11. fundur
11. fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
20.08.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Viktoría Jensdóttir - varamaður
- Björg Fenger - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Björk Gunnarsdóttir - varamaður
- Sigþrúður Ármann - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - varamaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði. [line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 18. júní 2015 er lögð fram. [line]
Dagskrá
Málsnúmer 1508211
01
100 ára afmæli kosningarréttar kvenna til Alþingis
Áslaug Hulda Jónsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu.
,,Sumarið 2016 gefst ungmennum í Garðabæ á aldrinum 18-25 ára tækifæri til að sækja um sumarstarf á bæjarskrifstofum Garðabæjar og munu þau starfa með yfirstjórn sveitarfélagsins.“
Greinargerð:
100 ár eru liðin frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis.
Þessum tímamótum hefur verið fagnað á ýmsan hátt m.a. með þessum hátíðarfundi bæjarstjórnar Garðabæjar þar sem eingöngu kvenbæjarfulltrúar sitja fundinn.
Réttindabaráttu lýkur aldrei og það er mikilvægt að unnið sé áfram að efla hvern einstakling óháð kyni, kynþætti, aldri og stöðu.
Stjórnmálaþátttaka og áhugi ungs fólks á stjórnmálum fer minnkandi. Það er mikilvægt að leitað sé leiða til að efla þennan hóp, virkja til þátttöku þannig að þeirra sjónarmið heyrist og hafi áhrif á ákvarðanatöku er varða málefni sveitarfélagsins og samfélagsins alls.
Til að efla og styðja við ungt fólk í Garðabæ leggjum við til eftirfarandi tillögur sem unnar verða áfram í samvinnu við ungmennaráð, skóla og frjáls félög í bænum.
Jóna Sæmundsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu með sömu greinargerð og fylgdi tillögu Áslaugar Huldu Jónsdóttur.
,,Bæjarstjórn Garðabæjar beitir sér fyrir því að fjölbreytt námskeið verði í boði til að efla og styrkja ungmenni í Garðabæ.“
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu með sömu greinargerð og fylgdi tillögu Áslaugar Huldu Jónsdóttur.
,,Bæjarstjórn Garðabæjar standi á þessu kjörtímabili fyrir árlegu stefnumóti við ungmenni í bæjarfélaginu, frá og með næsta ári 2016. Þannig sé skapaður vettvangur sem styrkir tengingu bæjarfulltrúa og ungs fólks í bæjarfélaginu. Ungu fólki gefist tækifæri til að átta sig betur á því hvernig bæjarfélaginu er stýrt, hvernig hægt er að hafa áhrif á samfélagið með því að láta sín sjónarmið heyrast, taka þátt í kosningum og sýna samfélagslega ábyrgð.“
María Grétarsdóttir tók til máls og ræddi tillögurnar og mikilvægi þeirra.
Björg Fenger tók til máls og ræddi m.a. um þátttöku barna og ungenna í íþrótta- og tómstundastarfi og mikilvægi þess að hafa fyrirmyndir. Björg óskaði Stjörnukonum góðs gengis í leikjunum framundan í knattspyrnu.
Sigríður Björk Gunnarsdóttir tók til máls og greindi m.a. frá opnum fundi á vegum mannréttinda- og forvarnarnefndar í haust.
Guðrún Elín Herbertsdóttir tók til máls og ræddi um mikilvægi þess að fylgja eftir þessum tillögum og um hlutverk ungmennaráðs.
Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir tók til máls og tók undir að nauðsynlegt er að efla unga fólkið og hlusta á það. Súsanna ræddi einnig m.a. um kynjaða hagstjórn og mikilvægi og árangur slíkrar hagstjórnar.
Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir lagði fram eftirfarandi tillögur.
,,Björt framtíð leggur til að Garðabær tileinki sér breytt verklag og nýja hugsun í gerð fjárhagsáætlana og taki upp kynjaða hagstjórn í fjárlagagerð líkt og ríkistjórn, ráðuneyti og önnur sveitarfélög hafa gert. Kynjuð hagstjórn felst í því að leggja mat út frá sjónarmiðum beggja kynja á fjárhagsáætlanir með samþættingu tveggja veigamikilla stefna, mannréttindastefnu og fjárlagastefnu sveitafélagsins að leiðarljósi. Með því að horfa út frá mismunandi kynjasjónarmiðum við gerð áætlana er hægt að bæta ákvörðunartöku, stuðla að jafnrétti og gæta þess að misrétti verði ekki beitt gagnvart íbúum.?
,,Björt framtíð leggur til að Garðabær setji saman stýrihóp til að vinna að innleiðingarferli um kynjaða hagstjórn og bjóði upp á fræðslu og kynningu á hlutverk og markmið kynjaðrar hagstjórnar fyrir starfsmenn og íbúa.?
Greinargerð:
Nú eru liðin 100 ár frá því að íslenskar konur fengu kosningarrétt. Margt hefur áunnist á þessum 100 árum og í dag kalla nútímasamfélag á góða stjórnsýsluhætti sem byggjast á jafnrétti, sanngirni og skilvirkni. Góð stjórnsýsla er ekki bara gagnsæi í fjárlagagerð og hagsýni í nýtingu fjármuna sveitarfélaga heldur að ákvarðanir séu teknar á jafnréttisgrundvelli. Kynjuð hagstjórn er mikilvægt og sanngjarnt árangursstjórnunar tæki sem bæði ráðuneyti og sveitarfélög á Íslandi hafa notast við í endurskipulagningu fjárlagagerðar á grundvelli jafnréttissjónarmiða. Sem dæmi um mikilvægi kynjaðra hagstjórnar, þann 19. júní samþykkti ríkisstjórnin á fundi 5 ára innleiðingaráætlun um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð og tekur innleiðingaráætlunin mið af frumvarpi til laga um opinber fjármál, sem nú er til umfjöllunar hjá Alþingi.
Ávinningurinn af kynjaðri hagstjórn og fjárlagagerð er margþætt: greinir kynjaáhrif, tekur tillit til þarfa íbúa, stuðlar að frekara jafnrétti, betri nýtingu fjármuna og réttlátari ákvörðunartöku. En til að ná settum markmiðum kynjaðra hagstjórnar þurfa aðilar að tileinka sér nýja hugsun og breytt verklag.
Sigþrúður Ármann tók til máls og ræddi m.a. um valfrelsi í skólamálum, grunn- og leikskóla og þjónustu þar sem 12 mánaða börn komast nú að í leikskóla. Einnig ræddi hún um mikilvægi valfrelsis meðal eldri íbúa sveitarfélagsins.
Áslaug Hulda Jónsdóttir tók til máls og fagnaði tillögum Bjartrar framtíðar og lagði til að vísa þeim til bæjarráðs Garðabæjar.
Framkomnar tillögur Áslaugar Huldu Jónsdóttur, Jónu Sæmundsdóttur og Sigríðar Huldu Jónsdóttur voru samþykktar samhljóða.
Tillögur um vísa framkomnum tillögum Súsönnu Bjargar Vílhjálmsdóttur til bæjarráðs Garðabæjar voru samþykktar samhljóða.
Málsnúmer 1506023F
02
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 23/6 ´15.
María Grétarsdóttir ræddi 9.tl,. útboð skólamálsverða í Sjálandsskóla og spurðist fyrir um það.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 9. tl,. útboð skólamálsverða í Sjálandsskóla og sagði að markmiðið hefði verið að auka fjölbreytileika í skólamat. Það verði skoðað áfram og fleiri leiða leitað.
María Grétarsdóttir tók til máls og lagði fram fyrirspurn um hvernig matarmál yrðu í Sjálandsskóla í haust.
Sigríður Hulda Jónsdóttir svaraði fyrirspurn um að matur yrði með hefðbundnum hætti og áður í Sjálandsskóla.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1506035F
03
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 30/6 ´15.
Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 2. tl, lagningu samgöngustígs vestan Hafnarfjarðarvegar við Arnarnes og um úttektir á slysagildrum í bæjarfélaginu.
Jóna Sæmundsdóttir ræddi 2. tl., og sagði frá áætlun um göngu- og hjólreiðastíga og tengingu á milli sveitarfélaga. Einnig ræddi hún um mikla aukningu sem hefur orðið í hjólreiðum og nýtingu á stígum og um vitundarvakningu sem þarf að eiga sér stað varðandi umferðaröryggi.
Sigríður Erla Jónsdóttir tók til máls og tók undir að merkja þarf betur stíga og tengingar á milli sveitarfélaga.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1507003F
04
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 7/7 ´15.
Viktoría Jensdóttir ræddi 11. tl., um styrki fyrir starfsmenn Garðabæjar til náms og mikilvægi þess að bærinn hafi góða leikskólakennara.
Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 6. tl., styrk varðandi úttektir um aðgengi til fatlaðs fólks og lagði fram fyrirspurn um hvort sótt hafi verið um styrk og ef ekki hvenær var síðast sótt um styrk.
Áslaug Hulda Jónsdóttir tók til máls og sagðist ætla að kanna málið og svar liggi fyrir á næsta bæjarráðsfundi.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1507010F
05
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 14/7 ´15.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1507013F
06
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 21/7 ´15.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1507017F
07
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 28/7 ´15.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1508010F
08
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 11/8 ´15.
Viktoría Jensdóttir ræddi 2.tl., bréf Erasmus plús um styrk sem leikskólinn Kirkjuból fékk.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1508015F
09
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 18/8 '15.
Til sérstakrar afgreiðslu
María Grétarsdóttir ræddi 3. tl., og gerði grein fyrir afstöðu sinni um að sitja hjá.
Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 3. tl., og um nauðsyn þess að fjölga íbúðum fyrir ungt fólk.
Til sérstakrar afgreiðslu
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Akra sem gerir ráð fyrir að breyta 2. hæða raðhúsum við vestanverðan Breiðakur í 2. hæða fjölbýlishús og fjölga íbúðum úr 8 í 16, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust við tillöguna frá íbúum í Breiðakri og Dalakri og hefur verið tekin afstaða til þeirra.
Samþykkt um breytingu á deiliskipulagi skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
María Grétarsdóttir og Sigríður Erla Jónsdóttir sátu hjá.
Fundargerðin lögð fram og samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1507007F
10
Fundargerð umhverfisnefndar frá 8/7 '15.
Jóna Sæmundsdóttir ræddi um snyrtilegt umhverfi og um niðurstöður af opnum fundi umhverfisnefndar sem nú eru aðgengilegar á vef Garðabæjar.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1508011F
11
Fundargerð umhverfisnefndar frá 12/8 '15.
Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 1. tl., skýrslu umhverfishópa og ræddi um framtíðarsýn um frístundastarf fyrir fötluð ungmenni.
Jóna Sæmundsdóttir ræddi 1. tl. skýrslu um starf umhverfishópa, og sagði frá því að þetta hefði verið þriðja sumarið sem boðið var uppá frístundastarf fyrir fötluð ungmenni en það fellur ekki beint undir umhverfisnefnd. Starfið hefur verið rýnt að loknu hverju sumri til að skoða hvað megi betur fara.
Jóna ræddi einnig um söguskilti sem hafa verið gerð um Skansinn á Álftanesi og um sögugöngu um Álftanesið sem framundan er undir leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Jóna greindi einnig frá því að unnið er að samþykkt um hænsnahald í Garðabæ sem verður lögð fram næsta vor.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1507004F
12
Fundargerð fjölskylduráðs frá 23/7 '15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1508008F
13
Fundargerð fjölskylduráðs frá 13/8 '15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1505009F
14
Fundargerð leikskólanefndar frá 15/6 '15.
Viktoría Jensdóttir ræddi 1. tl. viðhorfskönnun um dagforeldra í Garðabæ, og um laus pláss hjá dagforeldrum í Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1507018F
15
Fundargerð leikskólanefndar frá 17/8 '15.
Viktoría Jensdóttir ræddi 4. tl., skýrslu starfshóps vegna þingsályktunartillögu um fæðingarorlof og ræddi um mikilvægi valfrelsis í skólamálum.
María Grétarsdóttir tók til máls og tók undir orð um mikilvægi að hafa val og greindi frá tillögu Fólksins í bænum sem hefði verið hafnað um að foreldrar gætu valið um að vera heima og fá sambærilega greiðslu og er annars greidd til þriðja aðila.
María Grétarsdóttir færði þakkir til Önnu Magneu Hreinsdóttur leikskólafulltrúa fyrir frábært starf í gegnum árin.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi um þróunarsjóði leik- og grunnskóla og áherslu á læsi þetta ár við úthlutun úr sjóðnum og ræddi einnig um þjóðarsáttmála um læsi. Sigríður Hulda Jónsdóttir tók undir þakkir til Önnu Magneu Hreinsdóttur leikskólafulltrúa fyrir faglegt starf og samstarf.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1506032F
16
Fundargerð skipulagsnefndar frá 26/6 '15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1506041F
17
Fundargerð skipulagsnefndar frá 2/7 '15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1508013F
18
Fundargerð skipulagsnefndar frá 13/8 '15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1505017F
19
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 19/5 '15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1502027
20
Fundargerðir Strætó bs. frá 26/6 og 14/8 '15.
Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 3. tl. um framkvæmdaráð ferðaþjónustu fatlaðs fólks og spurðist fyrir um hvort þetta væri sama ráð og hefði verið í neyðarstjórn strætó og vildi fá nánari umræðu um þetta.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og sagði að fyrirspurninni verður svarað síðar.
Fundargerðirnar lagðar fram.