Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 7/7 ´15.
Málsnúmer 1507003F
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. fundur
Viktoría Jensdóttir ræddi 11. tl., um styrki fyrir starfsmenn Garðabæjar til náms og mikilvægi þess að bærinn hafi góða leikskólakennara.
Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 6. tl., styrk varðandi úttektir um aðgengi til fatlaðs fólks og lagði fram fyrirspurn um hvort sótt hafi verið um styrk og ef ekki hvenær var síðast sótt um styrk.
Áslaug Hulda Jónsdóttir tók til máls og sagðist ætla að kanna málið og svar liggi fyrir á næsta bæjarráðsfundi.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.