Beint í efni

Fundargerð leikskólanefndar frá 17/8 '15.

Málsnúmer 1507018F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. fundur

Viktoría Jensdóttir ræddi 4. tl., skýrslu starfshóps vegna þingsályktunartillögu um fæðingarorlof og ræddi um mikilvægi valfrelsis í skólamálum.

María Grétarsdóttir tók til máls og tók undir orð um mikilvægi að hafa val og greindi frá tillögu Fólksins í bænum sem hefði verið hafnað um að foreldrar gætu valið um að vera heima og fá sambærilega greiðslu og er annars greidd til þriðja aðila.
María Grétarsdóttir færði þakkir til Önnu Magneu Hreinsdóttur leikskólafulltrúa fyrir frábært starf í gegnum árin.

Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi um þróunarsjóði leik- og grunnskóla og áherslu á læsi þetta ár við úthlutun úr sjóðnum og ræddi einnig um þjóðarsáttmála um læsi. Sigríður Hulda Jónsdóttir tók undir þakkir til Önnu Magneu Hreinsdóttur leikskólafulltrúa fyrir faglegt starf og samstarf.

Fundargerðin lögð fram.