Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 (2017-2019)
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
19. (802). fundur
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 12 Innri leiga - aukning tekna eignasjóðs kr. -9.769.095
Viðauki 13 Framlag til Bessastaðasóknar v/kaupa á húsnæði kr. 6.000.000
Viðauki 14 Jöfnunarsjóður - stuðningur við tónlistarnám kr. -15.000.000
Viðauki 15 Laun vegna langtímaveikinda kr. 20.000.000
Viðauki 16 Alþingis- og forsetakosningar kr. 1.300.000
Viðauki 17 Framlag til skátafélaga v/endurbóta á húsnæði kr. 12.500.000
Viðauki 17 Fjárveiting vegna aðgengismála kr. -10.000.000
Viðauki 18 Kaup á fasteignum - viðbótarfjárveiting kr. 182.100.000
Viðauki 18 Fjárveiting til framkvæmda við sundlaug - lækkun kr. -182.100.000
Viðauki 19 Hækkun útsvars kr. -20.000.000
Viðauki 20 Laun kennara kr. 9.000.000
Niðurstöður rekstrarreiknings breytast með eftirfarandi hætti.
Rekstrarhagnaður A-sjóðs með viðaukum 1-11 kr. 102.131.000
Rekstrarhagnaður A-sjóðs með viðaukum 1-19 kr. 98.100.096
Rekstrarhagnaður A og B-sjóðs með viðaukum 1-11 kr. 315.826.000
Rekstrarhagnaður A og B-sjóðs með viðaukum 1-19 kr. 311.795.096
Mismunur kr. 4.030.904
Bæjarráð Garðabæjar
02
48. (1765). fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 12-19 við fjárhagsáætlun 2016.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 12 Innri leiga- aukning tekna eignasjóðs kr. -9.769.095
Viðauki 13 Framlag til Bessastaðasóknar v/kaupa á húsnæði kr. 6.000.000
Viðauki 14 Jöfnunarsjóður ? stuðningur við tónlistarnám kr. -15.000.000
Viðauki 15 Laun vegna langtímaveikinda kr. 20.000.000
Viðauki 16 Alþingis- og forsetakosningar kr. 1.300.000
Viðauki 17 Framlag til skátafélaga v/endurbóta á húsnæði kr. 12.500.000
Viðauki 17 Fjárveiting vegna aðgengismála kr. -10.000.000
Viðauki 18 Kaup á fasteignum ? viðbótarfjárveiting kr. 182.100.000
Viðauki 18 Fjárveiting til framkvæmda við sundlaug ? lækkun kr. -182.100.000
Viðauki 19 Hækkun útsvars kr. -20.000.000
Niðurstöður rekstrarreiknings breytast með eftirfarandi hætti.
Rekstrarhagnaður A-sjóðs með viðaukum 1-11 kr. 102.131.000
Rekstrarhagnaður A-sjóðs með viðaukum 1-19 kr. 107.100.096
Rekstrarhagnaður A og B-sjóðs með viðaukum 1-11 kr. 315.826.000
Rekstrarhagnaður A og B-sjóðs með viðaukum 1-19 kr. 320.795.096
Mismunur kr. 4.969.096
Nánari greininga áhrifa er sýnd á fylgiskjali.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
18. (801). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. María Grétarsdóttir situr hjá.
Viðauki 10, Heilbrigðiseftirlit kr. 6.200.000 færist af málaflokki 08 á málaflokk 03.
Viðauki 11, Fasteign Ísafoldar, hjúkrunarheimilis verður færð til eignar sem langtímakrafa (leigueign) en ekki meðal varanlegra fastafjármuna.
Bæjarráð Garðabæjar
05
45. (1762). fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 10 og 11 við fjárhagsáætlun 2016.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 10 Heilbrigðiseftirlit kr. 6.200.000 færist af málaflokki 08 á málaflokk 03.
Viðauki 11 Fasteign Ísafoldar, hjúkrunarheimilis verður færð til eignar sem langtímakrafa (leigueign) en ekki meðal varanlegra fastafjármuna.
Niðurstöður rekstrarreiknings breytast með eftirfarandi hætti.
Hagnaður ársins: var (20.405) verður 25.405
Nánari greininga áhrifa er sýnd á fylgiskjali.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
13. (796). fundur
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 3: Ísafold 100,0 mkr
Viðauki 4: Sumarátak 51,0 mkr
Viðauki 5: Fjölgun nemenda og sérkennsla 40,0 mkr
Viðauki 6: Leikskólinn Ásar - sérkennsla 12,0 mkr
Viðauki 7: Barnavernd og liðveisla 17,0 mkr
Viðauki 8: Heimaþjónusta 16,0 mkr
Viðauki 9: Hækkun útsvars 240,0 mkr
Útgjaldaaukningu samkvæmt viðaukum 3-8 verður mætt með hækkun útsvarstekna, sbr. viðauki 9.
Bæjarráð Garðabæjar
07
34. (1751). fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 3-9 við fjárhagsáætlun 2016.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 3 Ísafold 100,0 mkr
Viðauki 4 Sumarátak 51,0 mkr
Viðauki 5 Fjölgun nemenda og sérkennsla 40,0 mkr
Viðauki 6 Leikskólinn Ásar - sérkennsla 12,0 mkr
Viðauki 7 Barnavernd og liðveisla 17,0 mkr
Viðauki 8 Heimaþjónusta 16,0 mkr
Viðauki 9 Hækkun útsvars 240,0 mkr
Útgjaldaaukningu samkvæmt viðaukum 3-8 verður mætt með hækkun útsvarstekna, sbr. viðauki 9.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
08
34. (1751). fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir málaflokkayfirliti fyrir tímabilið janúar til júní 2016 og svaraði fyrirspurnum.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
09
26. (1743). fundur
Bæjarverkfræðingur kynnti teikningar og áætlanir varðandi framkvæmdir við sundlaug en gert er ráð fyrir að þær verði boðnar út í haust.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
10
25. (1742). fundur
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir tillögu um framkvæmdir og breytingar innanhús í Garðaskóla sem miða að því að bæta við kennslurými samhliða því að útihús við skólann verði nýtt fyrir starfsemi tómstundaheimilis Flataskóla vegna fjölgunar nemenda í skólanum.
Bæjarráð samþykkir að að farið verði í framkvæmdir samkvæmt framkominni tillögu og að þær verði fjármagnaðar af fjárveitingu til endurbóta á skólahúsnæði samkvæmt framkvæmdayfirliti fjárhagsáætlunar 2016.
Bæjarráð Garðabæjar
11
23. (1740). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir yfirliti um stöðu málaflokka fyrir tímabilið janúar - apríl 2016. Jafnframt lagði fjármálastjóri fram yfirlit um þróun innheimtu útsvars á árunum 2012 - 2016.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
12
10. (793). fundur
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki vegna launahækkana kr. 253.816.736.
Ofangreindum viðauka skal mætt með lækkun á varasjóði kr. 190.000.000 (31-6-916-7179) og lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 63.816.737.
Bæjarráð Garðabæjar
13
22. (1739). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, og gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2016.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki vegna launahækkana kr. 253.816.736.
Ofangreindum viðauka skal mætt með lækkun á varasjóði kr. 190.000.000 (31-6-916-7179) og lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 63.816.737.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
14
19. (1736). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust.
Bjössi ehf. kr. 9.500.000
Steinmótun ehf. kr. 7.733.653
Loftorka Reykjavík ehf kr. 7.600.000
PK-verk ehf. kr. 9.997.616
Dráttarbílar ehf kr. 9.425.045
Gleipnir ? verktakar ehf kr. 10.976.933
Kostnaðaráætlun hönnuða kr. 8.510.350
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægst bjóðanda með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
15
7. (790). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 720.000.000 að nafnvirði, verðtryggt með 3,15% ávöxtunarkröfu. Bæjarstjórn samþykkir útgáfulýsingu, dags. 7. apríl 2016 fyrir nýjan skuldabréfaflokk sem auðkenndur verður Gard 16 01. Skuldabréf samkvæmt flokknum eru gefin út rafrænt og skráð á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands).
Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016 (2017-2019) sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. desember 2015 og viðauka samþykktum á fundi bæjarstjórnar í dag.
Bæjarstjórn Garðabæjar
16
7. (790). fundur
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2016.
Lántökuheimild samkvæmt fjárhagsáætlun sem var kr. 600.000.000 verði kr. 720.000.000.
Í viðauka er gerð grein fyrir áhrifum á sjóðstreymisyfirlit en handbært fé í árslok hækkar úr kr. 14.113.000 í kr. 134.113.000
Bæjarráð Garðabæjar
17
12. (1729). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku.
Alls bárust tilboð upp á 1.820 milljónir að nafnvirði á kröfubilinu 3,04 - 3,53%.
Fjármálastjóri lagði fram drög að útgáfulýsingu fyrir nýjan skuldabréfaflokk Gard 16 01.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að semja um lántöku í samræmi við framlagða útgáfulýsingu allt að fjárhæð kr. 720.000.000 verðtryggt með 3,15 % vöxtum.
Bæjarráð Garðabæjar
18
10. (1727). fundur
Bæjarverkfræðingur kynnti hugmyndir að gerð stefnu um innkaup á þjónustu á vegum þjónustumiðstöðvar og eignasjóðs. Á mörgum sviðum hafa verkefni verið boðin út svo sem snjómokstur, sláttur á opnum svæðum og framkvæmdir við gatnagerð, stíga og hljóðvarnarveggi.
Í undirbúningi er kanna nánar frekari útboð og gerð rammasamninga til 2-3 ára um þjónustukaup á sviði
viðhaldsþjónustu, tækjaleigu o.fl.
Bæjarráð Garðabæjar
19
9. (1726). fundur
Afgreiðsla
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2016.
Kvennaráðgjöfin kr. 100.000
Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla kr. 150.000
Garðakórinn kr. 300.000
Samtök um kvennaathvarf kr. 400.000
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu kr. 100.000
Stígamót kr. 150.000
Bæjarráð Garðabæjar
20
9. (1726). fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tilboðum frá eftirfarandi aðilum í umsýslukostnað vegna lántöku samkvæmt skuldabréfaútboði.
Arctica Finance, Arion banka, Íslandsbanka og Kviku banka.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Arion banka og felur bæjarstjóra að leita samninga við bankann um verkefnið.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
21
2. (1719). fundur
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðmiðunarfjárhæðir vegna lækkunar fasteignaskatts og holræsagjalds elli- og örorkulífeyrisþega samkvæmt heimild í 4. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga 4/1995 og 4. mgr. 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009.
Einstaklingar:
Einstaklingar með tekjur árið 2014 allt að kr. 4.500.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 3.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.800.000.
Hjón:
Hjón með tekjur árið 2014 allt að kr. 5.750.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 12.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.950.000.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
22
19. (783). fundur
Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Björt framtíð er mótfallin hækkun á gjaldskrám leikskóla og skólamáltíða. Garðabær er þegar með hæstu gjöld sveitarfélaga í þessum flokkum. Við mótmælum einnig þeim vinnubrögðum að leggja hér fram umdeildar gjaldskrárhækkanir korteri fyrir jól. Við hefðum viljað taka þessa umræðu miklu fyrr á árinu til að hafa tíma til að vega og meta tækifæri sem gætu komið í veg fyrir þessa hækkun, eins og hagræðingu í rekstri. Björt framtíð hvetur til þess að rekstur málaflokka bæjarins verði skoðaður með það að markmiði að lækka rekstrarkostnað. Með lækkuðum rekstarkostnaði væri hægt að halda gjaldskrárhækkunum í lágmarki. Það er eitt að fylgja vísitöluhækkunum en annað að bjóða upp á samkeppnishæft verð. Það samræmist engan veginn þeim vilja að laða að fleira barnafólk í bæinn ef hér eru svo hæstu gjöldin á þann hóp. Hvernig væri að setjast frekar niður saman og spyrja okkur að því af hverju gjöldin hjá okkur eru svona há og hvað við getum gert til að lækka þau?“
Þá lagði Guðrún Elín fram eftirfarandi tillögu.
„Björt framtíð leggur til að afgreiðslu á gjaldskrám leikskóla og skólamáltíða verði frestað fram á nýtt ár svo hægt verði að ræða hana frekar.“
Í umræðu um málið tóku eftirfarandi bæjarfulltrúar til máls:
Gunnar Einarsson, María Grétarsdóttir, Steinþór Einarsson, Halldór Jörgensson, Áslaug Hulda Jónsdóttir, Sigurður Guðmundsson.
Tillaga um frestun á afgreiðslu gjaldskráa leikskóla og skólamáltíða er felld með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG) gegn tveimur (GEH,HJ). Tveir sitja hjá (SE,MG).
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG) gegn tveimur (GEH,HJ).
gjaldskrá leikskóla er gildir frá 1. janúar 2016. Tveir sitja hjá (SE,MG).
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG) reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum er gilda frá 1. janúar 2016. Fjórir sitja hjá (GEH,HJ,SE,MG)
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG) gjaldskrá fyrir tómstundaheimili er gildir frá 1. janúar 2016. Fjórir sitja hjá (GEH,HJ,SE,MG).
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG) gegn tveimur (GEH,HJ). gjaldskrá vegna skólamálsverða í grunnskólum Garðabæjar er gildir frá 1. janúar 2016. Tveir sitja hjá (SE,MG).
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG,GEH,HJ,SE) gjaldskrá fyrir sundlaugar Garðabæjar er gildir frá 1. janúar 2016. MG situr hjá.
Bæjarstjórn samþykkir með með tíu atkvæðum (GVG,ÁHJ,SÞ,SG,JS,GE,KG,GEH,HJ,SE) gjaldskrá fyrir bókasafn Garðabæjar er gildir frá 1. janúar 2016. MG situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
23
48. (1716). fundur
Lagðar fram eftirfarandi gjaldskrár og reglur til að gilda frá 1. janúar 2016
Gjaldskrá vegna skólamálsverða.
Gjaldskrá leikskóla.
Reglur um greiðslur vegna dvalar barna á leikskólum sem ekki eru reknir af Garðabæ.
Reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.
Gjaldskrá tómstundaheimila.
Gjaldskrá sundlauga.
Gjaldskrá Bókasafns Garðabæjar.
Bæjarráð vísar framlögðum gjaldskrám til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
24
17. fundur
Margrét Björk sagði frá því helsta í fjárhagsáætlun sem lítur að grunnskólum bæjarins.
Bæjarráð Garðabæjar
25
47. (1715). fundur
Lögð fram drög að greinargerð í vinnslu um mat á áhrifum byggingar Urriðaholtsskóla og fjölnota íþróttahúss á fjárhag Garðabæjar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
26
12. fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri mætti á fundinn og fór yfir forsendur og helstu tölur i fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 (2017-2019). Síðari umræða um fjárhagsáætlun fór fram á fundi bæjarstjórnar 3. desember sl. þar sem áætlunin var samþykkt.
Bæjarstjórn Garðabæjar
27
18. (782). fundur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fjallaði um frumvarp að fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi tillögur um breytingar við frumvarpið
Gjaldskrárbreytingar - þjónustugjöld -15.000.000
Alþjóðaskólinn -1.500.000
Afsláttur eldri borgara af fasteignaskatti -2.000.000
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 47.000.000
Skammtímavistun Móaflöt -3.000.000
Húsaleigubætur -4.000.000
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðis -2.200.000
Gjöld vegna skipulagsbreytinga -1.000.000
Biðlistagjöld dagmæður -10.000.000
Ljósmyndasafn 1.200.000
Mannréttinda- og forvarnanefnd - lýðræðismál 1.000.000
Hvatapeningar hækkun 6.000.000
Samkeppni um aðkomutákn og rammaskipulag 6.000.000
Lækkun álagningarhlutfalls fasteignaskatts 13.000.000
Afmælisnefnd - 40 ára afmæli Garðabæjar 2016 10.000.000
Samningur um rekstur valla - hækkun 3.400.000
Varasjóður - hækkun 40.000.000
Bæjarstjóri gerði grein fyrir breytingum á tillögu að framkvæmdayfirliti en gert er ráð fyrir að heildarframkvæmdir á árinu 2016 verði 1.238.000.000 sem er hækkun um kr. 208.000.000 frá frumvarpi.
Þá lagði bæjarstjóri fram eftirfarandi tillögu um álagningu gjalda.
„Fasteignaskattur skal vera 0,235% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarréttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sbr. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Fasteignaskattur skal vera 1,65% af öðrum fasteignum, sem metnar eru í fasteignamati, sbr. c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Leigugjald á íbúðarhúsalóðum Garðabæjar skal vera 0,4% af fasteignamati lóðar og er þá ekki nýtt að fullu heimild bæjarins sem er 1,0%, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.
Leigugjald á atvinnuhúsalóðum Garðabæjar skal vera 1,0% af fasteignamati lóðar, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.
Vatnsgjald skal vera 0,11% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. heimild í reglugerð um vatnsveitur.
Aukavatnsskattur skal á árinu 2016 vera 22,6 kr/tonn m.v. BVT í des 2013.
Á Álftanesi skal vatnsgjald vera samkvæmt Gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur sem innheimtir vatnsgjald samkvæmt samningi.
Holræsa- og rotþróargjöld skulu vera 0,12% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005.
Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. 27.700.
Sorphreinsigjald skal vera kr. 22.900 á hverja íbúð.
Taðþróargjöld í hesthúsahverfi Andvara skulu vera kr. 273.100 á hvert hús.
Fasteignaskattur og holræsagjald sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða skal lækka að teknu tilliti til viðmiðunartekna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að ákvarða viðmiðunartekjur samkvæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.
Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2016 verða 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september og 15. október.“
Steinþór Einarsson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir tveimur árum talaði ég um hve ánægjulegt það væri að gjaldskrár þjónustugjalda myndu ekki hækka líkt og önnur sveitarfélög ætluðu að gera til að sporna við verðbólgu. Við gerð þessarar fjárhagsáætlunar er hins vegar gert ráð fyrir hækkunum á þjónustugjöld, sem ég minni á að eru með þeim hærri á höfuðborgarsvæðinu. Nú berast fréttir frá öðrum sveitarfélögum að jafnvel sé verið að lækka leikskólagjöld.
Það er ánægjulegt að sjá hve vel hefur tekist til við sameiningu sveitarfélaganna hvort heldur er á fjárhagslegan mælikvarða eða þegar aðrir mælikvarðar eru notaðir. Nú er vinna í gangi við gerð nýs aðalskipulags fyrir sameinað sveitarfélag og í því felast mörg spennandi tækifæri.
Vinna er hafin við samkeppni um skipulag á Lyngásreitnum sem er mjög spennandi en Garðabær þarf virkilega að vinna að því að ungt fólk finni eignir sem þeim hentar til að geta hafið búskap í Garðabæ. Öll umgjörð svo sem þjónustugjöld á barnafjölskyldur skipta þar einnig verulegu máli. Meðalaldur íbúa Garðabæjar hefur hækkað verulega og spár sýna að hann mun halda áfram að hækka, því þarf að vinna að því að ungt fólk hafi tækifæri til að búa í Garðabæ.
Undanfarin ár hefur verið vel staðið að atvinnumálum skólafólks, Þessum peningum er vel varið, því ekki eingöngu er þetta mikil forvörn sem felst í því að útvega ungmennum atvinnu yfir sumartímann, heldur liggur alltaf mikið eftir vinnu hópanna í lok sumars. Garðabær þarf því að standa vaktina gagnvart ungu fólki hér eftir sem hingað til.
Mikilvægt er að uppbygging sem hafin er á búsetukjarna fyrir fatlaða, ljúki sem fyrst.
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 lítur vel út og í henni felast mörg tækifæri. Mikil uppbygging og endurnýjun er framundan í íþróttamannvirkjum, skólamannvirkjum og gatna- og gangstígagerð.
Vinna þarf hins vegar betur að uppbyggingu opinna svæða í bænum og gera þau áhugaverðari og skemmtilegri.“
Þá lagði Steinþór fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela bæjarstjóra að koma á starfshópi til að vinna að kortlagningu á viðburðum og uppákomum sem þegar eru í bæjarfélaginu. Einnig að koma með tillögur um hvaða viðburði mætti samþætta og jafnvel gera meira úr, með tilliti til fjölbreyttari og skemmtilegri nýtingu á opnum svæðum og torgum.“
Greinargerð:
Fyrir tveimur árum voru haldnir vel heppnaðir tónleikar á Vífilsstaðatúni. Rætt var um á þeim tíma að þetta gæti orðið árlegur viðburður í Garðabæ. Síðan eru liðin tvö ár án þess að boðið hafi verið upp á viðlíka skemmtun. Ýmsar útfærslur má hugsa sér og jafnvel að þetta væri vísir að bæjarhátíð. Hins vegar má segja að nokkrar bæjarhátíðir séu nú þegar í bæjarfélaginu, svo sem Kvennahlaupið og Jónsmessuhátíð. Hægt væri til dæmis að gera meira úr þeim degi þegar Kvennahlaupið er haldið og mikill fjöldi gesta er í Garðabæ og enda það kvöld með fjölskylduskemmtun.
Halldór Jörgensson, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun. Halldór óskaði eftir upplýsingum og skýringum um nánar tilgreinda liði og þá ræddi Halldór um helstu framkvæmdir samkvæmt framkvæmdayfirliti.
Guðrún Elín Herbertsdóttir tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Björt framtíð telur að vinnu við fjárhagsáætlun Garðabæjar, sem og framsetningu á henni, sé ábótavant. Drög áætlunarinnar eru eingöngu samin af meirihluta bæjarstjórnar og mikilvægar upplýsingar og fylgigögn eru afhent minnihlutanum með of litlum fyrirvara. Minnihluti bæjarstjórnar kemur í raun ekki nálægt neinni vinnu við áætlanagerðina. Við fáum hana nánast fullbúna í hendurnar. Tilgangur minnihlutans virðist því fyrst og fremst eiga að vera sá að gagnrýna áætlunina. Þegar drög meirihlutans liggja fyrir, eru þau birt með mjög litlum fyrirvara og án ítarlegra gagna eins og t.d. framkvæmdaáætlunar sem við þurftum að biðja sérstaklega um fyrir síðustu umræðu. Meiri skilgreiningu og sundurliðun vantar bæði í fjárhagsáætlun og framkvæmdaáætlun svo betur megi skilja og lesa úr þeim. Við þökkum fyrir að það hefur þó núna nýlega eitthvað verið komið til móts við þá beiðni okkar. Það má líka taka það fram að minnihlutanum er auðvitað velkomið að koma með tillögur um breytingar, en vaninn virðist vera sá að þó að vel sé tekið í þær breytingatillögur, þá eiga þær til að „sofna“ og liggja í dvala sé ekki stanslaust rekið á eftir þeim. Við gagnrýnum harðlega að mjög nauðsynlegar upplýsingar, eins og t.d. nákvæmar hugmyndir meirihlutans um hækkun á gjaldskrám bæjarins séu ekki birtar í dag, þrátt fyrir beiðni okkar um að fá þau gögn mun fyrr. Björt framtíð hvetur meirihluta bæjarstjórnar að tileinka sér starfshætti annarra sveitarfélaga, eins og t.d. Kópavogs, þar sem allir bæjarfulltrúar koma að gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlunar frá upphafi.“
María Grétarsdóttir, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Líklegt er að skatttekjur Garðabæjar munu hækka um rúmlega 3% í ár frá fyrra ári. Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að skatttekjur hækki um tæp 11% á næsta ári og 2% árlega 2017, 2018 og 2019.
Skatttekjur á árinu (2015) hafa ekki aukist í takt við áætlanir sem þó gerðu aðeins ráð fyrir um 4% hækkun frá fyrra ári og er rekstur bæjarins því í járnum í ár þ.e. hugsanlega neikvæður eftir áralangan hallalausan rekstur.
Ef raunhækkun skatttekna bæjarins á milli áranna 2015 og 2016 reynist á svipuðu róli og í ár eða um 3-4% þá verður halli á rekstri bæjarins á næsta ári, miðað við aðrar framlagðar forsendur, um 500 milljónir í stað áætlaðs hagnaðs upp á 60 milljónir.
Fólkið í bænum lýsir yfir áhyggjum af framlögðum áætlunum.“
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, tók til máls að nýju.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls að nýju.
Áslaug Hulda Jónsdóttir tók til máls um fjárhagsáætlun og þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að undirbúningi við gerð áætlunarinnar.
Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls.
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls að nýju
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Steinþórs Einarssonar vegna viðburða.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögum um álagningu fasteignagjalda.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá vegna sorphirðugjalda.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða gjaldskrá vegna taðþróargjalda.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum framkvæmdayfirlit fjárhagsáætlunar. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum frumvarp að fjárhagsáætlun með framkomnum breytingartillögum sem fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 og 2017 ? 2019. María Grétarsdóttir situr hjá.
Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016-2019 eru:
2016, 2017, 2018, 2019
Tekjur: 11.534.173, 11.683.293, 11.853.293, 12.043.293
Gjöld: 10.448.549, 10.628.167, 10.832.417, 11.070.247
Niðurstaða án fjármagnsliða:
1.085.624, 1.055.126, 1.020.876, 973.046
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)
(755.507), (532.582), (464.782), (410.430),
Rekstrarniðurstaða
330.116, 522.544, 556.094, 562.616
Fleira ekki gert.
Undirritun á næstu síðu.
Bæjarráð Garðabæjar
29
46. (1714). fundur
Lögð fram drög að tillögu um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun 2016, (2017-2019).
Lögð fram tillaga að álagningu fasteignagjalda árið 2016.
Lögð fram tillaga að framkvæmdayfirliti.
Bæjarráð vísar framkomnum tillögum til afgreiðslu bæjarstjórnar við síðari umræðu um fjárhagsáætlun sem fyrirhuguð er 3. desember 2015.
Bæjarráð Garðabæjar
30
45. (1713). fundur
Bæjarstjóri kynnti drög að tillögum til breytinga á rekstri og framkvæmdayfirliti.
Bæjarstjórn Garðabæjar
31
17. (781). fundur
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir samhljóða að álagningarhlutfall útsvars verði 13,66% á tekjur manna á árinu 2016 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 1. mgr. 24. gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2015 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga".
Bæjarstjórn Garðabæjar áskilur sér rétt til hækkunar á álagningarhlutfalli útsvars komi til þess að sett verði ákvæði í lög um tekjustofna sveitarfélaga um hækkun hámarksútsvars á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga um endurmat á yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga.
Bæjarráð Garðabæjar
33
44. (1712). fundur
Fjármálastjóri sat einnig fund bæjarráðs undir þessum dagsskrárlið.
Lagt fram deildayfirlit fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.
Fylgiskjöl
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
34
11. fundur
Farið var yfir helstu liði fjárhagsáætlunar tónlistarskólans fyrir næsta ár en fyrri umræða fór fram í bæjarstjórn 5. nóvember.
Skólanefnd ítrekar það sem áður hefur komið fram að aukið fjármagn verði sett í hljóðfærakaup í fjárhagsáætlun 2016 til að bæta og endurnýja hljóðfærakost skólans.
Bæjarráð Garðabæjar
35
43. (1711). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,66% á tekjur manna á árinu 2016 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2015 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lagður fram listi yfir mál sem vísað hefur verið til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
36
16. (780). fundur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2016 og 2017 - 2019. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.
Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Steinþór Einarsson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Um langt skeið hefur legið fyrir að bæta þurfi inniaðstöðu fyrir knattspyrnuiðkendur í Garðabæ. Mikil vinna hefur farið fram innan Stjörnunnar ásamt því að Garðabær skipaði starfshóp á síðasta kjörtímabili til að skoða bestu staðsetningu og hvernig slíkt hús ætti að vera.
Tryggja þarf að í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016, verði gert ráð fyrir fjármagni til að hefja byggingu á fjölnota húsi sem rúmast á Ásgarðssvæðinu, ásamt því að huga að fleiri æfingavöllum á svæðinu. Með þessu fjármagni skal tryggt að framkvæmdir við fjölnota hús sem getur hýst knattspyrnuæfingar hefjist sem allra fyrst.
Í framhaldinu verði farið að skoða staðsetningu á öðru framtíðarsvæði Stjörnunnar með frekari uppbyggingu á aðstöðu í huga í ört stækkandi sveitarfélagi.“
Halldór Jörgensson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu
„Björt framtíð gerir það að tillögu sinni að ákvarðanir um knatthús eða fjölnotahús verði lagðar í hendur íbúa Garðabæjar í formi íbúakosningar sem fyrst.“
Greinagerð
Bygging knatthúss eða fjölnotahúss hefur verið ofarlega í umræðunni í bæjarfélaginu og hagsmunaaðilar hafa verið duglegir við að styðja slíka byggingu með tillögum og röksemdum. Reyndar er þetta mál búið að vera í umræðunni í yfir 15 ár. Allt of lengi hefur tekið að draga þetta mál til lyktar og því telur Björt framtíð að ákjósanleg lausn sé að efna til íbúakosningar um málið. Áður en slík kosning getur farið fram þurfa allar upplýsingar að liggja fyrir hvað varðar þörf, byggingarkostnað og rekstrarkostnað slíkrar byggingar auk annarra þátta eins og hækkun skuldahlutfalls sem afleiðingu framkvæmda. Björt Framtíð telur að hagsmunaaðilar eigi rétt á því að fá svör við sínum tillögum og þörfum og að íbúar bæjarins eigi rétt á því að fá að taka afstöðu til þeirra kosta og kostnaðar sem fylgja slíkri byggingu. Kosning ætti að fara fram sem allra fyrst eða í síðasta lagi samhliða forsetakosningum næsta ár.
Nýlega samþykkti bæjarstjórn að fela bæjarstjóra að semja reglur á grundvelli 1. mgr. 46. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2010 um að fundir fastanefnda bæjarstjórnar Garðabæjar verði almennt haldnir í heyrandi hljóði og opnir. Í greinagerð með samþykktinni var vísað í lýðræðisstefnu Garðabæjar: „Lýðræði og virkt samráð er einn af hornsteinum stjórnkerfisins í Garðabæ. Bæjarstjórn og stjórnendur Garðabæjar líta svo á að í áliti íbúa á málefnum sveitarfélagsins búi verðmæti sem mikilvægt sé að virkja. Íbúar Garðabæjar eiga að hafa greiðan aðgang að þátttöku í ákvarðanatöku og stefnumótun í því skyni að auka gæði þjónustunnar og efla lífsgæði og samheldni í sveitarfélaginu.“
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun.
María Grétarsdóttir, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, tók til máls að nýju.
Halldór Jörgensson, tók til máls að nýju.
Guðrún Elín Herbertsdóttir tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun. Guðrún Elín lagði fram eftirfarandi bókun.
„Björt framtíð endurtekur hér ársgamla bókun sína frá umræðum um fjárhagsáætlun árið 2015 og hafnar framkvæmdaráætlun við bæjarstjórnarsal að óbreyttu. Hinsvegar erum við reiðubúin til að samþykkja þá breytingu að kaffihúsa- eða veitingarekstur í salnum verði boðin út til að tryggja sem mesta nýtingu og opnunartíma salsins. Þær 90 milljónir sem áætlaðar eru í framkvæmdir við salinn teljum við vera slæma fjárfestingu miðað við önnur aðkallandi verkefni og þá litlu nýtingu sem annars er fyrirhuguð á salnum.“
Þá lagði Guðrún Elín fram eftirfarandi tillögu:
„Björt framtíð leggur til að íbúum Garðabæjar standi til boða ítarlegri flokkun á heimilissorpi. Þessu verði m.a. mætt með fjölgun grenndargáma sem bjóða upp á ítarlegri flokkun á plasti og gleri og einnig að íbúum standi til boða og hafi val að kaupa sér þjónustuna á ítarlegri flokkunartunnum við heimili, annað hvort hjá bæjarfélaginu eða hjá einkaaðila á markaði. Einnig leggur Björt framtíð til að farið verði í sérstakt átak til að fræða og kynna nýja flokkunarmöguleika fyrir íbúum.“
Greinagerð:
Hlutfall heimilissorps í bænum sem endar í svörtu tunnunni og er urðað er allt of hátt. Sérstaklega mælast plastumbúðir þar ofarlega. Mjög margir íbúar hafa sýnt því áhuga að flokka sitt heimilissorp betur en vita ekki hvernig þeir eiga að bera sig að. Þar sem enga flokkunarstöð er að finna í bænum, fáa grenndargáma og stöðin á Dalvegi mun loka fljótlega, er mjög mikilvægt að Garðabær bjóði upp á betri þjónustu í þessum málum. Garðabær á því að bjóða upp á betri og fleiri grenndargáma sem taka við m.a. plasti og gleri og eins á íbúum að standa til boða að fá sér nýja flokkunartunnu sem tekur við fleiri flokkum en bara pappírstunnan. Samkvæmt nýjum úrskurði Samkeppniseftirlitsins eiga íbúar að hafa frelsi hvort þeir kaupi slíkar tunnur af bæjarfélaginu eða beint af einkaaðila. Við hvetjum bæjaryfirvöld að bregðast hratt og vel við og setja þetta ferli strax af stað. Þannig styður bærinn við vistvænan lífstíl sem er algjörlega lífsnauðsynlegt að fleiri tileinki sér. Björt framtíð bendir á að kostnaði við ítarlegri flokkun á heimilissorpi má ekki mæta með auknum sorphirðugjöldum samkvæmt úrskurði Samkeppniseftirlitsins.
Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:
2016, 2017, 2018, 2019
Tekjur: 11.486.644, 11.635.764, 11.805.764, 11.995.764
Gjöld: 10.445.715, 10.496.069, 10.646.787, 10.805.085
Niðurstaða án fjármagnsliða:
1.040.929, 1.139.695, 1.159.977, 1.190.679
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)
(715.910), (527.196), (447.863), (381.366)
Rekstrarniðurstaða
325.019, 612.499, 711.114, 809.313
Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2016 og 2017 - 2019 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um íbúakosningu til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um grenndargáma til bæjarráðs.
Bæjarráð Garðabæjar
37
42. (1710). fundur
Lögð fram drög að tillögu að álagningu útsvars og fasteignagjalda á árinu 2016.
Samkvæmt ákvæði 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 skal sveitarstjórn ákveða fyrir 1. desember ár hvert hvaða hundraðshluti verði lagður á tekjur manna á næsta ári.
Bæjarráð vísar tillögu um álagningu gjalda til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð Garðabæjar
38
41. (1709). fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 og árin 2017 - 2019, ásamt forsendum og framkvæmdayfiliti.
Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 eru:
Heildartekjur 11.486.644 þkr.
Heildargjöld 10.445.715 þkr.
Niðurstaða án fjármagnsliða 1.040.929 þkr.
Fjármunatekjur (gjöld) 715.910 þkr.
Rekstrarniðurstaða 325.019 þkr.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013.
Bæjarráð Garðabæjar
39
35. (1703). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir vinnuferli við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2016 (2016-2019) en samkvæmt því er lagt til að fyrri umræða verði í bæjarstjórn 5. nóvember og síðari umræða 3. desember
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
40
26. (1694). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
41
19. (1687). fundur
Lagt fram til kynningar.