Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna Suðurhrauns 6 og 10.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
11. (1728). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillaga breytingu á deiliskipulagi Molduhraun vegna lóðanna við Suðurhraun 6 og 10 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Lögð fram tillaga að lokinni kynningu sem stóð frá 1.febrúar til 14.mars. Engar athugasemdir hafa borist og skoðast hún því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
17. (781). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. s.l. tillögu um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Suðurhraun 4 - 6 sem gerir ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum og stækkun byggingarreits.
Bæjarráð Garðabæjar
05
43. (1711). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. s.l. tillögu um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Suðurhraun 4 - 6 sem gerir ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum og stækkun byggingarreits.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
15. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem gerir ráð fyrir því að lóðin Suðurhraun 4-6 skiptist í tvær lóðir og verði nýr byggingarreitur á vestari lóðinni.
Að öðru leyti gildi ákvæði deiliskipulag Molduhrauns.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar og fellir niður forkynningu þar sem allar forsendur eru til staðar í aðalskipulagi.