17. (781). fundur
17. (781). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
19.11.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Sigríður Björk Gunnarsdóttir - varamaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. nóvember sl. er lögð fram.[line]
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 10/11 ´15.
Steinþór Einarsson, ræddi 8. tl., drög að samkomulagi vegna Miðskóga 8.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sama mál og svaraði fyrirpurn.
Fundargerð bæjarráðs sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.
1.14 - 1510181 - Bréf SSH um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu, dags. 16.10.15.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu stjórnar SSH um að hlutdeild hvers sveitarfélags í notkun á akstri ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk verði reiknuð á grundvelli þess tíma sem hvert sveitarfélag notar frá og með 1. janúar 2015. Við útreikning á hlutdeild hvers sveitarfélags fyrir tímabilið frá 1. janúar til 31. október verði byggt á þeim hlutfallstölum sem fram koma í fyrirliggjandi minnisblaði framkvæmdastjóra frá 10. september sl. en þaðan í frá verður byggt á rauntímaskráningu hvers tímabils.
Fylgiskjöl
1.3 - 1510016 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulegar breytingar á skipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Nýhöfn 7.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Nýhöfn 7 sem gerir ráð fyrir að atvinnurými verði nýtt sem íbúðarými. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og bæjaryfirvalda samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Fylgiskjöl
1.5 - 1503338 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi - Búðarflöt 2-4 Álftanesi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis á lóðunum við Búðarflöt 2-4 þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir enda hefur farið fram grenndarkynning samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
1.7 - 1511054 - Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna breytingar á deiliskipulagi Molduhrauns, Suðurhraun 4-6.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. s.l. tillögu um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Suðurhraun 4 - 6 sem gerir ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum og stækkun byggingarreits.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 17/11 ´15.
Halldór Jörgensson, ræddi 8. tl. tillögu Bjartrar framtíðar um knatthús og fjölnotahús, 11. tl., tillögu Bjartrar framtíðar um ítarlega flokkun á heimilissorpi og 13. tl., svör við fyrirspurnum Bjartrar framtíðar um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk.
Fundargerð bæjarráðs sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.
2.19 - 1508363 - Þórsmörk - sölutilboð, dags. 12.11.15
Bæjarstjórn samþykkir sölutilboð eigenda Þórsmerkur að fjárhæð kr. 61.500.000.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka 19.
Viðauki 19
Kaup á fasteigninni Þórsmörk kr. 61.500.000
Útgjöldum vegna kaupverðs verður mætt á eftirfarandi hátt.
Tekið nýtt skammtímalán kr. 21.500.000
Hækkun skammtímaskulda kr. 40.000.000
Skammtímaskuldir - breyting kr. 61.500.000
Fylgiskjöl
03
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar Garðabæjar frá 10/11 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
04
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/10 ´15.
Björg Fenger, kvaddi sér hljóðs í tilefni af glæsilegum árangri meistaraflokks Stjörnunnar í fimleikum sem varð Norðurlandameistari um síðustu helgi. Björg óskaði Stjörnustúlkum til hamingju með einstakan árangur.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 3/11 ´15.
María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs og óskaði eftir upplýsingum um niðurstöður samræmdra prófa í grunnskólum.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla Garðabæjar frá 12/11 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð umhverfisnefndar Garðabæjar frá 11/11 ´15.
Jóna Sæmundsdóttir, kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á að nk. laugardag verður afhjúpað fræðslu- og söguskilti um Búrfellsgjá.
Halldór Jörgensson, ræddi 2. tl., salernisaðstöðu við strönd Sjálands.
Jóna Sæmundsdóttir ræddi sama mál.
Sturla Þorsteinsson, ræddi sama mál.
Gunnar Einarsson, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
12
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 2/11 og 6/11 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi eftirfarandi liði í fundargerð frá 6/11, 1. tl. rekstrarúttekt, 2. tl. fjárhags- og starfsáætlun Strætó 2016 - 2020 og 3. tl., innri endurskoðun Strætó.
Fundargerðirnar lagðar fram.
14
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 26/10 ´15.
Halldór Jörgensson, ræddi starfsleyfi fyrir veitingastað að Breiðumýri.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
15
Tillaga um skipun dómnefndar vegna samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar
Halldór Jörgensson, kvaddi sér hljóðs og óskaði eftir að fresta tilnefningu á fulltrúa minnihlutans þar til á fundi bæjarráðs nk. þriðjudag.
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í dómnefnd vegna samkeppni um rammaskipulag Lyngássvæðis og Hafnarfjarðarvegar.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, fulltrúi í skipulagsnefnd
Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs
Bæjarstjórn samþykkir tillögu um að fulltrúi minnihlutans verði skipaður af bæjarráði samkvæmt tilnefningu.
Formaður dómnefndar er Áslaug Hulda Jónsdóttir.
16
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 (2017-2019) Tillaga um álagningarhlutfall útsvars.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir samhljóða að álagningarhlutfall útsvars verði 13,66% á tekjur manna á árinu 2016 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 1. mgr. 24. gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2015 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga".
Bæjarstjórn Garðabæjar áskilur sér rétt til hækkunar á álagningarhlutfalli útsvars komi til þess að sett verði ákvæði í lög um tekjustofna sveitarfélaga um hækkun hámarksútsvars á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga um endurmat á yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga.