Búðarflöt 2-4,Álftanesi, byggingarleyfi f einbýlishús
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
17. (781). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis á lóðunum við Búðarflöt 2-4 þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir enda hefur farið fram grenndarkynning samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
03
43. (1711). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis á lóðunum við Búðarflöt 2-4 þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir enda hefur farið fram grenndarkynning samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
15. fundur
Lögð fram tillaga að teikningum af 3 einbýlishúsum að lokinni grenndarkynningu. 5 athugasemdabréf hafa borist þar sem gerðar eru athugasemdir við eftirfarandi atriði:
hæðarkóti botnplötu er hærri en aðliggjandi húsa, þéttleiki virðist meiri en í hverfinu, tillagan gerir ráð fyrir fleiri húsum en áður ver gert var ráð fyrir sjávargangur getur verið á lóðinni og einsleitni bygginganna í stúf við aðliggjandi byggð, .
Skipulagsnefnd telur að lækka skuli botnplötur í sömu hæð og botnplötur aðliggjandi húsa og vísar þar til heimildar á blaðsíðu 53 í greinargerð Aðalskipulags Álftaness 2005-2024.
Þéttleiki lóðanna samkvæmt tillögunni samsvarar nýtingarhlutfalli 0,18-0,20 en er 0,2 á aðliggjandi lóðum. Þéttleiki húsanna og fjarlægð á milli þeirra er því í samræmi við byggðarmynstur hverfisins.
Lóðin er á svæði sem er skilgreint sem íbúðarbyggð í gildandi aðalskipulagi. Hætta vegna sjávargangs er sambærileg og í aðliggjandi byggð. Skipulagsnefnd beinir því til bæjarverkfræðings að hætta vegna sjávargangs og gerð sjóvarna verðið skoðuð við Búðarflöt.
Skipulagsnefnd beinir því til byggingarfulltrúa að yfirbragð byggingnna, klæðningar og litur verði fjölbreytt og gerir það að skilyrði fyrir veittu byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi fyrir húsunum með þeim breytingum sem lagt er til að gerðar verði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
14. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn þriggja einbýlishúsalóða við Búðarflöt að lokinni grenndarkynningu. 5 athugasemdabréf hafa borist.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
8. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort heimilað verði að reisa 3 einbýlishús á lóðinni Búðarflöt 2-4.
Skipulagsnefnd telur að tillagan falli ágætlega að byggðarmynstri svæðisins.Svarið er því jákvætt. Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu þarf að sækja um byggingarleyfi sem hægt verður að vísa í grenndarkynningu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
6. fundur
Lögð fram fyrirspurn um tillögu að þremur einbýlishús við Búðarflöt 2-4 á Álftanesi. Skipulagsnefnd telur að tillagan sé í samræmi við byggðamynstur svæðisins og í samræmi við aðalskipulag Álftaness. Svarið er því jákvætt. Leggja þarf fram byggingarnefndarteikningar sem hægt verði að vísa í grenndarkynningu þar sem að ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Skipulagsnefnd beinir því til skipulagsstjóra að undirbúa gerð deiliskipulags fyrir Vestur-Skógtjarnarsvæðis.
Bæjarráð Garðabæjar
08
16 (1684). fundur
Lagt fram svar skipulagsnefndar þar sem nefndin leggst gegn því að byggð verði tvö parhús á óbyggðu svæði við Búðarflöt, þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag og þá þykir tillaga um byggingu parhúsa ekki í samræmi við byggðamynstur Vestur-Skógtjarnarsvæði þar sem eingöngu hafa verið byggð einbýlishús á lóðum sem eru 1.000 - 2.000 m2 að stærð.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
5. fundur
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að byggja tvö parhús með alls fjórum íbúðareiningum á óbyggðu svæði við Búðarflöt sem liggur að Höfðabraut.$line$Þar sem á svæðinu er ekki deiliskiskipulag í gildi telur skipulagsnefnd að ljúka þurfi deiliskipulagsgerð fyrir Vestur-Skógtjarnarsvæðið áður en veitt verði byggingarleyfi fyrir nýbyggingum.$line$Framlögð tillaga er að mati nefndarinnar ekki í samræmi við byggðarmynstur Vestur-Skógtjarnarsvæðis þar sem eingöngu er þar um einbýlishús að ræða á lóðum sem eru 1.000 - 2.000 m2 að stærð.