur-Skógtjarnarsvæði þar sem eingöngu hafa verið byggð einbýlishús á lóðum sem eru 1.000 - 2.000 m2 að stærð.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504169

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Hleina að Langeyrarmölum, dags. 22.04.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skiptingu á sameiginlegu deiliskipulagi Hafnarfjarðar og Garðabæjar fyrir Hleina að Langeyrarmölum miðað við bæjarmörk sveitarfélaganna. Nýtt deiliskipulag innan bæjarmarka Garðabæjar verður fyrir svæði kennt við Hleina, Bala og Bakkastekk.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1411157

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna Holtsvegar 27, dags. 22.04.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Holtsveg 27 sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 9 í 10.$line$Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samingi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 701.249 á íbúð m.v. BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1306040

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040, dags. 22.04.15.

Bæjarráð samþykkir að vísa afgreiðslu tillögunnar til bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1411197

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um breytingu að Tjarnarflöt 11, dags. 22.04.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. sömu laga, vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata en um er að ræða umsókn um byggingu ofan á bílskúr hússins allt innan hámarkshæðar samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503260

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi Holtsbúð 91, dags. 22.04.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr 1. mgr sömu greinar vegna umsóknar um byggingarleyfi um breytingar á einbýlishúsinu við Holtsbúð nr. 91. Umsóknin verður grenndarkynnt án svala á norðurhlið hússins sem ná út fyrir byggingarreit samkvæmt tillögu að deiliskipulagi Holtsbúðar sem nú er í kynningu samkvæmt 1. mgr 43. gr skipulagslaga.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1503421

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um breytingu að Þernunesi 7, dags. 22.04.15.

Lagt fram svar skipulagsnefndar þar sem lýst er neikvæðri afstöðu gagnvart hugmyndum um stækkun bílskúrs út fyrir byggingarreit samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1504230

17

Tilkynning frá innanríkisráðuneytinu um útgáfu skýrslu varðandi aðkomu einkaaðila að samgönguframkvæmdum

Málsnúmer 1502222

18

Sumarstörf ungmenna 2015 - staða mála

Lagt fram minnisblað mannauðsstjóra varðandi fjölda umsækjenda um sumarstörf. Í minnisblaðinu kemur fram að 505 umsóknir bárust en í mörgum tilvikum er verið að sækja um fleiri störf en eitt. Umsóknarfrestur rann út 23. mars sl. og eru nú 134 umsækjendur á biðlista.$line$$line$Bæjarstjóra falið að vinna að nánari útfærslu á fyrirkomulagi og skipulagi sumarvinnu ungmenna.

Málsnúmer 1504231

19

Samstarfssamningur sveitarfélaga og menntavísindasviðs Háskóla Íslands um rannsóknir í leikskólum

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti en árlegt framlag Garðabæjar árin 2016 - 2018 er í samræmi við fjárheimildir samkvæmt fjárhagsáætlun.

Málsnúmer 1503425

20

Fyrirspurn Maríu Grétarsdóttur um stjórnarkjör til aðalstjórnar í Lánasjóði sveitarfélaga, dags. 22.04.15.

Bæjarstjóri upplýsti að hafa greitt atkvæði við stjórnarkjör á aðalfundi Lánasjóðs sveitarfélaga í samræmi við tillögu kjörnefndar enda byggir tillagan á mati á hæfi þeirra aðila sem mælt er með og því rökrétt að greiða henni atkvæði.

Fylgiskjöl