Beint í efni

43. (1711). fundur

10.11.2015
Bæjarráð Garðabæjar

43. (1711). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

10.11.2015

Kl. 08:00 - 09:05

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Lúðvík Hjalti Jónsson - embættismaður
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1503196

01

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016, framkvæmdir og álagning gjalda.

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,66% á tekjur manna á árinu 2016 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.

Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2015 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Lagður fram listi yfir mál sem vísað hefur verið til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1509259

02

Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 7

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi með 9 íbúðum við Holtsveg 7.

Málsnúmer 1510016

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulegar breytingar á skipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Nýhöfn 7.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Nýhöfn 7 sem gerir ráð fyrir að atvinnurými verði nýtt sem íbúðarými. Grenndarkynning fellur niður þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og bæjaryfirvalda samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.

Málsnúmer 1510213

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna Þríhnúkagígs. Verkefnalýsing deiliskipulags

Lögð fram.

Málsnúmer 1503338

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi - Búðarflöt 2-4 Álftanesi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis á lóðunum við Búðarflöt 2-4 þrátt fyrir að deiliskipulag liggi ekki fyrir enda hefur farið fram grenndarkynning samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510338

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Hegranes 32.

Afgreiðslu frestað.

Málsnúmer 1511054

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna breytingar á deiliskipulagi Molduhrauns, Suðurhraun 4-6.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. s.l. tillögu um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Suðurhraun 4 - 6 sem gerir ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum og stækkun byggingarreits.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1308500

08

Drög að samkomulagi vegna Miðskóga 8.

Bæjarráð samþykkir samkomulag við Eon arkitekta vegna hönnunar og skipulagsbreytinga.

Málsnúmer 1511001

09

Bréf Knattspyrnudeildar Stjörnunnar vegna Þorrablóts 2016, dags. 31.10.15.

Í bréfinu er farið fram á leyfi til að halda þorrablót Stjörnunnar í íþróttamiðstöðinni Mýrinni föstudaginn 22. janúar 2016.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Sigurður Guðmundsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511017

10

Umsögn um umsókn Garðaholts um rekstrar- og veitingaleyfi

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Sigurður Guðmundsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1511019

11

Umsögn um umsókn um rekstrarleyfi fyrir kaffihús að Garðatorgi 7

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1511055

12

Umsögn vegna umsóknar um leyfi fyrir skemmtanahald á Garðatorgi.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1511056

13

Umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi til sölu gistingar að Súlunesi 33.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1510181

14

Bréf SSH um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu, dags. 16.10.15.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu stjórnar SSH um að hlutdeild hvers sveitarfélags í notkun á akstri ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk verði reiknuð á grundvelli þess tíma sem hvert sveitarfélag notar frá og með 1. janúar 2015. Við útreikning á hlutdeild hvers sveitarfélags fyrir tímabilið frá 1. janúar til 31. október verði byggt á þeim hlutfallstölum sem fram koma í fyrirliggjandi minnisblaði framkvæmdastjóra frá 10. september sl. en þaðan í frá verður byggt á rauntímaskráningu hvers tímabils.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511073

15

Bréf skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar og Samtaka íslenskra skólahljómsveita vegna Landsmóts skólahljómsveita í Garðabæ 2016, dags. 03.11.15.

Í bréfinu er sagt frá því að fyrirhugað er að halda landsmót Samtaka íslenskra skólahljómsveita í Garðabæ dagana 29. apríl til 1. maí 2016.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindi bréfritara um gistiaðstöðu í grunnskólum bæjarins og aðgang að sundlaugum. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511078

16

Beiðni um styrk vegna Snorraverkefnis 2016

Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.

Málsnúmer 1508363

17

Þórsmörk, kaup- og sölutilboð

Bæjarstjóri kynnti niðurstöður samkvæmt verðmati fasteigna og lóða við Þórsmörk. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

Málsnúmer 1409324

18

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 - Staða framkvæmda

Bæjarverkfræðingur kynnti stöðu framkvæmda við endurnýjun gangstétta við Garðaflöt og framkvæmdir á vegum Orkuveitu Reykjavíkur á skólasvæði við Ásgarð.

Málsnúmer 1311361

19

Bæjarskrifstofur - hönnun á fjölnotasal fyrir bæjarstjórn, nefndir o.fl.

Lagðar fram og kynntar hugmyndir að forsendum og leiðarljósi við hönnun á nýjum fjölnotasal við Garðatorg sem m.a. verður nýttur sem fundarsalur fyrir bæjarstjórn.

Bæjarstjóri kynnti hugmynd að láta fleiri aðila vinna frumdrög að nánari hönnun sem lögð verður fyrir bæjarráð ásamt þegar fram komnum tillögum.