5. fundur
5. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
22.04.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1502447
01
Bygging fjölnota íþróttahúss
Til fundarins mættu Baldvin Björn Haraldsson, Halldór Ragnar Emilsson, Helgi Hrannar Jónsson, Kristinn Ingi Lárusson og Valgeir Sigurðsson sem hafa lagt fram athugasemdir við staðarvalsskýrslu vegna fjölnota íþróttahúss. Gerðu þeir grein fyrir sjónarmiðum sínum en skoðun þeirra er eindregin sú að stórt fjölnotahús verði staðsett á Ásgarðsvæðinu og að hafist verði handa sem fyrst við undirbúning þeirrar framkvæmdar. Málinu vísað til frekari úrvinnslu.
Málsnúmer 1306040
02
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarastjórn að tillaga að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2049 verði samþykkt í samræmi við 2.mgr. 25.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og 9.gr.laga um umhverfismat áætlana nr.105/2006 með þeim breytingum sem svæðisskipulagsnefnd leggur til.
Málsnúmer 1504025
03
Brekkuskógar 1, safnaðarheimili grenndarkynning
Lögð fram tillaga að 20 bílastæðum vestan við íbúðarhúsið að Brekkuskógum 1 sem Bessastaðasókn hyggst nota sem safnaðarheimili. Skipulagsnefnd samþykkir að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir gerð bílastæðanna að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 5.mgr. 13.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Fyrir liggur að íbúar sem grenndarkynning nær til hafa lýst því yfir skriflega að þeir gera ekki athugasemd við gerð bílastæðanna og er skipulagsstjóra því heimilt að stytta grenndarkynningu í samræmi við 3.mgr. 44.gr. Skipulagslaga. Grenndarkynna skal öllum íbúum við Brekkuskóga ásamt Hofi.
Málsnúmer 1503260
04
Umsókn um byggingarleyfi Holtsbúð 91
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum að íbúðarhúsinu að Holtsbúð 91. Þar sem að ekki er gildandi deiliskipulag til staðar á lóðinni er umsókninni vísað til skipulagsnefndar af byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd bendir á að svalir á norðurhlið hússins ná út fyrir byggingarreit og er það ekki í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar sem nú er í kynningarferli. Skipulagsnefnd hafnar því tillögunni vegna svalanna en gerir að öðru leyti ekki athugasemd við tillöguna. Heimilt er skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna án umræddra svala í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga.
Málsnúmer 1503022
05
Breiðakur 1-15 og 2-16, br á dsk Akra.
Lögð fram tillaga lóðarhafa að deiliskipulagsbreytingum að lokinni skoðun hjá tækni-og umhverfissviði. Skipulagsnefnd hafnar tillögu um að á lóðunum 1-15 verði reist fjölbýlishús en vísar tillögu um fjölbýlishús á lóðunum 2-16 til kynningar sem breyting á deiliskipulagi Akra í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1411157
06
Holtsvegur 27, dsk br. Urr. Vesturhl, viðbótaríbúð
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriaðholts sem nær til lóðarinnar Holtsvegur 27. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámrksfjöldi íbúða hækki úr 9 í 10. Umsögn deiliskipulagshöfundar liggur fyrir.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga. Þar sem að tillagan er í samræmi við meginforsendur aðalskipulags er fallið frá forkynningu.$line$Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála. $line$Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það. Gjaldið nemur kr. 701.249 á íbúð miðað við BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1504169
07
Hleinar að Langeyrarmölun, skilnaðarmál.
Lögð fram tillaga að breytingu deiilskipualgs Hleina að Langeyrarmölum sem gerir ráð fyrir því að deiliskipulagi sé skipt upp á sveitarfélagamörkum í tvær sjálfstæðar deiliskipulagsáætlanir. Tillaga að nýju deiliskipulagi Garðabæjarmegin verði kallað Deiliskipulag Hleina, Bala og Bakkastekkjar. SKipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga.
Málsnúmer 1503338
08
Búðarflöt 2-4,Álftanesi, fyrirspurn um raðhús
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að byggja tvö parhús með alls fjórum íbúðareiningum á óbyggðu svæði við Búðarflöt sem liggur að Höfðabraut.$line$Þar sem á svæðinu er ekki deiliskiskipulag í gildi telur skipulagsnefnd að ljúka þurfi deiliskipulagsgerð fyrir Vestur-Skógtjarnarsvæðið áður en veitt verði byggingarleyfi fyrir nýbyggingum.$line$Framlögð tillaga er að mati nefndarinnar ekki í samræmi við byggðarmynstur Vestur-Skógtjarnarsvæðis þar sem eingöngu er þar um einbýlishús að ræða á lóðum sem eru 1.000 - 2.000 m2 að stærð.
Málsnúmer 1503421
09
Fyrirspurn - Þernunes 7
Lögð fram fyrirspurn um það hvort skipulagsnefnd telji unnt að byggja einsbíls bílageymslu utan byggingarreits til austurs. Tillagan er ekki í samræmi við nýsamþykkt deiliskipulag Arnarness né í samræmi við byggðarmynstur í Arnarnesi.$line$Svar er því neikvætt. Ástæða er til að hrósa umsækjanda fyrir fagmannlega unnin gögn.
Málsnúmer 1411197
10
Tjarnarflöt 11, fyrirspurn
Lögð fram tillaga að breytingum á húsinu að Tjarnarflöt 11 sem gerir ráð fyrir því að bílageymsla verði fjarlægð og í stað hennar komi bílageymsla sem er um 60 cm neðar en sú sem nú stendur og ofan á hana komi íbúðarhæð. Hæð hússins er innan hamarkshæðar samkvæmt deiliskipulagi. Samkvæmt deiliskipulagi skal hús vera einnar hæðar en samkvæmt tillögunni yrði húsið að hluta til ein og hálf hæð eins og sum hús á Flötum eru skv. deiliskipulagi. Þar sem að húsið stendur ofan við götu, verður innan hámarkshæðar og halli innkeyrslu að bílageymslu verður hóflegur er tillögunni vísað til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags. Breytingin yrði því sú að í stað þess að húsið verði skilgreint 1 hæð verði það 1,5 hæð.
Málsnúmer 1503192
11
Íbúðir fyrir ungt fólk í Garðabæ.
Til umfjöllunar eru húsnæðismál ungs fólks og með hvaða hætti hægt sé að koma til móts við þann hóp við skipulagsgerð í Garðabæ. Nefndin óskar eftir því að aðilar frá Samtökum iðnaðarins, Félagi fasteignasala og lánastofnunum komi til fundar við nefndina og upplýsi hana um stöðu mála og ræði leiðir.