Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 30/6 ´15.
Málsnúmer 1506035F
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
11. fundur
Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 2. tl, lagningu samgöngustígs vestan Hafnarfjarðarvegar við Arnarnes og um úttektir á slysagildrum í bæjarfélaginu.
Jóna Sæmundsdóttir ræddi 2. tl., og sagði frá áætlun um göngu- og hjólreiðastíga og tengingu á milli sveitarfélaga. Einnig ræddi hún um mikla aukningu sem hefur orðið í hjólreiðum og nýtingu á stígum og um vitundarvakningu sem þarf að eiga sér stað varðandi umferðaröryggi.
Sigríður Erla Jónsdóttir tók til máls og tók undir að merkja þarf betur stíga og tengingar á milli sveitarfélaga.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.