Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 18/8 '15.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. fundur
María Grétarsdóttir ræddi 3. tl., og gerði grein fyrir afstöðu sinni um að sitja hjá.
Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 3. tl., og um nauðsyn þess að fjölga íbúðum fyrir ungt fólk.
Til sérstakrar afgreiðslu
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Akra sem gerir ráð fyrir að breyta 2. hæða raðhúsum við vestanverðan Breiðakur í 2. hæða fjölbýlishús og fjölga íbúðum úr 8 í 16, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust við tillöguna frá íbúum í Breiðakri og Dalakri og hefur verið tekin afstaða til þeirra.
Samþykkt um breytingu á deiliskipulagi skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
María Grétarsdóttir og Sigríður Erla Jónsdóttir sátu hjá.
Fundargerðin lögð fram og samþykkt samhljóða.