Beint í efni

Breiðakur 2-16, br á dsk Akra.

Málsnúmer 1503022

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. fundur

Til sérstakrar afgreiðslu
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Akra sem gerir ráð fyrir að breyta 2. hæða raðhúsum við vestanverðan Breiðakur í 2. hæða fjölbýlishús og fjölga íbúðum úr 8 í 16, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust við tillöguna frá íbúum í Breiðakri og Dalakri og hefur verið tekin afstaða til þeirra.
Samþykkt um breytingu á deiliskipulagi skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.

María Grétarsdóttir og Sigríður Erla Jónsdóttir sátu hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

02

31. (1699). fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa til bæjarstjórnar með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Akra sem gerir ráð fyrir að breyta 2. hæða raðhúsum við vestanverðan Breiðakur í 2. hæða fjölbýlishús og fjölga íbúðum úr 8 í 16. Athugasemdir bárust við tillöguna frá íbúum í Breiðakri og Dalakri og hefur verið tekin afstaða til þeirra. Athugasemdum verður svarað.
Samþykkt um breytingu á deiliskipulagi skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.

María Grétarsdóttir situr hjá.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra sem nær til lóðanna Breiðakur 2-16 að lokinni kynningu sem stóð frá 15.maí til 26.júní. Tillagan gerir ráð fyrir því að í stað 2.hæða raðhúsa með 8 íbúðum komi tvö 2.hæða fjölbýlishús með 16 íbúðum. Tvö athugasemdabréf hafa borist þar sem að íbúar við Árakur og Dalakur lýsa yfir áhyggjum af aukinni umferð og álagi vegna aukins íbúafjölda. Íbúðum mun fjölga um 8 en ekki 16 eins og fram kemur í athugasemd. Íbúðum sem nota neðri hluta Akrabrautar sem aðkomu fjölgar úr 79 í 87 sem er ásættanleg aukning að mati skipulagsnefndar. Húsin að Breiðakri 2-16 liggja ekki að lóðum íbúðarhúsa að Dalakri eins og gengið er út frá í athugasemd. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta og felur skipulagsstjóra að svara þeim sem athugasemdir gerður og ljúka skipulagsferli.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

7. fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðareiganda um breytingu á deiliskipulagi lóðanna við Breiðakur 1-15 um að þar verði fjölbýlishús með 16 íbúðum í stað raðhúsa með 8 íbúðum.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu skiplagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðanna við Breiðakur 2-16 um að þar verði reist fjölbýlishús með 16 íbúðum í stað raðhúsa með 8 íbúðum.

Bæjarráð Garðabæjar

05

16 (1684). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðareiganda um breytingu á deiliskipulagi lóðanna við Breiðakur 1-15 um að þar verði fjölbýlishús með 16 íbúðum í stað raðhúsa með 8 íbúðum.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skiplagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðanna við Breiðakur 2-16 um að þar verði reist fjölbýlishús með 16 íbúðum í stað raðhúsa með 8 íbúðum.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

5. fundur

Lögð fram tillaga lóðarhafa að deiliskipulagsbreytingum að lokinni skoðun hjá tækni-og umhverfissviði. Skipulagsnefnd hafnar tillögu um að á lóðunum 1-15 verði reist fjölbýlishús en vísar tillögu um fjölbýlishús á lóðunum 2-16 til kynningar sem breyting á deiliskipulagi Akra í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

3. fundur

Lögð fram tillaga á vegum lóðarhafa að breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðanna Breiðakur 1-7 og 2-8. Tillagan gerir ráð fyrir því að í stað 16 íbúðareininga í raðhúsum í 4 samstæðum komi 32 íbúðareiningar í 4 fjölbýlishúsum. Byggingarmagn er óbreytt.$line$Gert er ráð fyrir bílastæðum við götu en einnig á milli húsanna sem eru ofan við götu.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.