Beint í efni

Fundargerð umhverfisnefndar frá 12/8 '15.

Málsnúmer 1508011F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. fundur

Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 1. tl., skýrslu umhverfishópa og ræddi um framtíðarsýn um frístundastarf fyrir fötluð ungmenni.

Jóna Sæmundsdóttir ræddi 1. tl. skýrslu um starf umhverfishópa, og sagði frá því að þetta hefði verið þriðja sumarið sem boðið var uppá frístundastarf fyrir fötluð ungmenni en það fellur ekki beint undir umhverfisnefnd. Starfið hefur verið rýnt að loknu hverju sumri til að skoða hvað megi betur fara.
Jóna ræddi einnig um söguskilti sem hafa verið gerð um Skansinn á Álftanesi og um sögugöngu um Álftanesið sem framundan er undir leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Jóna greindi einnig frá því að unnið er að samþykkt um hænsnahald í Garðabæ sem verður lögð fram næsta vor.

Fundargerðin lögð fram.